Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 100
Ég er búin að vera hérna í fimm ár og þegar ég kom hingað fyrst gat ég valið um húsnæði en það er ekki svoleiðis hér núna. Það er alveg virkilega gaman
að vera þátttakandi í breytingunum,“
segir fathönnuðurinn Steinunn Sigurð-
ardóttir en fyrirtækið hennar, STEiN-
UNN, fagnar í ár fimmtán ára afmæli og
er eigandinn að vonum ánægður með
áfangann. Fyrirtækið er staðsett úti á
Granda þar sem mikil uppbygging hefur
átt sér stað á síðustu árum.
Steinunn hefur haldið til haga öllu
því sem hún hefur hannað í gegnum
árin. „Ég á hverja einustu flík sem ég hef
hannað og gert prótótýpur af. Ég geymi
þetta að sjálfsögðu á góðum stað,“ segir
Steinunn leyndardómsfull. Geymslan
var við það að sprengja utan af sér og
nýtti Steinunn tilefnið til þess að líta yfir
farinn veg. „Ég fór í skjalasafnið mitt og
náði í það sem stóð upp úr og vann mig
í gegnum það, ég skoðaði líka flíkur sem
mér fannst ljótar á sínum tíma. Það er
alltaf gott að horfa á sitt eigið „vanity“ og
líta yfir farinn veg, sigra og erfiða tíma.“
Í tilefni af afmælinu horfir hún til baka
og setur upp sýningu í húsakynnum
fyrirtækisins með innsetningu þar sem
er blandað saman nokkrum tjáningar-
formum, textíl, tísku, list og ljósmyndum
og auk þess gaf eigandinn fyrirtækinu
sérstaka gjöf í tilefni af tímamótunum.
„Ég gaf fyrirtækinu í afmælisgjöf svokall-
að Home Collection sem stendur saman
af púðum og teppum. Þetta er stærsta lína
sem ég hef gert hingað til og það var bara
af því að ég átti afmæli,“ segir hún glöð
og er fljót að svara játandi þegar hún er
spurð að því hvort síðastliðin fimmtán ár
hafi liðið hratt. „Þau hafa flogið hjá, það
er einhvern veginn alltaf komið nýtt ár
og nýtt collection. Þetta er bæði búið að
vera ánægjulegt og taka á en kannski það
sem ég stend uppi með þegar ég vakna
á morgnana er það að mér finnst enn
gaman að fara í vinnuna.“
Steinunn segist hafa fundið fyrir því
að meðvitund fólks gagnvart hönnun
hafi breyst á undanförnum árum. „Fólk
er meðvitaðra um hönnun. Hvað hún
stendur fyrir og hvað hún þýðir.“ Og
hún er fljót til svars þegar hún er innt
eftir því hvort hún muni halda áfram
ótrauð á sviði fatahönnunar um ókomin
ár. „Ég er búin að benda formanni Fata-
hönnunarfélags Íslands á að ég mun
ganga áttræð niður Laugaveginn með
staf og benda ungum hönnuðum á
hvað þeir eru að gera rangt,“ segir hún
og skellihlær.
Og þegar hún horfir fram í tímann
er framtíð fatahönnunar nokkuð björt.
„Fatahönnun er framsækið fag. við
höfum gert mistök í gegnum tíðina og
við höfum lært af þeim og nú getum við
haldið ótrauð áfram, 15 ár sannar það.“
Opið verður í verslun Steinunnar alla
helgina, frá klukkan 13.00-17.00 báða
dagana, í tilefni af HönnunarMars.
gydaloa@frettabladid.is
Árin fimmtán flugu hjá
Fyrirtækið Steinunn fagnar fimmtán ára afmæli og segir eigandinn, fatahönnuðurinn
Steinunn Sigurðardóttir, að sér þyki enn gaman að fara í vinnunna á hverjum morgni.
Steinunn hefur haldið allri sinni hönnun vel til haga síðastliðin fimmtán ár og lítur nú yfir farinn veg. Fréttablaðið/GVa
Ástkær móðir mín,
tengdamóðir og amma,
Jónína J. Melsteð
Torfufelli 25, Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 8. mars
á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útför
hennar verður gerð frá Fella- og Hólakirkju
fimmtudaginn 17. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á hjúkrunarheimilið Skógarbæ.
Guðrún Jóna Melsteð Viðar Vilhjálmsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Nielsen
íþróttakennari,
Lerkihlíð 2, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 10. mars
á Landspítalanum. Hún verður jarðsungin
frá Háteigskirkju mánudaginn 21. mars kl. 13.00.
Karl Gunnarsson
Bergrún Helga Gunnarsdóttir Gunnar Pálsson
Vaka Gunnarsdóttir Guðmundur Vestmann
Halla Gunnarsdóttir
Kría Guðmundsdóttir
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Páll Guðmundsson
skipstjóri,
Lækjasmára 6, Kópavogi,
lést mánudaginn 7. mars. Útför hans fer
fram í Digraneskirkju miðvikudaginn 16.
mars kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Svana Svanþórsdóttir
Sigríður Pálsdóttir Helgi Þórisson
Einar Pálsson Linda Friðriksdóttir
Kristbjörn Rafnsson
Guðmundur Pétur Pálsson Ingibjörg Bernhöft
barnabörn og barnabarnabörn.
551 3485 • udo.is
Davíð
útfararstjóri
Óli Pétur
útfararstjóri
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Snævar Jón Andrésson
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti
undirbúnings og framkvæmd
útfarar ásamt vinnu við dánar-
bússkiptin. Við þjónum með
virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur,
bróðir og fósturbróðir,
Jörundur Traustason
Suðurbyggð 14, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 5. mars.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
14. mars kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hins látna er bent á Heimahlynningu
Akureyrar og lyfjadeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Ingveldur Jóhannesdóttir
Harpa Jörundardóttir
Trausti Jörundarson Fanney Kristinsdóttir
Sigríður Jörundardóttir
Ásdís Ólafsdóttir
barnabörn, systkini og fóstursystir.
1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r48 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
tímamót