Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 54
| AtvinnA | 12. mars 2016 LAUGARDAGUR10
Staða skólastjóra við Háteigsskóla
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Háteigsskóla
Háteigsskóli, áður Æfingaskóli Kennaraháskóla Íslands, er hverfisskóli í Hlíðahverfi, stofnaður árið 1968. Í skólanum eru um 440
nemendur í 1.-10. bekk. Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan og einkenna þau starfið í skólanum. Skólinn
hefur á að skipa vel menntuðu og metnaðarfullu starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahópnum. Skólinn hefur sérhæft sig í
kennslu íslensku sem annars tungumáls og fjölbreytileiki í nemendahópnum er í hávegum hafður. Leiklist er markvisst notuð í
kennslu á öllum stigum til að stuðla að sterkari sjálfsmynd nemenda og aukinni félagsfærni. Áhersla er lögð á góða upplýsinga-
gjöf til foreldra og við skólann starfar öflugt foreldrafélag. Gott samstarf er við frístundaheimilið Halastjörnuna og félagsmiðstöð-
ina 105 sem eru í húsnæði skólans.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s.ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Forystu- og stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna
skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að
nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2016. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2016.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á
heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Guðlaug Sturlaugsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og
að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Staða skólastjóra við Laugalækjarskóla
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Laugalækjarskóla
Laugalækjarskóli er unglingaskóli í Laugarneshverfi, stofnaður árið 1960. Í skólanum eru um 290 nemendur í 7.-10. bekk. Við skólann er
starfrækt Tungumálaver á vegum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem sinnir ráðgjöf og kennslu í norsku, pólsku og sænsku.
Laugalækjarskóli tekur þátt í Grænum skrefum Reykjavíkurborgar, verkefninu Heilsueflandi skóli og hefur þegið boð um að gerast
réttindaskóli UNICEF. Skólinn hefur um árabil verið í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann í Þrándheimi um menntun og þjálfun
kennaranema. Gott samstarf er við félagsmiðstöðina Laugó sem staðsett er í húsnæði skólans.
Einkunnarorð skólans eru virðing, eldmóður og gleði og stefnt er að því að byggja upp ábyrga og sjálfstæða einstaklinga.
Áhersla er lögð á þverfaglega verkefnavinnu, námsmöppur nemenda, markvissa ígrundun þeirra um eigið nám, öfluga stuðningskennslu
og leiðandi uppeldi. Í starfsmannahópnum er ríkur umbótavilji og hefð er fyrir lýðræðislegri skólaþróun og samvirkri forystu starfsmanna.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, metnaðarfulla skólasýn og einlægan
áhuga á menntun og velferð unglinga.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s.ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Forystu- og stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna
skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að
nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2016. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2016.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á
heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Guðlaug Sturlaugsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og
að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir
starfsmanni í mötuneyti í fullt starf.
Sjá nánari upplýsingar á starfatorg.is.
Við leitum að
GÓÐUM BÓKARA
Á bókhaldssviði Fjárstoðar starfa 7 öflugir bókarar sem
annast bókhald fyrirtækja og stofnana af ýmsum stærðum
og gerðum. Vegna aukinna verkefna viljum við stækka
hópinn og leitum að vönum og góðum bókara.
Helstu verkefni
Alhliða bókhaldsþjónusta fyrir viðskiptavini okkar,
þ.m.t. færsla fjárhags-, viðskiptamanna- og lána-
drottnabókhalds, afstemmingar og reikningagerð
Samskipti við viðskiptavini, uppgjörsaðila og
endurskoðendur
Hæfniskröfur
Reynsla af bókhaldi áskilin
Reynsla af DK æskileg en þekking á öðrum
bókhaldskerfum einnig kostur
Vottun sem viðurkenndur bókari kostur
Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Þekking á og reynsla af launavinnslu mikill kostur
Umsóknarfrestur er til 23. mars. Umsókn ásamt ferilskrá
sendist á umsokn@fjarstod.is.
Fjárstoð ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Sími 556-6000
fjarstod@fjarstod.is
www.fjarstod.is
Lífland leitar að starfsfólki í
eftirfarandi stöður
Tækni og Þjónustudeild:
Lífland leitar að starfsmanni í sölu og ráðgjöf á tækjabúnaði fyrir
landbúnað og ekki skemmir ef viðkomandi hefur þekkingu á
landbúnaði og tækjum. Lífland selur heildarlausnir á tækjabúnaði
fyrir alifuglabændur og kúabændur.
Starfssvið:
• Sala, tilboðsgerð og ráðgjöf til viðskiptavina.
• Vinna að úrlausnum verkefna með viðskiptavinum.
• Aðstoða við uppsetningu tækjabúnaðar.
• Utanum hald á varahlutum.
Hæfniskröfur:
• Tæknifræðimenntun kostur.
• Reynsla af sölustörfum.
• Þekking á íslenskum landbúnaði.
• Þarf að vera handlæginn.
• Góð almenn tölvuþekking og þekking á Navision æskileg.
• Þekking á tækniteiknun kostur
• Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Vöruhús:
Lífland leitar að starfsmanni í fullt starf í vöruhúsi Líflands í
Brúarvogi
Starfssvið :
• Móttaka og frágangur á vörum í vöruhúsi.
• Tínsla og afgreiðsla á pöntunum
• Almenn lagerstörf
Hæfniskröfur:
• Réttindi á lyftara er kostur.
• Góð almenn tölvuþekking og þekking á Navision er kostur.
• Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 31. mars 2016.
Nánariupplýsingar veitir Arnar Þórisson í síma: 540-1162.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda
umsókn og ferilskrá á atvinna@lifland.is