Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Page 4
4 27. september 2019FRÉTTIR
É
g dauðskammast mín. Mér
datt aldrei í hug að ég gæti
orðið ein af þeim sem myndi
lenda í svona. Ég er venju
lega mjög varkár, en þarna hrundi
ég alveg.“
Svo mælir Margrét, kona á sex
tugsaldri, sem vildi ekki koma
fram undir raunnafni, sem tapaði
töluverðum fjárhæðum á auga
bragði í fjárfestasvindli. Hún til
greinir ekki upphæðina, sem hún
segir vera töluverða, sem hún
tapaði sökum þess að hún hefur
ekki enn þorað að segja vinum
sínum og fjölskyldu frá óhapp
inu. Skömmin sé of mikil, en til
stóð hjá henni að koma fjölskyldu
sinni á óvart ef eitthvað hefði ræst
úr tækifærinu.
Íslendingar hafa margir tapað
miklu fé á undanförnum árum í
svonefndum fjárfestasvikum, þar
sem netglæpamenn plata fórnar
lömb sín til að kaupa hlutabréf á
hagstæðu verði með loforði um
að verðgildi þeirra muni rjúka
upp innan skamms. Þegar net
glæpamönnum tekst að hafa fé
af fórnarlömbum sínum þá eru
peningarnir í flestum tilfellum
tapaðir.
Fræga fólkið innsiglaði svindlið
Margrét er annars vegar mennt
uð í viðskiptafræði og segist vera
kunnug Bitcoinsvindli, en að
umrætt ávöxtunartækifæri hafi
henni þótt fulltraust og sannfær
andi til að vera í líkingu við raf
myntarsvindl. Hún segir sann
færandi auglýsingaherferð
svindlaranna, þar sem notast var
við fræga einstaklinga – erlenda
sem innlenda – hafa sannfært
hana um lögmæti fjárfestingar
innar. Í fyrra vakti falsfrétt athygli
víða þar sem hermt var að af
hafnamaðurinn Björgólfur Thor
hefði grætt 250 milljarða króna
með rafmyntinni. Kom síðar í ljós
að það var hluti af svikaherferð,
en Margrét sagðist einmitt hafa
látið blekkja sig af því að nafn
auðkýfingsins og margra fleiri
þekktra einstaklinga hefðu verið
kennd við síðuna þar sem hún lét
blekkjast.
Margrét skráði sig inn á vefinn
Economist, fékk símtöl daglega
frá svonefndum ráðgjöfum verð
bréfamarkaðarins Aspen Holding
og hafi þeir hvatt hana til að
greiða meira fé sem myndi marg
faldast, að hægt væri að fylgjast
með þróun og gengi alls í gegn
um vefinn.
„Það virtist ekki vera nein til
gerð yfir þessu. Það voru afar
kurteisir og sannfærandi menn
sem tóku fram að um ekkert
svindl væri að ræða. Ég var sjálf
hikandi, því þeir vildu fá að sjá
vegabréfið mitt, en það voru einu
skilríkin sem dugðu alþjóðlega,“
segir Margrét. Hún hugðist kaupa
hlutabréf og selja þau skömmu
síðar, en ráðgjafarnir hefðu ekki
leyft henni að leysa út fjárhæðina
þegar hún vildi gera það. Þeir
sögðu að allt væri í vinnslu og
tæki sinn tíma. Fyrr en varði voru
nokkrir mánuðir liðnir og bólaði
hvorki á svörum né peningum
Margrétar. Hún hvetur Íslendinga
til þess að halda sig fjarri öll
um tækifærum sem þessu og
brýnir fyrir fólki að svona svindl
verði sífellt háþróaðra og meira
úthugsað. „Þetta er stórhættulegt
og ég er miður mín yfir þessu.“
Verið vakandi
Þórir Ingvarsson, lögreglufulltrúi
hjá Lögreglunni á höfuðborgar
svæðinu, sagði í viðtali við DV
fyrir stuttu að erfitt væri að hafa
hendur í hári netþrjóta þar sem í
langflestum tilvikum væri um að
ræða erlenda einstaklinga.
