Fréttablaðið - 12.03.2016, Qupperneq 56
Torfan Humarhúsið óskar eftir
að ráða starfsmenn í sal
Torfan//Humarhúsið er veitingahús með mikla sögu í miðbæ
Reykjavíkur. Við leitum eftir duglegu starfsfólki í sal.
Bæði framtíðar og hlutastarf í boði með sveigjanlegum vöktum.
Um er að ræða fjölbreytt þjónustustarf bæði í hádeginu og á
kvöldin.
Viðkomandi þarf að vera eldri en 18 ára, duglegur,
snyrtilegur, ábyrgur og með ríka þjónustulund.
Íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Umsóknir sendist á
info@torfan.is
Vantar þig starfsfólk
Bresland hefur milligöngu um að finna og aðstoða við
ráðningu á starfsfólki frá Póllandi, sjá www.bresland.eu
Vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn (á ensku) á
info@bresland.eu ef þú vilt leita nánari upplýsinga um
þessa þjónustu.
Einnig er fyrirspurnum svarað í síma 775 4350.
Hitastýring hf. er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu,
uppsetningu og þjónustu á hita- og loftræstikerfum, kælikerfum
fyrir gagnaver, tölvu og tæknirými, rakakerfum, hússtjórnar-
kerfum og ýmiskonar iðnaðarsjálfvirkni.
Óskum eftir að ráða
Rafvirkja
Starfssvið:
- Reglubundið eftirlit loftræsti- og kælikerfa
- Uppsetning á loftræsti- og kælikerfum
- Viðhald og þjónusta
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði kælitækni og/eða rafvirkjunar
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar gefur Helgi Sverrisson
sími: 552-2222 netfang: helgi@hitastyring.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum m.a. vegna langvinnra sjúkdóma. Starfsemi heimahjúkrunar er ört vaxandi og er starfið mjög fjölbreytt og gefandi.
Hjúkrunarfræðingur / sjúkraliði tekur þátt
í teymisvinnu þar sem hjúkrunarþarfir
skjólstæðingahópa eru hafðar að leiðarljósi.
Viðkomandi mun hafa bifreið til afnota
á vinnutíma.
Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi / sjúkraliðaleyfi
Reynsla af heimahjúkrun / hjúkrun
aldraðra æskileg
Framúrskarandi samskiptahæfni
Faglegur metnaður
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
Gilt ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Stéttarfélög eru Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag Íslands.
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
PO
R
T
ön
nu
n
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
í heimahjúkrun - sumarafleysingar
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum til
sumarafleysinga fyrir sameinaða heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði,
Garðabæ og Kópavogi. Um tímabundin störf í vaktavinnu er að ræða. Til greina kemur að
ráða hjúkrunar- og sjúkraliðanema. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1.júní eða eftir nánara
samkomulagi. Starfshlutfall er 60–80%.
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2016.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar
um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum
við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is), undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is).
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Aðalheiður Pálmadóttir, yfirhjúkrunarfræðingur -
sigridur.a.palmadottir@heilsugaeslan.is - 594-0500
Starfsemi heimahjúkrunar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á samfellu í hjúkrun, teymisvinnu
og náið samráð við aðstandendur. Um er að ræða spennandi starfsvettvang fyrir hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða sem áhuga hafa á þróun heimahjúkrunar í nýrri einingu. Nánari upplýsingar um starfsemi og
markmið heimahjúkrunar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Hjá Icelandair hótelum starfar úrvalshópur með
sameiginleg markmið þar sem borin er virðing
fyrir gestum og samstarfsmönnum. Icelandair
hótelin leggja áherslu á samvinnu, ábyrgð og
frumkvæði í starfi ásamt vilja til að takast á við
krefjandi verkefni. Nýir starfsmenn fá vandaða
kynningu á fyrirtækinu og fara í gegnum
markvissa þjálfun til þess að geta tekist á við störf
sín af öryggi. Unnið er að stöðugri framþróun og
starfsmönnum veitt tækifæri til vaxtar og þroska
í starfi.
leitar af öflugum liðsmönnum í eftirfarandi störf:
• Vaktstjórar í sal
• Framreiðslumenn
• Þjónusta í veitingasal
• Starfsfólk í morgunverð
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingum með brennandi áhuga á þjónustustörfum.
Nánari upplýsingar um starfssvið og hæfniskröfur má finna á www.icelandairhotels.is en umsóknir
skulu jafnframt berast í gegnum heimasíðuna.
Viðkomandi starfsmenn þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2016.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Birgir Guðmundsson, hótelstjóri: birgirgu@icehotels.is
Hrefna Sif Gunnarsdóttir, verkefnastjóri: hrefnasg@icehotels.is
Icelandair hótel eru leiðandi keðja gæðahótela á Íslandi og reka nú alls 21 hótel undir fjórum ólíkum vörumerkjum;
Icelandair Hotels, Eddu hótelin, Hilton Reykjavík Nordica og Canopy Reykjavík.
Hjá félaginu starfa rösklega 700 manns.