Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 34
Góð kaup 29. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ DJI REYKJAVÍK: Agnarsmár og öflugur dróni DJI Reykjavík er í hjarta Reykja-víkur, en verslunin er staðsett við hlið Hard Rock Café í Lækj- argötu. Verslunin býður upp á mikið úrval af drónum og fylgihlutum fyrir þá, en DJI verslun er viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili fyrir DJI á Íslandi. Mikið úrval Hjá DJI Reykjavík má finna breitt úr- val af drónum sem hægt er að nota við fjölbreyttar aðstæður og gefst viðskiptavinum kostur á að koma og prófa að fljúga dróna í flughermi. Verslunin er glæsileg í alla staði en hún var hönnuð í samstarfi við DJI, en nýtur verslunin sérstöðu hér á landi þar sem að hún er sú eina sinnar tegundar. Drónarnir sem DJI hefur til sölu henta bæði byrjendum sem og þeim sem eru lengra komnir. En drónana er hægt að nota í allt milli himins og jarðar. Vinsælustu týpurnar þeirra eru meðal annars Mavic 2 Pro og Mavic Air. DJI verslun leggur mikið upp úr að verð hjá þeim sé sambæri- legt verði í öðrum evrópskum löndum. Smár og léttur dróni Nú í nóvember hófst sala á minnsta og léttasta DJI-dróna til þessa. Drón- inn, sem heitir Mavic Mini, er aðeins 249 grömm að þyngd, en getur flogið í allt að 30 mínútur, tekið myndbönd í 2.7K Quad HD og notar nýtt og einfalt forrit sem heitir DJI Fly. Mavic Mini er léttur og með- færilegur dróni sem gefur hágæða niðustöður án takmarkana. Vegna stærðarinnar þá getur Mavic Mini flogið þar sem stærri drónar kom- ast ekki. Annar kostur við Mavic Mini er sá að þú getur tekið hann með þér í kringum heiminn án þess að sækja um skírteini til þess að fljúga, því hann er aðeins 249 grömm. Stjórntækin eru auðveld í notkun og hönnuð til þess að gera þér kleift að fljúga drónanum auðveldlega ásamt því að fá skýra og flotta mynd í HD- -gæðum í allt að tveggja kílómetra fjarlægð. Mavic Mini getur auk þess sveimað beint yfir hlutum og stöðum bæði innan dyra og utan. Hvort sem þú ert að ganga um fjöllin, njóta dags í fjörunni eða bara slappa af í garðinum þínum, þá er Mavic Mini gerður til þess að gera upplifunina betri. Hægt er að fá frekari upplýsingar á heimasíðu DJI Reykjavík á www. djireykjavik.is eða með því að kíkja í verslunina í Lækjargötu 2A. DJI Reykjavík Lækjargötu 2A, 101 Reykjavík S: 519-4747 info@djireykjavik.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.