„Fólk leitar talsvert til okkar,
bæði til þess að fá upplýsingar
eða leita ráða varðandi áhyggjur
sínar. Svo eru alltaf einhverj
ir sem hafa látið blekkjast og
borgað, þeir koma þá til okkar
og vilja kæra, það er allur gang
ur á þessu,“ sagði Þórir og bætti
við að ekki væri hægt að slá því
föstu hvaða þjóðfélagshópar láti
oftast glepjast. „Mín ráð eru fyrst
og fremst þau að brýna fyrir fólki
mikilvægi þess að vera vakandi
fyrir öllu svona og gæta þess að
vera gagnrýnið á þau gögn sem
berast. Leggja alls ekki inn pen
inga á einhvern reikning nema að
vel ígrunduðu máli og ef það á að
greiða fjármuni að greiða þá með
viðurkenndum leiðum.“ n
Sögulegt fall vonarstjörnu?
E
flingardramað á dögunum
hefur verið eins og eitt
hvað úr lélegri sápuóperu,
sem tekur reglulega upp
þráðinn á opnum vettvangi til
að landsmenn veltist um af sí
endurtekinni undrun. Það hefur
verið með ólíkindum að fylgjast
með fólki sem á að teljast full
orðið missa svona stjórn á skapi
sínu, eins og undanfarin dæmi
hafa sýnt – bæði stjórnmálafólk
og fyrrverandi starfsmenn. En
formaðurinn í stjórn er trúlega
versta brotamanneskjan í þessu
öllu.
Ekki man Svarthöfði hvenær
síðasta táknmynd jafnmikillar
vonar og breytinga var eins fljótt
komin í súginn og formaður Efl
ingar, Sólveig Anna Jónsdóttir.
Það voru mikil tímamót í mars
á síðasta ári þegar hún tók við
formennsku í stéttarfélaginu en
aldrei hafði áður verið kosið um
nýjan formann. Það var löngu
kominn tími á nýtt blóð, ný tæki
færi, en þá fengum við Sólveigu
eftir að hún hlaut yfirburðasigur
í stjórnarkosningunum.
Möguleikar Sólveigar voru
ótakmarkaðir og reyndist það
vera súrsætur sigur fyrir konu
sem átti að vera tákn almúg
ans þegar stór hluti stjórnunar
innar gengur út á að hrökkva í
vörn þegar háttsemi Eflingar er
tekin fyrir. Sólveig hefur hvað
eftir annað sagt boðskap sinn
byltingarkenndan meðal annars
á Facebook, 21. október 2018,
þegar hún hrópaði „… kallið mig
byltingarkonu, í guðanna bæn
um! Megi þá helvítis byltingin
lifa.“
Til að bæta gráu ofan á svart
skrifar formaðurinn hverja rit
gerðina á fætur annarri á sam
félagsmiðlum til að blása á allar
kjaftasögur sem fjúka í átt til
hennar, eða almenna gagnrýni
sem á rétt á sér. Svarthöfði hef
ur alltaf gaman af hvössum for
mönnum innan marka en þegar
penninn er kominn á loft hjá
Sólveigu er hættulega stutt í að
jafnaðargeðið hverfi út fyrir völl
inn. Uppstökk hegðun rennur
kannski í ættinni þegar faðir við
komandi er frægur kommúnisti
sem hélt uppi skýrum vörnum
fyrir Stalín.
Ráð Svarthöfða fyrir Sólveigu
er að kæla ofsann, anda dýpra og
sleppa uppnefnum. Það eru nú
börn á meðal vor. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Hundar eru með greind á við 2 ára barn.
Á meðalævi mun hjartað dæla næstum
1,5 milljónum tunna af blóði sem er nóg
til að fylla 200 tankbíla.
Það tekur líkamann um 12 klukku-
tíma að melta máltíð til fulls.
Í Japan er það talið vera góðs viti ef
súmóglímukappi grætir barnið þitt.
Hver er
hún
n Hún er fædd
í Reykjavík 4.
október árið 1942.
n Faðir hennar var
forstjóri Trygginga-
stofnunar ríkisins.
n Hún starfaði sem flugfreyja hjá
Loftleiðum um tíma.
n Einnig sinnti hún starfi sem
skrifstofumaður í Kassagerð
Reykjavíkur 1971–1978.
n Árið 2009 valdi Forbes hana á
lista yfir 100 valdamestu konur
heims.
SVAR: JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
„Þarna
hrundi
ég alveg“
n Margrét lét blekkjast af frægu fólki n Tapaði stórfé í svikamyllu„Ég dauðskammast mín.
Mér datt aldrei í hug að
ég gæti orðið ein af þeim sem
myndi lenda í svona.
Í áfalli Margrét skammast sín.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is