Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 27
FÓKUS - VIÐTAL 2729. nóvember DIKLOFENAK APOFRI hlaup inniheldur diclofenac tvíetýlamín, 11,6 mg/g, og er lyfið notað til meðferðar á staðbundnum verk í tengslum við meiðsli í vöðva eða lið. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. BÓLGUEYÐANDI OG DREGUR ÚR VERK DIKLOFENAK APOFRI HLAUP geturðu ekki selt tveimur, eða tíu eða tuttugu.“ Sumarið 2014 hóf Sigrún einnig að bjóða fólki upp á svo- kallaða „webinar“ fyrirlestra í beinni á netinu, við góðar undir- tektir. Um haustið sama ár var hún komin með hátt í 200 manns á tölvupóstlista og árið 2016 var svo komið að hóparnir voru farn- ir að taka yfir einstaklingana. Síð- an þá hefur Sigrún eingöngu boð- ið upp á hópnámskeið til eins árs. „Einfaldlega vegna þess að þú færð ekki hugmynd og stofn- ar fyrirtæki á fjórum vikum. Eftir að þú færð hugmyndina, þá koma spurningarnar og þú þarft hjálp og aðhald og eftirfylgni.“ Konurnar sem leita til Sigrún- ar eru margar hámenntaðar og með mikla starfsreynslu. „Margar eru í kringum fertugt, en ég segi oft að það sé besti tím- inn fyrir konur til að stofna fyrir- tæki. Þær eru þá margar komn- ar með reynslu og eru ekki lengur með lítil börn. Ég er með fjölbreyttan hóp; hundaþjálf- ara, innanhúshönnuði, arki- tekta, stílista, lækna og næringar- fræðinga.“ Endalausir möguleikar „Það geta allir búið til fyrirtæki á netinu,“ segir Sigrún jafnframt og nefnir dæmi. „Segjum sem svo að ljósmyndari myndi koma til mín og langaði að stofna fyrirtæki. Þú getur ekki tekið myndir af fólki í gegnum netið en þú getur hins vegar kennt öðrum að taka eig- in myndir, þú getur hjálpað fólki að undirbúa sig fyrir myndatök- ur, þú getur boðið upp á VIP-dag þar sem fólk kemur og fær förðun og stíliseringu og myndatöku. Möguleikarnir eru endalausir. Það er alltaf til leið, það þarf bara að hugsa út fyrir boxið. En vegna þess að þetta er orðið svo auðvelt, þá þarf fólk að kunna að mark- aðssetja sig. Það er erfitt að skera sig úr.“ Sigrún segist sjálf hafa lagt upp með að skapa sér sérstöðu. „Ég er frá Íslandi og tala um það. Ég er sömuleiðis með menntun og reynslu sem er frekar sér- tæk,“ segir Sigrún. „Svo er ég Sigrún Guðjónsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.