Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 2
ABBA æðið hafiðVeður
Gengur í suðvestan storm eða rok
með éljagangi í dag, jafnvel ofsa-
veðri á annesjum norðvestan til. Hiti
nálægt frostmarki. Sjá Síðu 56
24.–28. mars
Flogið með Icelandair
Páskar í Dublin
Á mann m/v 2 í herberg í 4 nætur með morgunverði.
*Verð án Vildarpunkta frá 69.900 kr.
Verð frá
og 12.500 Vildarpunktar
59.900 kr.*
Hótel Mespil
Reykjavík Snaps við Óðinstorg
og Jómfrúin í Reykjavík hyggja á
samstarf en bíða samþykkis Sam-
keppniseftirlitsins.
„Þetta er í bígerð, við höfum verið
að stinga saman nefjum og bíðum
endanlegrar niðurstöðu Sam-
keppniseftirlitsins,“ segir Sigurgísli
Bjarnason, annar stofnenda Snaps.
Snaps var opnaður árið 2012 af
þeim Sigurgísla og Stefáni Melsted.
Jómfrúin fagnar 20 ára afmæli í ár og
eigendur staðarins eru Jakob Einar
Jakobsson og Birgir Bieltvedt.
Sigurgísli segir standa til að
félögin að baki stöðunum verði
áfram rekin hvort í sínu lagi en sam-
einist undir einum hatti þar sem
leiðandi fjárfestir er eignarhalds-
félagið Eyja fjárfestingafélag ehf. Það
félag er í eigu Birgis og Eyglóar Kjart-
ansdóttur. Breytingarnar muni ekki
hafa áhrif á starfsfólk eða matar gerð
nema að því leyti að rekstur beggja
staða verði efldur.
„Félögin sameinast undir einum
hatti en staðirnir verða reknir sér,
við viljum halda í sérkenni þeirra en
efla þá báða. Það verða engar breyt-
ingar í matargerðinni, við eigum
svipaðan kúnnahóp og höfum einn-
ig líka sýn á matargerð. Jakob er öllu
vanur í Jómfrúnni og hefur verið þar
í mörg ár,“ segir Sigurgísli.
Að sögn Sigurgísla verða þeir
Stefán áfram á Snaps og nýta krafta
sína og sérþekkingu. Byggja eigi
báða staði enn frekar upp.
„Hvernig það verður gert verður
að koma í ljós á næstu vikum en
nú er til dæmis opið á Jómfrúnni á
kvöldin, fimmtudags-, föstudags- og
laugardagskvöld,“ segir Sigurgísli.
Stefán segir þau gildi sem hann
hefur haft að leiðarljósi í matargerð
enn höfð í heiðri. „Við höfum alltaf
verið með einfaldan mat á mat-
seðlinum en lagt allt í gæðin. Við
gerum matinn frá grunni og styttum
okkur ekki leið í matargerðinni. Við
höldum því áfram.“
Snaps rekur einnig elstu smur-
brauðsþjónustu landsins, Brauðbæ,
sem hefur verið starfandi síðan árið
1965. „Við sjáum tækifæri í því að
efla veisluþjónustuna, segir Stefán.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Jómfrúin og Snaps vilja
vera undir einum hatti
Snaps og Jómfrúin bíða samþykkis Samkeppniseftirlitsins og hyggja á samstarf.
Félögin sameinast en veitingastaðirnir verða reknir hvor í sínu lagi. Stofnendur
Snaps halda áfram um tauma þar og sömuleiðis annar eigandi Jómfrúarinnar.
Leikararnir Unnur Ösp Stefánsdóttir, Helgi Björnsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir léku á als oddi baksviðs rétt fyrir frumsýningu á söngleiknum
Mamma Mia! í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Fréttablaðið/anton brink
Það verða engar
breytingar í matar-
gerðinni, við eigum svipaðan
kúnnahóp og höfum einnig
líka sýn á matargerð.
Sigurgísli Bjarnason,
annar stofnenda Snaps
koSningaR Aukinn þrýstingur er á
Ólaf Jóhann Ólafsson, rithöfund og
aðstoðarforstjóra Time Warner, að
gefa kost á sér í forsetaframboð.
Fjölmargir hafa sent Ólafi hvatn-
ingu beint, eftir traustum heimildum
fréttastofu. Ólafur hefur svarað með
þeim orðum að hann meti hvatning-
una mikils og muni hugleiða málið.
Hvatning kemur ekki síst frá fólki
sem vill ekki að næsti forseti verði
pólitískur og fólki sem telur að hann
geti endurvirkjað embættið sem
sameiningartákn þjóðarinnar. – kbg
Ólafur Jóhann
skoðar framboð
Ólafur Jóhann
hugsar málið.
SvíÞjÓð Muhammed Tahsin, sem
kjörinn var leiðtogi Kristilega
demókrataflokksins í Eskilstuna í
Svíþjóð á laugardaginn fyrir viku,
er múslimi.
Í kjölfar frétta af kjöri Muhamm-
eds Tahsin hefur hann sætt ofsókn-
um á samfélagsmiðlum. Sumir
kváðust óttast að múslimar tækju
stjórn bæjarins í sínar hendur.
Flokksfélagar formannsins hafa
hins vegar lýst yfir stuðningi við
hann og einnig ýmsir einstaklingar.
Sjálfur bendir Tahsin á að trú
flokksfélaganna skipti ekki máli,
heldur stefna þeirra. Í viðtali við
Eskilstuna Kuriren kveðst hann
undrandi á vanþekkingu fólks. „Það
tekur orðinu lýðræði sem gefnu og
telja sig geta niðurlægt og sært aðra
eins og því sýnist,“ segir Tahsin við
Eskilstuna Kuriren. – ibs
Múslimi leiðtogi
kristilegs flokks
veðuR Búast má við asahláku á
morgun þegar kröpp lægð gengur
til norðurs rétt vestan við landið
með miklum hlýindum. Veður-
stofan ráðleggur fólki að fylgjast
með niðurföllum og gera viðeigandi
ráðstafanir.
Önnur lægð er væntanlega nú
þegar byrjuð að angra landsmenn
með leiðindaveðri, suðaustan roki
og rigningu.
Að sögn veðurfræðings á Veður-
stofu Íslands fylgja fyrri lægðinni
þó ekki jafn mikil hlýindi og þeirri
seinni, og á milli þeirra kólnar
nokkuð á landinu þegar áttin snýst
til suðvesturs upp úr hádegi í dag
með slydduéljum og síðar éljum. – gb
Asahláka
um helgina
Hugað að niðurföllum.
Fréttablaðið/anton brink
Veitingamennirnir Stefán Melsted og Sigurgí sli bjarnason kampakátir á Snaps við
Óðinstorg. Fréttablaðið/anton brink
1 2 . m a R S 2 0 1 6 L a u g a R D a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a B L a ð i ð