Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 51
PRESSAN 5129. nóvember
hann því á bug að Greta væri mál-
pípa hans.
„Ég er ekki fyrirmynd hennar.
Þegar ég ræði við hana er það
næstum eins og að ræða við sam-
starfsmann á sviðinu.“
Gjörbreytt líf
Líf Thunberg- fjölskyldunnar
hefur gjörbreyst á skömmum
tíma. Fyrir nokkrum árum tóku
þau þátt í lífsgæðakapphlaupinu
eins og svo margir aðrir. Móðir
Gretu er óperu söngkona og fylgdi
fjölskyldan henni á ferðum henn-
ar um heiminn þegar hún söng í
hinum ýmsu óperuhúsum.
„Við flugum, við borðuðum
kjöt, ókum um á stórum bíl,“ hef-
ur faðir Gretu látið hafa eftir sér.
Í bók, sem móðir Gretu,
Malene Ernman, skrifaði um
ferðalag fjölskyldunnar frá því að
vera þátttakendur í lífsgæðakapp-
hlaupinu yfir í að vera meðvitað
baráttufólk í umhverfismálum,
kemur fram að vendipunkturinn
hjá fjölskyldunni hafi verið þegar
Greta var 11 ára. Hún var þá á
góðri leið með að svelta sig í hel.
Farið var með hana á milli lækna
sem gekk illa að sjúkdómsgreina
hana en að lokum tókst það.
Hún hafði orðið fyrir svo mikl-
um áhrifum af mynd sem hún sá
í skólanum. Mynd sem hafði mik-
il áhrif á þá viðkvæmu mann-
eskju sem hún er. Myndin fjall-
aði um rusl í heimshöfunum og
stóru plasteyjuna sem flýtur um
Kyrrahafið. Greta grét á meðan
myndin var sýnd og hélt áfram að
gráta í mötuneytinu þegar „dauð
dýr“ voru snædd á meðan rætt
var um merkjafatnað og farsíma.
Eftir þetta hefur líf fjölskyldunnar
ekki orðið samt.
Þau hættu að fljúga, rafmagns-
bíll var keyptur, kjöt er ekki leng-
ur á boðstólum á heimilinu og
er öll fjölskyldan nú grænkerar.
Greta las allt sem hún komst yfir
um loftslagsbreytingarnar. For-
eldrar hennar sögðu störfum sín-
um upp, að hluta til, til að þurfa
ekki að fljúga meira og að hluta til
til að geta verið meira með börn-
unum, sem eru tvö. Þau eru bæði
með greiningar.
Malene segir í bók sinni að
einhverfan færi Gretu hæfileika
sem aðrir hafa ekki:
„Greta er með greiningu en
það útilokar ekki að það sé hún
sem hefur rétt fyrir sér og við
hin höfum rangt fyrir okkur.
Hún sá það sem við hin vildum
ekki sjá. Greta tilheyrir fámenn-
um minnihluta sem sá koltvísýr-
ing með berum augum. Hún sá
gróðurhúsalofttegundir stíga upp
úr skorsteinum, aðskilja sig frá
vindinum og breyta gufuhvolfinu
í risastóran ruslahaug.“ n
September 2018 – Greta
fór í skólaverkfall og settist
fyrir framan sænska þingið
og mótmælti aðgerðaleysi
í loftslagsmálum. Arnold
Schwarzenegger bauð henni á
loftslagsráðstefnu í Austurríki.
Nóvember 2018 – Skóla-
verkföll Gretu breiddust út um
heiminn.
Desember 2018 – Hún
hitti Antonio Gueterres, aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna, og
ávarpaði þjóðarleiðtoga á lofts-
lagsráðstefnunni í Katowice í
Póllandi. Time Magazine sagði
hana meðal áhrifamesta fólks
heims.
Janúar 2019 – Hún ávarp-
aði World Economic Forum í
Davos.
Febrúar 2019 – Ávarpaði fé-
lags- og efnahagsmálaráð ESB
og hitti Jean-Claude Juncker,
formann framkvæmdastjórn-
ar ESB.
Mars 2019 – Tilnefnd til
Friðarverðlauna Nóbels af
norskum þingmönnum. Út-
nefnd kona ársins af Swea
International.
Apríl 2019 – Fékk norsk tján-
ingarfrelsisverðlaun. Heiner
Koch, erkibiskup í Berlín,
hyllti hana og líkti henni
við Jesú. Hitti Frans I páfa á
Péturstorginu í Róm. Var á
lista Time yfir áhrifamesta fólk
heims. Barack Obama hrósaði
henni og sagði hana ungan,
hugrakkan og einbeittan leið-
toga.
Maí 2019 – Ræður hennar
voru gefnar út í bók. Var á for-
síðu Time Magazine. Útnefnd
heiðursdoktor við háskólann í
Mons í Belgíu.
Júní 2019 – Dalai Lama sendi
henni þakkarbréf. Fékk verð-
laun frá Amnesty International.
Var meðal aðalræðumanna á
ráðstefnunni Brilliant Minds.
Meðal annarra aðalræðumanna
má nefna Barack Obama.
Júlí 2019 – Angela Merkel,
kannslari Þýskalands, þakkaði
henni fyrir framlag hennar og
sagði það eiga þátt í að ríkis-
stjórn hennar vinni hraðar að
umhverfis- og loftslagsmálum.
Ávarpaði franska þjóðþingið.
Var á forsíðu Vogue sem ein af
15 áhrifamestu konum heims.
Ágúst 2019 – Hyllt af Hillary
og Chelsea Clinton í bók um
frægar konur.
September 2019 – Breska
tímaritið Prospect segir hana
meðal mestu hugsuða heims-
ins. Hitti Barack Obama. Ávarp-
aði bandaríska þingið. Ávarpaði
loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna.
Leiðin á toppinn
Menntastoðir
Menntastoðir er undirbúningur til áframhaldandi náms og miðar við Háskólabrú Keilis og frumgreinadeildir
við Bifröst og H.R. Einnig má nýta einingar úr Menntastoðum inn í nám í framhaldsskóla s.s. grunn að iðnnámi.
Nýtt ár, ný tækifæri
Nám með minni viðveru en sömu gæðum
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Bára 412 5952 eða á aslaug@mss.is
Þekking í þína þágu
Hristir upp
í hlutunum
Greta Thun-
berg er orðin
heimsþekkt.
M
Y
N
D
IR
: G
ET
T
Y
IM
A
G
ES