Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 18
18 27. september 2019FRÉTTIR
Brynjólfur John Gray - Svíþjóð
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 3
Brynjólfur John Gray var árið 2004 dæmdur í þriggja ára
fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðisbrot
gegn tveimur dætrum sínum og vinkonu þeirra.
Dætur Brynjólfs eru fæddar árið 1984 og 1988 og
vinkona þeirra árið 1989. Brotin áttu sér stað á árunum
1996 og 1997, og 2002 og 2003, á heimili hans og í sum
arhúsi móður hans.
Brynjólfur var sakfelldur fyrir að hafa káfað á kyn
færum stúlknanna og reynt að hafa við þær samræði.
Hæstiréttur taldi hins vegar ekki sannað að hann hefði
haft samræði við vinkonu dætra hans og var dómurinn
styttur niður í tvö ár og sex mánuði.
Brynjólfur er í dag búsettur í Linköping í Svíþjóð.
Sigurbjörn Sævar Grétarsson - Svíþjóð
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 5
Sigurbjörn Sævar Grétarsson var árið 2004 dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kyn
ferðisbrot gegn fimm drengjum á aldrinum 12–14 ára. Sigurbjörn starfaði sem lög
reglumaður á Patreksfirði, auk þess sem hann starfaði í félagsmiðstöð bæjarins. Þá
starfaði hann einnig sem gangavörður í grunnskólanum og sinnti meðal annars
baðvörslu hjá drengjum.
Brotin áttu sér stað á árunum 2002–2004. Sigurbjörn var ákærður fyrir brot gegn
sjö drengjum en aðeins sakfelldur fyrir brot gegn fimm þeirra. Í heildina níddist
Sigurbjörn á piltunum í 70 skipti. Árið 2007, rétt áður en hann lauk afplánun á Litla
Hrauni keypti Sigurbjörn íbúð í Vallahverfinu í Hafnarfirði, í sama stigagangi og
fjöldi barna sótti dagvistun.
DV greindi frá því á sínum tíma að andrúmsloftið í blokkinni hefði breyst til hins
verra eftir að Sigurbjörn flutti inn. Börn væru aldrei ein á gönugunum og fólk væri
almennt vart um sig.
Sigurbjörn Sævar er í dag skráður með lögheimili í Svíþjóð og býr samkvæmt
heimildum DV í Borlänge.
Sigurður Adolfsson (Leo Ros Sigurður
Kjartansson) - Svíþjóð
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 1
Sigurður Adolfsson var dæmdur í fangelsi í Svíþjóð árið
2012 fyrir að brjóta kynferðislega á dóttur sinni. Brot
in stóðu yfir um árabil. Sigurður var dæmdur í eins og
hálfs árs fangelsi á lægsta dómstigi, en dómurinn var
mildaður í eitt ár hjá áfrýjunardómstól.
Sigurður heitir í dag Leo Ros Sigurður Kjartans
son. Hann var seinast skráður til heimilis í smábænum
Lammhult í Svíþjóð.
Robert Downey (áður Róbert Árni
Hreiðarsson) - Spánn
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 5
Róbert Árni Hreiðarsson lögmaður kallar sig Robert
Downey nú í dag. Árið 2008 var hann dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum á
aldrinum fjórtán til fimmtán ára. Robert setti sig í sam
band við stúlkurnar með blekkingum, meðal annars með
því að notast við nöfnin „Árni“ og „Robbi“. Þá greiddi
hann tveimur þeirra fyrir kynmök. Hann var með nöfn
335 kvenna á skrá hjá sér og við nöfnin hafði hann skrifað
aldur þeirra. Hann notaði jafnframt MSNspjallforritið til
að tæla ungar stúlkur undir fölsku flaggi, en hann þótt
ist vera sautján ára strákur. Robert var einnig dæmdur
fyrir vörslu barnakláms, en á heimili hans fundust fimm
myndbandsspólur og ríflega hundrað ljósmyndir á tölvu
hans sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn
hátt. Robert hélt áfram brotum sínum eftir að honum var
kunnugt um að hann væri grunaður um kynferðisbrot
gagnvart einum brotaþolanum.
