Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Síða 56
56 29. nóvember Gamla auglýsingin 22. desember 1983Tímavélin D úettinn Dr. Mister & Mr. Handsome steig fram á sjónarsviðið árið 2006 og hristi allrækilega upp í landsmönnum, þó ekki ávallt á góðan hátt. Sveitin gaf út plötuna Dirty Slutty Hooker Money og urðu mörg lög af plötunni afar vinsæl, þó helst Kokaloca og Is It Love? Það sem vakti þó minni lukku var yrkisefni tvíeykisins, þeirra Ívars Arnar Kolbeinssonar, Dr. Mister, og Guðna Rúnars Gunnarssonar, Mr. Handsome. Þeir sungu helst um kókaín, krakkhórur og kvenfyrirlitningu. Ívar og Guðni báru því ávallt við að Dr. Mister og Mr. Hand­ some væru skáldaðar persónur – að hljómsveitinni hefði verið ætlað að gera grín að klúbba­ menningu sem kennd er við teknósveitina Scooter. „Þetta er bara konseptið á plötunni, við erum að leika karaktera og þeir eru svona djöfulli harðir,“ sagði Ívar í viðtali við Fréttablaðið í júlí árið 2006. „Þetta er bara list, það er flottur glans á þessu og þetta kemur bara mjög vel út, bara út­ úrgott klúbbastöff.“ Listræni parturinn var einnig umdeildur og fékk Dirty Slutty Hooker Money frekar dræma dóma. Vissulega þótti tónlistin grípandi en textarnir frekar slappir. „Ef hljómsveitin gefur sér betri tíma til þess að vinna næstu plötu, og einhvern annan til að sjá um textasmíðarnar, þá eru Dr. Mist­ er & Mr. Handsome meira en fær­ ir um að ná þeim háleitu mark­ miðum sem þeir hafa sett sér,“ skrifaði Atli Bollason í plötudómi í Morgunblaðinu. Í sama dómi furðaði Atli sig á að ekki meira fjaðrafok hefði orðið vegna „ær­ slabelgjanna“ eins og þeir voru oft kallaðir, þeir Ívar og Guðni. „Undirrituðum þykir sér­ kennilegt að platan sem hér er til umfjöllunar skuli ekki hafa hlot­ ið meiri (neikvæða) umfjöllun í formi lesendabréfa og/eða í um­ ræðuþáttum í útvarpi og sjón­ varpi. Kókaín og kvenfyrirlitning eru meginþemun á Dirty Slutty Hooker Money, og hvort tveggja er æskilegt að dómi Dr. Mister og Mr. Handsome. Menn hafa nú verið hengdir í fjölmiðlum fyrir minna.“ „Ætla að djamma þar til ég drepst“ Gagnrýnisraddir urðu þó há­ værari eftir að Ívar birtist á for­ síðu Sirkus, fylgirits Frétta­ blaðsins, undir fyrirsögninni: „Ætla að djamma þar til ég drepst.“ Það viðtal var afar opinskátt, svo vægt sé til orða tekið. Í byrj­ un þess lýsti Ívar ferða­ lagi hljómsveitarinnar til Akureyrar. „Ég er fokking klóraður eftir stelpurnar. Þær voru brjálaður. Ein þeirra runkaði mér baksviðs skömmu áður en fíknó mætti með hund og gómaði einn okkar með dóp. Við enduðum svo í brjál­ uðu eftirpartýi, duttum herfilega í það og flugum svo beint í bæinn til að spila á styrktartónleikum Forma, illa góðir því,“ sagði hann og bætti við að hann væri á föstu – með kókaíni. Þá sagðist hann einnig hafa unnið fyrir sér sem dópsali og neytti stíft fíkniefna. Stuttu áður en viðtalið var tek­ ið var Ívar á Vogi í sex daga en nennti ómögulega að verða edrú. Er blaðamaður spurði hann hvort hann vildi ekki hætta í dópinu stóð ekki á svörunum: „Nei. Þetta er lífið í kringum bandið. Það fylgir þessu veisla og geðveiki. Ég fíla þetta í botn og ætla að halda þessu partýi gang­ andi þar til ég dey.“ Bubbi brjálaður Meðal þeirra sem gagnrýndu við­ talið við Ívar á sínum tíma var tónlistarmaður Bubbi Morthens, sem hefur marga fjöruna sopið. „Ef hann finnur ekki lausn á þessu hefur hann fullan rétt á að drepa sjálfan sig á eiturlyfja­ neyslu,“ sagði hann í samtali við Sirkus nokkru síðar. „Það er nú samt eitthvað sem segir manni að þessi drengur sé mjög firrtur og honum líði ekki vel og allt það. En hann hefur samt fullan rétt til þess að lifa svona.“ Valgerður Pálmadóttir, sem þá var nemi í kynjafræði, gagn­ rýndi Dr. Mister & Mr. Handsome einnig harðlega í Fréttablaðinu. „Það er ekkert sem gefur til kynna að þetta sé grín og þetta er greinilega ekki ádeila. Mér finnst þetta svipað og Snoop Dog, hann var alltaf með örgustu kvenfyrir­ litningu í texta og fólki fannst það bara fyndið og kúl. Svo var hann kærður fyrir hópnauðgun fyrir stuttu síðan. Þetta er greini­ lega meira en húmor,“ sagði hún. Fleiri tóku í sama streng. Sól­ mundur Hólm var hins vegar meðal þeirra sem voru hæst­ ánægðir með músíkina. „Allt sem sagt er er tekið of bókstaflega. Vissulega syngja þeir um kókaín, hórur og skítugar druslur en þegar ég hlustaði á diskinn, þá langaði mig ekki neitt í kókaín, ekki heldur í skítuga hóru eða druslu. Þess í stað lang­ aði mig til að fara út á gólf og dansa eins og mutha fucka,“ skrif­ aði hann í DV. Rándýr pylsa Svo fór að hljómsveitin lagði upp laupana síðla árs 2006. Í frétt Fréttablaðsins var ástæða slit­ anna rakin, en hún tengdist því að hljómsveitin gat ekki spilað á tón­ leikum því Ívar stóð ekki við loforð sitt um að vera edrú. Þá átti Ívar einnig að hafa hirt pening af hin­ um hljómsveitarmeðlimum, sem þá voru orðnir fleiri en þeir tveir, hann og Guðni. Í kjölfarið flutti Ívar til Danmerkur en sneri aftur til Íslands nokkru síðar og stofnaði meðal annars hljómsveitirnar The Musik Zoo og The Krooks. Þá var hann einnig dæmdur fyrir akstur undir áhrifum vímuefna sem og bendlaður við vopnað rán í 10­11. Séð og Heyrt sagði Ívar hafa keypt pylsu fyrir ránsfenginn og farið í meðferð. Síðan þá hefur lítið farið fyrir honum eða sálugu sveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome. n Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is SKILTAGERÐ Ljósakassar Ljósaskil 3D stafir Hönnun Ráðgjöf Uppsetning Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is I Ljósakassar Ljósaskil 3D stafir önnun Ráðgjöf ppsetning Kvenfyrirlitning og kókaín n Dr. Mister & Mr. Handsome komu, sáu, sigruðu og hættu á innan við ári n Umdeilt viðtal við Ívar gerði útslagið Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Plötuumslagið Dirty Slutty Hooker Money var fyrsta og eina plata sveitarinnar. Gerði allt vit­ laust Forsíðuvið- talið við Ívar vakti mikið umtal. Endalok sveitar­ innar Ívar tók peninginn. Umfjöllun Séð og Heyrt Ívar bendlaður við rán.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.