Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 44
Kalkúnabringa er einstaklega góður og hollur matur.
Kalkúnabringu er hægt að mat-
reiða á ýmsan hátt. Til dæmis er
hægt að setja fyllingu í hana. Hér
er hún hins vegar sett í maríner-
ingu. Best er að leggja bringuna
í kryddblönduna kvöldið áður en
ef það næst ekki þá í að minnsta
kosti þrjár klukkustundir. Bakaða
grænmetið má rekja til Provence í
Frakklandi en það passar sérstak-
lega vel með ljósu kjöti.
Uppskriftin miðast við 8 manns.
Um 1.500 g kalkúnabringa
með skinni
4 msk. fersk minta
4 msk. blaðsteinselja
4 msk. ferskt kóríander
2 hvítlauksrif, smátt skorin
1 sítróna, safi og fínt rifinn
börkur
1 tsk. cumin
½ dl ólífuolía
1 dl hvítvín
Salt og nýmalaður pipar
Grænmetisform
1 eggaldin
1 kúrbítur
1 tómatur
4 msk. ólífuolía
1 tsk. salt
Nýmalaður pipar
2 tsk. tímían
2 hvítlauksrif,
pressuð
100 g ferskur
mozzarella-ostur
Þerrið kalkúnabringu með eldhús-
pappír.
Setjið allt sem á að fara í krydd-
lög í matvinnsluvél. Leggið kal-
kúnabringu í skál og hellið krydd-
blöndunni yfir. Látið þekja kjötið
vel og vandlega. Setjið plastfilmu
yfir og látið standa í ísskáp yfir
nótt.
Hitið ofninn í 220°C. Takið
bringuna úr kryddblöndunni og
leggið í eldfast fat. Geymið krydd-
ið þar til síðar. Eldið bringuna í
20 mínútur en lækkið
þá hitann í 125°C.
Eldið áfram þar
ti l kjöthita-
mælir sýnir
65°C í þykk-
asta hluta
bringunn-
ar. Þegar
þeim hita er
náð er kjöt-
ið tekið út og
látið standa á
borði í 15 mín-
útur áður en það
er skorið niður.
Skerið eggaldin, kúr-
bít og tómatinn í þunnar sneiðar.
Smyrjið lítið eldfast mót með olíu.
Rúllið sneiðunum upp og leggið í
formið. Það má líka bæta við fleiri
grænmetis tegundum eftir smekk.
Penslið yfir grænmetið með ólífu-
olíu og kryddið með salti, pipar,
tímían og hvítlauk.
Setjið grænmetið inn í ofn-
inn þegar hann er 125°C
með kalkúnabring-
unni. Þegar kjötið
er tilbúið og tekið
út er hitinn hækk-
aður í 180°C og
grænmetið bakað
áfram. Þegar grænmet-
ið er fullsteikt er bitum af mozz-
arella-osti stráð yfir.
Skerið kjötið í sneiðar og berið
fram með grænmeti.
Einföld sósa
60 g smjör
60 g hveiti
8 dl kjúklingakraftur
2 dl rjómi
Salt og pipar
Ostur
Kalkúnakrydd
Smá hvítvín
Bræðið smjör og hrærið hveiti
saman við. Þá er kjúklingasoðið
hrært saman við smátt og smátt
svo sósan verði kekkjalaus.
Loks er rjóma og hvít-
víni bætt við. Gott
er að setja ost í sós-
una, pipar ost, villi-
sveppaost eða
gráðost. Ef not-
aður er gráðost-
ur þarf líka að
setja matskeið af
rifsberjahlaupi.
Bragðbætið sósuna
með salti, pipar og
kalkúnakryddi eftir því
sem þarf.
Tíramísú
Þetta er einn vinsælasti ítalski
eftirrétturinn. Öllum finnst rétt-
urinn góður og það er hægt að
laga hann daginn áður sem er
þægilegt.
3 eggjarauður
3 msk. sykur
250 g mascarpone-ostur
3 eggjahvítur
¼ tsk. salt
20 Lady fingers kökur
3 dl kalt espressokaffi
2 msk. koníak eða amaretto
4 msk. rifið dökkt súkkulaði
Þeytið eggjarauður og sykur þar
til blandan verður létt og ljós.
Bætið þá mascarpone-osti við og
hrærið allt vel saman. Stífþeyt-
ið eggjahvítur með salti. Blandið
þeim síðan saman við ostablönd-
una.
Setjið ostablöndu í botninn á
fallegri skál. Dýfið Lady fingers
í kaffi sem hefur verið bland-
að með koníaki. Leggið kökurn-
ar yfir blönduna. Setjið annað lag
af ostablöndu yfir og síðan kaffi-
vættar kökur. Þetta er endurtek-
ið þar til allt er búið.
Dreifið rifnu súkkulaði yfir og
kælið. elin@365.is
KryddUð
KalKúnabringa
og Tíramísú
Ætlar þú að halda matarboð um helgina? Maríneruð kalkúnabringa,
borin fram með bökuðu grænmeti, er veislumatur sem hentar öllum og
er bæði hollur og ljúffengur. Tíramísú í eftirrétt kætir bragðlaukana.
SUÐURLANDSBRAUT 24 | 108 REYKJAVÍK
SÍMI 516 0100 | WWW.HEIMILIOGSKOLI.IS
AÐALFUNDUR
HEIMILIS OG SKÓLA
Aðalfundur Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra
verður haldinn mánudaginn 11. apríl kl.17:00.
Fundurinn verður haldinn hjá SAMFOK í fundarsal á
4. hæð, Háaleitisbraut 11-13, 108 Reykjavík. Á
dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf og eru
félagsmenn hvair til að mæta.
Nánari upplýsingar á
Texasborgarar.is
og Facebook
Texas-kántrí á sunnudögum
Goðsögnin Johnny King ríður á vaðið 13. mars kl. 15.
Kóngurinn flytur eigin lög og annarra ásamt
gestaspilurum og -söngvurum.
Skotheldur sunnudagsbíltúr. Frítt inn.
Nýir sælkeraréttir
Nautalundaborgari – 1.690 kr.
með frönskum, laukstráum og bernaise
Lúxus-humarpítsa – 1.990 kr.
með humri, rauðlauk, papriku og hvítlauk
Johnny King á Texasborgurum!
af Texas-
ostborgara með
frönskum.
Aðeins 1.290 kr.
fyrir tvo.
Klipptu miðann út
og hafðu með þér.
Gildir til 15.4. 2016.
2
FYRIR
1
ER Í LOFTINU
SPRENGISANDUR
SIGURJÓN M. EGILSSON OG UMRÆÐA SEM SKIPTIR MÁLI
KL. 10:00 12:00SUNNUDAG
1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r6 F ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n