Árið 2017 var greint var frá því að Robert hefði fengið
uppreist æru frá innanríkisráðuneytinu og að Hæstiréttur
hefði staðfest að svipting réttinda hans til lögmannsstarfa
væri felld niður. Í kjölfarið var Robert kærður af sjöttu
stúlkunni.
Í október 2017 greindi DV frá því að Robert byggi
í glæsilegu einbýlishúsi í La Marina sem er skammt
frá Torrevieja. Fram kom að hann kæmi reglulega á
samkomur á sundlaugabar í La Marina, og að samland
ar hans teldu sig ekki sjá mikla iðrun hjá honum. Sam
kvæmt heimildum DV hefur lögreglunni í La Marina ver
ið gert viðvart um Robert og fortíð hans.
Hlynur Freyr Kristjánsson - Danmörk
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 2
Hlynur Freyr Kristjánsson var árið 2007 dæmdur í tveggja
og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur
stúlkum, fimm og níu ára. Hann var einnig dæmdur fyrir
vörslu á grófu barnaklámefni og var fjöldi myndanna yfir
1.000 talsins.
Hlynur lokkaði yngri stúlkuna inn í skúr á leiksvæði í
Vogahverfi þar sem hann braut á henni. Hinni stúlkunni
sýndi hann klámmynd. Hlynur var einnig ákærður fyrir
að hafa sýnt fimm ára stelpu kynfæri hans og fyrir að hafa
sýna ungri stelpu klámfengna ljósmynd og áreita hana
með því að spyrja hana hvort hún vildi sjá kynfæri hans.
Hann var hins vegar sýknaður af þessum tveimur ákæru
liðum. Geðlæknir greindi Hlyn með barnagirnd, en hann
var talinn sakhæfur.
Hlynur Freyr er í dag skráður í Þjóðskrá sem Daníel
Kristjánsson. Hann er með lögheimili í Danmörku.
Ágúst Magnússon - Danmörk
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 6
Ágúst Magnússon hlaut fimm ára fangelsisdóm árið 2004 fyrir gróf og ítrekuð kyn
ferðisbrot gegn sex ungum drengjum og fyr ir að hafa í vörslu sinni mynd bands
spól ur, DVDmynddiska, ljós mynd ir og hreyfi mynda skrár sem sýna börn á kyn
ferðis leg an og klám feng inn hátt. Dómurinn er einn sá þyngsti sem fallið hefur í
slíku máli hér á landi.
Í skýrslu sálfræðings kom fram að Ágúst „væri haldinn alvarlegri barnagirnd og
með þráláta kynóra, og réði ekki við þessar kenndir sínar.“ Það væri því hætta á að
hann myndi endurtaka brot sín. Ríkissaksóknari fór á sínum tíma fram á að Ágúst
yrði beittur öryggisráðstöfunum að refsivist lokinni og vistaður á stofnun, en dóm
ari féllst hins vegar ekki þá kröfu.
Veturinn 2006 fékk Ágúst leyfi Fangelsismálastofnunar til að flytja af LitlaHrauni
á áfangaheimilið Vernd, þar sem hann hafði aðgang að tölvu með nettengingu. Á
meðan hann dvaldi á Vernd gekk hann í gildru fréttaskýringaþáttarins Kompáss
þegar hann gerði tilraun til þess að nálgast þrettán ára stúlku í gegnum vefsíðuna
einkamál.is. Afhjúpun Kompáss leiddi meðal annars til þess að hætt var að vista á
Vernd kynferðisglæpamenn sem hafa brotið gegn börnum.
Ágúst fékk reynslulausn eftir að hafa afplánað þrjú ár af fimm ára dómi en þurfti
að tilkynna reglulega um ferðir sínar og var einnig meinað að koma nálægt ákveðn
um stöðum þar sem börn voru.
Samkvæmt heimildum DV er Ágúst búsettur í Danmörku í dag. Hann hefur skipt
um nafn og heitir í dag Janus T. Bergland Fanneyjarson.