Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 60
| AtvinnA | 12. mars 2016 LAUGARDAGUR16
UMSJÓNARMAÐUR
VERKSTÆÐIS
Vegna aukinna verkefna óskar Köfunarþjónustan eftir
öflugum umsjónarmanni verkstæðis til starfa. Okkar
helstu verkefni eru á sviði iðnaðarköfunar og sérstakra
verka sem krefjast útsjónarsemi og áræðni á landi. Við
rekum einnig tækjaleigu með rafstöðvum, loftpressum,
dælum og fleiru. Rekstur verkstæðisins mótast af
þessum fjölbreyttu verkefnum og tengist alls konar
vinnu, tækjum og verkfærum.
1. STARFSSVIÐ/ÁBYRGÐ
• Ábyrgð á rekstri fyrirmyndar verkstæðis
• Umhald tækja og verkfæra fyrirtækisins
• Fjölbreyttar véla/tækjaviðgerðir
2. HÆFNISKRÖFUR
• Menntun sem vélvirki, bifvélavirki eða sambærilegt
• Reynsla af fjölbreyttum viðgerðum
• Reynsla af hvers konar járnsmíði
• Kostur að hafa tölvukunnáttu
• Góð enskukunnátta
3. EIGINLEIKAR
• Jákvæðni
• Skipulagshæfileikar
• Ákveðni og sjálfstæði
• Frumkvæði og útsjónarsemi
• Sveigjanleiki
Áhugasamir sendi ferilskrá á hallgrimur@diving.is.
Nánari uppl. í s: 893-8303.
Viðkomandi þarf að geta byrjað fljótlega.
Góð laun í boði
Byggingamenn athugið
Aflmót byggingafélag ehf óskar að ráða járnamenn og smiði
vana mótauppslætti. Þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Mikil vinna framundan.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes, gsm: 7738877,
netfang: johannes@aflmot.is.
Olíubílstjóri í sumarstarf
Skeljungur óskar eftir að ráða olíubílstjóra
til starfa á rekstarsviði í Örfirisey.
Við leitum að dugmiklum einstaklingum til sumarstarfa
til að sinna dreifingu og afgreiðslu á eldsneyti til
viðskiptamanna og á bensínstöðvar Skeljungs. Um er
að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf við dreifingu.
Starfssvið:
• Dreifing á eldsneyti og smurolíu
• Móttaka pantana
• Eftirlit með birgðageymum
Hæfniskröfur:
• CE Meirapróf
• ADR réttindi kostur en ekki nauðsyn
• Frumkvæði og samskiptahæfileikar
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Skeljungur greiðir ADR námskeið fyrir þá sem
vantar réttindi.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Gísli Jónsson í
síma 444 3059. Umsóknir skulu berast á
pgj@skeljungur.is fyrir 31. mars.
SÖLUMAÐUR FORD
Öflugur sölumaður óskast í söludeild
Brimborgar fyrir nýja og notaða Ford bíla.
Kynntu þér starfið nánar og sæktu um í dag á www.brimborg.is
Umsóknarfrestur er til 20. mars 2016
Atvaugl_Sölumaður_Ford_20160307.indd 1 10.3.2016 09:08:43
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í
heilbrigðisþjónustunni þar sem ólíkum þörfum
notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi
heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Flóknari
vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur á
sérhæfðu starfsfólki kallar á nýja nálgun í starfsemi
heilsugæslustöðva. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
er hafin breyting á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva
sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta
betur fjármuni og að bæta vinnuumhverfi starfsmanna.
Til að gera þjónustuna markvissari verður teymisvinna
grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða
straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks
munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum
með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi mun
starfsfólk fá aukið sjálfstæði til að móta starfsemina og til
að útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir
um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati.
PO
R
T
h
ön
nu
n
Allar umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist
ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.
Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu
berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Jafnframt skal fylla út eyðublaðið „Umsókn um læknisstöðu“ og setja það í viðhengi. Umsóknareyðublaðið má nálgast
á vef Embættis landlæknis (www.landlaeknir.is) undir útgefið efni.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf
eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is).
Nánari upplýsingar veitir Svava Kristín Þorkelsdóttir, mannauðsstjóri – svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is
Sími 585-1300
Fagstjóri lækninga
Heilsugæslan Garðabæ
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf fagstjóra lækninga við Heilsu-
gæsluna Garðabæ. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði,
skipulagshæfni og samskiptahæfileika. Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið til 5 ára
frá og með 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2016.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan
fagsviðs með svæðisstjóra, í samræmi við
stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins
Er svæðisstjóra innan handar við daglegan
rekstur stöðvar og er staðgengill hans
Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á
starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun
klínískra leiðbeininga
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar,
veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna
fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðvar
Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir
klínísku starfi samhliða
Hæfnikröfur
Sérfræðingur í heimilislækningum
Reynsla af starfi í heilsugæslu
Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
Nám í stjórnun æskilegt
Hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
í starfi
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra
og Læknafélags Íslands.