Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 25
Jóla- og villibráðahlaðborð27. september 2019 KYNNINGARBLAÐ
SUMAC:
Krydduð jólastemning
Sumac er notalegur veitingastaður sem býður upp á skemmtilegan mat sem er
kryddaður með kryddum frá Norður-
Afríku. Staðurinn býður upp á marga
skemmtilega rétti sem tilvaldir eru
fyrir vinahópa til að deila.
Innblástur frá Afríku
Sumac heitir eftir djúprauðum
villiberjum sem vaxa víða í Mið-
Austurlöndum og við Miðjarðarhaf.
Matseldin á Sumac er innblásin
af seiðandi stemningu frá Beirút
í Líbanon og tælandi áhrifum frá
Marokkó. Á staðnum er ferskt hráefni
úr íslenskri náttúru, matreitt undir
áhrifum Mið-Austurlanda og á
matseðlinum eru eldgrillaðir réttir
með framandi kryddi.
Á barnum er
Miðjarðarhafsstemning og í boði
eru ferskir, fjölbreyttir og freistandi
kokteilar. Á vínseðlinum blandast
saman innblástur frá Evrópu,
Marokkó og Líbanon.
Kryddaðu upp á jólin
Sumac er kjörinn staður til að
borða skemmtilegan jólamat með
kryddum frá Norður-Afríku og fá
í leiðinni smá Miðjarðarhafshita
í sálina. Í ár verða margir nýir og
skemmtilegir réttir í boði, en þar
má nefna meðal annars hægeldað
lamb kryddað með kryddum frá
Norður-Afríku, sem og margt annað
gómsætt og girnilegt.
Sumac hefur verið mjög vinsæll
frá því hann var opnaður, bæði
meðal Íslendinga og ferðamanna,
og einn þeirra er kokkurinn og
sjónvarpsstjarnan Gordon Ramsay
sem lofaði staðinn í hástert, þegar
hann borðaði þar í júlí síðastliðinn.
Deildi hann mynd frá staðnum á
Instagram, en þar er hann með 4,6
milljónir fylgjenda.
Borðapantanir eru á heimasíðunni
sumac.is og í síma 537-9900.
Einnig er kjörið að gefa
gjafakort frá Sumac, en þau er
hægt að kaupa á sumac.is eða á
staðnum, að Laugavegi 28.