Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 126
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
06.03.16-
12.03.16
„Þetta er mánaðarleg kvikmynda-
hátíð sem haldin er á netinu, þar
sem öllum er frjálst að senda inn
efni og svo er valnefnd sem sér um
að velja efni sem keppir fyrir hvern
mánuð. Við komumst inn í mars
með myndband með lag hljóm-
sveitarinnar Milkhouse, Gleymérei
og það er alveg ótrúlega spennandi,“
segir Birnir Jón Sigurðsson leikstjóri
og bætir við að enn sem komið er
sé myndbandið með flest atkvæði
til áhorfendaverðlaunanna en fólk
getur farið inn á www.tmff.net og
kosið myndbandið.
The Monthly Film Festival er
alþjóðleg keppni og hart er barist
um sæti þar, því þeir sem hreppa
verðlaunin hljóta mikla auglýsingu.
„Ef við vinnum þá er það bæði
frábært afrek fyrir myndbandið og
mikill heiður fyrir okkur þar sem
þetta er stór alþjóðleg kvikmynda-
hátíð og það er frábært tækifæri fyrir
okkur að vera með,“ segir Birnir.
Myndbandið fjallar um unga
konu, sem er óánægð í starfi, hún
finnur kassa fullan af munum sem
rifja upp fyrir henni gamlar minn-
ingar og áttar sig á því að veruleiki
h e n n a r e r
algjör and-
s t æ ð a v i ð
það sem hana
dreymdi um í
æsku.
„Lagið fjallar um
nostalgíu og það var okkar
útgangspunktur fyrir alla hugmynda-
vinnu í sambandi við handritið.
Þetta var mikil reynsla og skemmti-
legt ferli,“ segir Birnir.
Hann er ekki að leikstýra í fyrsta
skipti en stuttmyndin hans Heima-
nám sem hann vann í samstarfi við
Elmar Þórarinsson var sýnd í sér-
stöku stuttmyndahorni á síðustu
kvikmyndahátíð í Cannes í Frakk-
landi. Fram undan er nóg um að vera
hjá þessum unga, efnilega leikstjóra
sem á framtíðina svo sann-
arlega fyrir sér í þessum
bransa.
„Sem stendur
er ég að gera
n o k ku r t ó n -
l i s t a r m y n d -
bönd, þau eru
mismunandi
eftir lögum
en öll eru þau
spennandi og
s k e m m t i l e g .
Núna í sumar
er ég að fara gera
kvikmynd í fullri
lengd ásamt flottum
hópi fólks. Myndin fjallar
um mig, Birni J, sem er leikstjóri sem
lætur ekki afturhald samfélagsins
stöðva sig í því að koma sinni list-
rænu sýn á hvíta tjaldið. Þetta er
rosalega stór biti að ráðast í með
lítinn pening, en ég er fullur tilhlökk-
unar að takast á við verkefnið,“ segir
Birnir fullur bjartsýni.
gudrunjona@frettabladid.is
Lætur ekki afturhald
samfélagsins
stoppa sig
Leikstjórarnir Birnir Jón Sigurðarson og Vilhelm Þór Neto leik-
stýra nýju tónlistarmyndbandi við lagið Gleymérei frá hljómsveit-
inni Milkhouse, en það var valið til sýninga á kvikmyndahátíð.
Leikstjórarnir Birnir Jón Sigurðarson og Vilhelm Þór Neto ásamt söngkonu hljómsveitarinnar Milkhouse, Katrínu Helgu Ólafs-
dóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ef við vinnum þá Er
það bæði frábært
afrEk fyrir mynd
bandið og mikiLL
hEiður fyrir
okkur.
nýtt Lag frá rEykjar
víkurdætrum
Anna Tara Andrésdóttir og systir
hennar Katrín úr hljómsveitinni
Reykjavíkurdætrum gáfu á dög-
unum út nýtt myndband við lagið
„Fanbois“. Líkt og alþjóð varð vitni
að fyrir um tveimur vikum, í þætt-
inum Vikan með Gísla Marteini á
RÚV, átti hópurinn aldeilis
innkomu og í stuttu
máli fór internetið á
hliðina.
tók þátt í vasa
göngunni
Björn Már Ólafsson skíðakappi tók
þátt í Vasagöngunni sem fram fór í
Svíþjóð síðastliðinn sunnudag ásamt
sænsku Eurovision-stjörnunni Måns
Zelmerlöw. Kapparnir voru samferða
meirihluta göngunnar og hélt okkar
maður að stelpufans sem tilheyrði
Eurovision-stjörnunni
væri ætlaður sér.
augabrúnir iLmar
vEkja athygLi
Síðasti þátturinn af hinni geysivinsælu
sjónvarpsþáttaröð Ófærð verður sýndur
á BBC 4 í Bretlandi um næstkomandi
helgi. Enska heiti Ófærðar er Trapped og
hafa Bretar verið mjög duglegir við að
tísta um þáttinn og hafa íslensku leikar-
arnir fundið fyrir aukinni athygli Breta
undafarnar vikur. „Ég ákvað
að byrja á Twitter til
þess að geta fylgst
með umræðunni
um þættina
undir hash taginu
#Trapped,“ segir
Ilmur og hlær.
þær tvær mEð
aðra sEríu
Grínþættirnir Þær
tvær í leikstjórn
Jóns Grétars
Gissurarsonar
fara í tökur í
næstu viku. Vala
Kristín Eiríks-
dóttir og Júlíana
Sara Gunnarsdóttir leikkonur slógu
heldur betur í gegn í fyrstu seríu
þáttanna og fengu frábær viðbrögð.
Núna verður framleiðslan tekin á
annað level og stelpurnar fá með sér
fullskipað teymi til að gera þáttinn
ennþá stærri og flottari.
Endalaust
ENDALAUST
NET
1817 365.is
1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r74 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð