Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 20
Spilaði með nýrnaSteina
læknir sem meðhöndlaði lionel
messi, leikmann Barcelona, segir
að argentínumaðurinn hafi spilað
þrjá leiki þrátt fyrir að líkami hans
hafi ekki náð að losa sig við nýrna-
steina sem voru að angra hann.
messi missti af undanúrslitaleik
Barcelona gegn Guangzhou eftir
að hafa fengið nýrnasteinakast en
spilaði svo í 3-0 sigri á river plate í
úrslitaleiknum.
læknirinn segir að alls hafi
messi spilað þrjá leiki áður en
hann losnaði loksins við nýrna-
steinana. „Hann fékk verkjalyf fyrir
leikina svo hann gæti spilað þá,“
sagði læknirinn, ruiz marcellan.
messi fékk svo loks meðhöndlun
við nýrnasteinunum 9. febrúar og
missti af nokkrum æfingum. en
hann sneri svo aftur og skoraði eitt
og lagði upp tvö til viðbótar í 6-1
sigri á Celta Vigo.
Helgin
Laugardagur
12.35 Norwich - Man. City Sport 2
14.25 Darmst. - Augsburg Sport 3
14.50 Stoke- Southampt. Sport 5
14.50 Bournem. - Swansea Sport 2
14.55 Barcelona - Getafe Sport
14.55 Grindavík - Stjarnan Sport 4
17.20 Everton - Chelsea Sport
17.25 Bayern - Bremen Sport 2
18.00 Valspar Champions. Golfst.
19.40 Inter - Bologna Sport 2
21.30 Formúla E Sport
Sunnudagur
11.25 Chievo - Milan Sport
13.20 Arsenal - Watford Sport
13.55 Udinese - Roma Sport 2
15.50 Man. Utd - West Ham Sport
15.50 A. Villa - Tottenham Sport 2
18.00 Valspar Champions. Golfst.
18.05 Valur - ÍBV Sport 2
19.25 Las Palmas - Real M. Sport
Benitez til newCaStle
rafael Benitez var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri enska úrvals-
deildarfélagsins newcastle.
Benitez tekur við starfinu af
Steve mcClaren sem var rekinn
í gær. newcastle er í næstneðsta
sæti deildarinnar en hefur nú
tíu leiki til að bjarga sæti sínu í
deildinni. Það er því verk að vinna
hjá spænska þjálfaranum.
Benitez skrifaði undir þriggja
ára samning við newcastle en
samkvæmt heimildum Sky Sports
getur hann rift samningi sínum
við félagið ef það fellur úr ensku
úrvalsdeildinni í vor.
Það verða þó nokkrar breytingar
á þjálfaraliði félagsins en þeir
Fabio pecchia, Francisco de miguel
moreno og antonio Gomez perez
fylgja allir Benitez til newcastle.
Benitez verður áttundi stjóri
newcastle á aðeins tólf árum en
hann var síðast
á mála hjá real
madrid. Hann
hefur einnig
stýrt liverpool
og Chelsea á
ferli sínum.
Körfubolti Síðustu vikur hafa verið
erfiðar fyrir sænska úrvalsdeildar-
félagið Sundsvall Dragons, sem
landsliðsmaðurinn Hlynur Bærings-
son leikur með. liðið tapaði í ofaná-
lag sjö af síðustu átta leikjum sínum
í deildarkeppninni sem er heldur
dapurt veganesti fyrir úrslitakeppn-
ina sem hefst um helgina.
„einfaldasta útskýringin er bara
sú að við höfum verið lélegir,“ sagði
Hlynur í samtali við Fréttablaðið í
gær en hann missti af síðasta leik
tímabilsins vegna smávægilegra
meiðsla. leikurinn var þýðingar-
laus fyrir bæði lið en hann var sá
eini sem Sundsvall vann síðustu
vikur tímabilsins.
Fyrir utan slæmt gengi komst
félagið í fréttirnar ytra vegna fjár-
hagsvandræða. Félagið gat til að
mynda ekki staðið við greiðslu til
sænska körfuknattleikssambands-
ins sem bannaði félaginu að nota
erlenda leikmenn sína í einum leik.
Vandamálin í sviðsljósinu
„Þegar þetta mál rataði í blöðin þá
fór athyglin á aðra hluti en hún átti
að vera á,“ segir Hlynur sem hefur
þó ávallt fengið sín laun greidd hjá
félaginu þrátt fyrir slæma skulda-
stöðu þess. „Þetta hefur alltaf skilað
sér til mín að lokum og ég vona
að það verði áfram þannig,“ segir
Hlynur sem hefur þó skilað sínu að
venju í vetur. Hann er með flest frá-
köst allra leikmanna í deildinni að
meðaltali í vetur eða 10,0.
leikmannahópur Sundsvall ber
þess merki að félagið á í rekstrar-
vandræðum og er liðið ekki jafn
sterkt og undanfarin ár. Hlynur,
sem er á sínu sjötta tímabili hjá
félaginu, viðurkennir að þetta ár
hafi verið erfitt.
„Það má alveg segja að þetta ár
hafi verið það erfiðasta hjá mér. Það
hefur líka verið allt öðruvísi en fyrri
ár. Bæði er liðið ekki jafn gott og þá
eru engir aðrir Íslendingar hér, eins
og hefur alltaf verið,“ segir Hlynur
en Jakob Þór Sigurðarson var lengi
liðsfélagi hans hjá Drekunum en
einnig Ægir Þór Steinarsson, pavel
ermolinskij og ragnar Ágúst nath-
anaelsson. Jakob er enn í Svíþjóð
en spilar nú með Borås Basket sem
endaði í fjórða sæti deildarinnar.
Sér ekki eftir fimm ára samningi
Hlynur gerði fimm ára samning við
Sundsvall í sumar og hann sér þrátt
fyrir allt ekki eftir því í dag.
„Ég vissi hvað ég var að fara út
í. Þetta eru líka vandamál tengd
körfuboltanum sem eru um tveir
klukkutímar af mínum degi. mér
líður vel í Sundsvall og fjölskyldunni
líka, þó svo að það sé þreytandi að
standa í svona löguðu. Ég viður-
kenni það.“
Hann segir að hann hafi ákveð-
ið að taka langtímasamning með
þeim kostum og göllum sem
honum fylgir, enda ekki algengt að
33 ára körfuboltamenn fái svo langa
samninga. Hann sé því hins vegar
viðbúinn að félagið gæti hugsanlega
tekið til í herbúðum sínum í sumar í
ljósi fjárhagsstöðunnar.
„Það kæmi ekki á óvart enda
hefur nú þegar verið skorið heil-
mikið niður. Það gæti verið að sú
vinna haldi áfram næsta sumar. Ég
held þó að þeir vilji halda mér og
ég er jú með samning sem ætti að
tryggja það að ég verði áfram.“
Sundsvall Dragons hefur keppni
í úrslitakeppninni á morgun þegar
liðið mætir norrköping Dolphins.
Hlynur segir að þessi langa tap-
hrina hafi verið slæm, eins og gefur
að skilja.
Getum vel unnið Norrköping
„Sumir þessara leikja voru mjög
daprir, gegn liðum sem við áttum
að vinna. Það var það versta. Það
vantaði ákefð og hungur í liðið,“
segir Hlynur sem vill þó ekki
afskrifa möguleika Sundsvall gegn
norrköping.
„norrköping hefur verið í basli
vegna meiðsla. Þetta er gott lið en
ég vona að þeir verði ekki upp á sitt
allra besta. ef við náum upp okkar
spili á ný getum við vel unnið þetta
lið.“ eirikur@365.is
Mitt erfiðasta ár hjá Drekunum
Hlynur Bæringsson og hans menn í Sundsvall Dragons hafa átt erfitt ár í sænsku úrvalsdeildinni. Fjárhags
erfiðleikar hafa einkennt tímabilið og fer liðið í úrslitakeppnina um helgina með sjö leikja taphrinu á bakinu.
Uppboð á boltanum sem Justin Shouse sló stoðsendingametið með
Í þágu góðs málefnis Justin Shouse, leikstjórnandi Stjörnunnar, bætti stoðsendingametið í úrvalsdeildinni fyrr í vetur þegar hann gaf stoðsendingu
númer 1.394 í leik á móti Grindavík. Boltinn hefur verið geymdur í myndveri sjónvarpsþáttarins Domino’s-körfuboltakvölds frá því í 16. umferð
þegar Shouse bætti metið. Nú verður hann boðinn upp og ágóðinn rennur allur til góðs málefnis sem eru langveik börn. FRéTTABLAðIð/ERNIR
Mér líður vel í
Sundsvall og fjöl-
skyldunni líka, þó svo að
það sé þreytandi að standa í
svona löguðu.
Hlynur Bæringsson,
leikmaður
Sundsvall Dragons
Ferill Hlyns
hjá Drekunum
2010-2011 (Meistari)
Leikir: 48
Stig/fráköst (meðaltal): 13,2/9,9
Framlagsstig: 21,2
Sæti í deildarkeppni: 1
Aðrir Íslendingar: Jakob Sigurðars.
2011-2012 (8-liða úrslit)
Leikir: 39
Stig/fráköst (meðaltal): 13,9/10,1
Framlagsstig: 19,9
Sæti í deildarkeppni: 3
Aðrir Íslendingar: Jakob og Pavel
Ermolinskij.
2013-2014 (8-liða úrslit)
Leikir: 39
Stig/fráköst (meðaltal): 14,5/10,7
Framlagsstig: 21,7
Sæti í deildarkeppni: 4
Aðrir Íslendingar: Jakob og Ægir.
2014-2015 (undanúrslit)
Leikir: 40
Stig/fráköst (meðaltal): 13,8/9,5
Framlagsstig: 20,3
Sæti í deildarkeppni: 5
Aðrir Íslendingar: Jakob, Ægir Þór
og Ragnar Nathanaelsson.
2015-2016
Leikir: 28
Stig/fráköst (meðaltal): 14,3/10,0
Framlagsstig: 19,2
Sæti í deildarkeppni: 6
Úrslitakeppnin: Ekki lokið
Domino’s-deild kvenna
Valur - Hamar 91-57
Valur: Guðbjörg Sverrisdóttir 33/8 frák.,
Karisma Chapman 18/19 frák., Hallveig
Jónsdóttir 10, Dagbjört Samúelsdóttir 8..
Hamar: Alexandra Ford 24, Salbjörg Ragna
Sævarsdóttir 13, Nína Jenný Kristjánsdóttir
5, Margrét Arnarsdóttir 4.
Efst
Snæfell 36
Haukar 36
Valur 24
Keflavík 20
Neðst
Grindavík 20
Stjarnan 6
Hamar 4
Nýjast
1 2 . M a r s 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r20 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
Sport