Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 102
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts hetjunnar okkar,
elskandi eiginmanns, sonar, bróður,
dóttursonar og tengdasonar,
Kára Arnar Hinrikssonar
blaðamanns,
Hjallahlíð 25, Mosfellsbæ.
Við þökkum ykkur öllum sem hafið tekið þátt í sorg okkar,
sýnt stuðning í verki og heiðrað minningu Kára Arnar.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð
ljóssins í lífi hans, 0549-14-401696, kt. 220991-2539.
Júlíana Haraldsdóttir
Erna Arnardóttir Hinrik Gylfason
Halla Margrét Hinriksdóttir
Halla Mjöll Hallgrímsdóttir Örn Harðarson
Ingibjörg Einarsdóttir Haraldur Júlíusson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru
eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu,
Lilju Júlíusdóttur
Fagrabæ 6.
Sveinbjörn Runólfsson
Sigrún Sveinbjörnsdóttir S. Rúnar Bragason
Runólfur Sveinbjörnsson Soffía Gunnarsdóttir
Heiða Rún, Arnar Máni, Lilja Rún og Sveinbjörn
Systir mín,
Guðný Kristín Helgadóttir
Sóltúni 13, Reykjavík,
er látin. Útför hennar hefur farið fram.
Hanna Þyri Helgadóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Ellert Svavarsson
Tjarnabakka 12,
Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
2. mars sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum veittan stuðning og hlýhug.
Ólafía G. Guðmundsdóttir (Stella)
Anna Bára Gunnarsdóttir Guðbjörn Hafsteinsson
Svavar Guðni Gunnarsson Lísa Bryndís Matthews
Rakel Linda Gunnarsdóttir Viðar Jónasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Erla Thorarensen
áður Klöpp, Sandgerði,
Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ,
lést 3. mars sl. á heimili sínu.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Einar Valgeir Arason
Lína María Aradóttir Ólafur Eyfjörð Pálsson
Ari Haukur Arason Anna María Hilmarsdóttir
Jón Örvar Arason
Viðar Arason Unnur Sveindís Óskarsdóttir
Hrannar Þór Arason María Elfa Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir samúð, vináttu,
hlýjar kveðjur og þá virðingu sem
þið sýnduð vegna andláts og
útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Lilju Sveinsdóttur
kennara, frá Vestmannaeyjum,
búsettri í Neðri Hundadal, Dalabyggð.
Sendum þakkir til Silfurtúns fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Hjartardóttir Helgi Reynisson
Sigursteinn Hjartarson María G. Líndal
Kristín Lára Hjartardóttir Jóhann Hreggviðsson
Signý Harpa Hjartardóttir Axel Hafsteinn Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndislegur eiginmaður minn, pabbi
okkar, tengdapabbi, afi og langafi,
Páll Helgason,
tónlistarmaður,
Reykjavegi 59, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
5. mars. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 15. mars kl. 13.00.
Bjarney Einarsdóttir
Helgi Pálsson Guðrún Þórarinsdóttir
Einar Pálsson
Anita Pálsdóttir Róbert Axel Axelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir sendum við þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýju við
andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Ásdísar Kristjánsdóttur
(Haddý)
Ólafur Haukur Ólafsson Sigurbjörg H. Gröndal
Kristján Már Ólafsson
Ásdís Katrín Ólafsdóttir Pål O. Borgen
Sigríður Edda Ólafsdóttir Magnús Jón Sigurðsson
barnabörn og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, dóttir og systir,
Lilja Kúld
Huldubraut 5, Kópavogi,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 8. mars. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 18. mars kl. 13.00.
Jóhann Hafnfjörð Rafnsson
Kristína Aðalsteinsdóttir
Björn Halldór Helgason
Guðrún Lilja Skúladóttir
Guðný Kúld
Þorsteinn Kúld
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
„Rammíslenskt, vel skrifað og fallegt en ekkert barnaverk að spila,“ segir Guðný um æskuverkin hans Jóns. FRéttablaðið/SteFán
Hann Jón Nordal nýtur þess í dag að hlýða á nýfundna tónlist sem hann samdi á 17. ári. Strengjasveit undir stjórn Guðnýjar
Guðmundsdóttur flytur hana og fleiri
meistaraverk í Seltjarnarneskirkju. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 17.
„Ég var beðin að hafa strengjasveit við
Listaháskólann í haust og fannst upplagt
að flytja eitthvað eftir Jón Nordal tón-
skáld af því hann er níræður um þessar
mundir,“ segir Guðný og lýsir því hvernig
hún komst í tæri við tvö æskuverk Jóns.
„Ég rakst á Jón á förnum vegi og spurði
hann hvort hann ætti eitthvað bara fyrir
strengi. Þá kom svolítið skemmtilegur
svipur á hann og hann svaraði: „Þegar
ég var unglingur skrifaði ég einhver verk
fyrir strengi en þau eru löngu týnd.“
Ég þráaðist við og spurði: „Heldurðu
þú getir ekki fundið þau?“ „Ég veit það
ekki,“ svaraði hann. „Þau eru örugglega
ekki nógu góð.“ En ég lét hann ekki í friði
og það var svo milli jóla og nýárs sem
Jón hringdi í mig og sagðist hafa fundið
nóturnar svo ég mætti til meistarans
upp úr áramótum og þar voru þá þessi
gulnuðu nótnablöð sem maður þorði
varla að koma við. Við fundum þar tvö
heilleg verk sem hann samdi 1943. Mér
tókst að koma handritunum heim án
þess að þau hryndu í sundur, ljósritaði
þau og fékk tónsmíðanema í Listaháskól-
anum til að tölvusetja nóturnar. Verkin
eru byggð á íslenskum þjóðlögum, annað
á laginu Svíalín og hrafninn og hitt er í
sama ryþma og Hani krummi hundur
svín. Rammíslenskt, vel skrifað og fallegt
en ekkert barnaverk að spila.“
Fleira er á dagskrá TónaListar. „Það
má segja að við séum með Jón Nor-
dal, Bartok og björtustu vonina,“ segir
Guðný glaðlega. „Við ætlum að flytja
hina frægu Chaconnu eftir Bach sem var
skrifuð fyrir einleiksfiðlu en Bjarni Frí-
mann Bjarnason, sem var valinn bjart-
asta vonin nýlega, vippaði yfir í verk
fyrir fiðlur og víólur. Svo erum við með
Divertimento eftir Bartók og tvo áheyri-
lega þætti úr Serenöðu fyrir strengi eftir
austurríska tónskáldið Fuchs.“
Guðný kveðst upp með sér af því að
eiga þátt í að finna verkin hans Jóns. „Í
hljómsveitinni okkar er fólk á svipuðum
aldri og hann var þegar hann samdi
verkin. Meira að segja eitt barnabarn
hans.“ gun@frettabladid.is
Þessi gulnuðu nótnablöð
Tvö nýfundin verk frá 1943 eftir hinn níræða Jón Nordal tónskáld eru á efnisskrá strengja-
sveitarinnar TónaList, undir stjórn Guðnýjar Guðmundsdóttur, í Seltjarnarneskirkju í dag.
Mér tókst að koma
handritunum heim án
þess að þau hryndu í sundur,
ljósritaði þau og fékk tónsmíða-
nema í Listaháskólanum til að
tölvusetja nóturnar.
1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r50 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð