Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 128
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Óttars
Guðmundssonar
Bakþankar
Fór að sjá Don Giovanni í Íslensku óperunni á dögunum. Tónlistin var stórkostleg og
söngurinn hljómfagur. Höfuðper
sónan, kvennabósinn og siðblinding
inn Don Giovanni, fer á fjörurnar við
hverja yngismeyna á fætur annarri
og nýtur dyggrar aðstoðar þjónsins,
Leporello. Í þessari uppfærslu eru þó
græddir englavængir á Don Giovanni
svo að hann er ekki eins djöfullegur
og venjulega. Hann er ekki lengur
nauðgari og morðingi heldur glaðvær
daðrari sem gerir sig kannski sekan
um manndráp af gáleysi.
Fyrir mörgum árum skrifaði
Megas bókina Björn og Sveinn sem
var íslensk útgáfa af Don Giovanni.
Bókin fjallaði um þá feðga Axlar
Björn og Svein skotta, þekktustu
glæpamenn Íslandssögunnar, og
ferðalag þeirra um myrkviði og
undirheima Reykjavíkur eftirstríðs
áranna. Þeir voru líkt og ítalska
fyrirmyndin siðvilltir og þjónuðu
hvötum sínum af stakri samvisku
semi. Þessi bók, sem er mikið
meistaraverk, vakti litla athygli og
seldist einungis í 300 eintökum. Hún
er nú ófáanleg.
Boðskapur óperunnar og Megasar
er þó sá sami. Glæpahundarnir Don
Giovanni, AxlarBjörn og Sveinn
skotti fá allir makleg málagjöld.
Logar helvítis gleypa Don Giovanni í
lok síðasta þáttar. Engum dylst hver
var endanlegur áfangastaður feðg
anna hjá Megasi.
Þetta er sannkirkjuleg kenning
þar sem laun syndarinnar eru dauði
og tortíming. Mörgum nútíma
manninum finnst þetta þó ósenni
legt. Allir vita að Don Giovanni
væri í dag á Tinder og félli vel að
tíðarandanum. Siðblinda hans
mundi njóta sín og væri honum til
framdráttar. Björn og Sveinn skotti
hefðu hagnast vel á glæpum sínum
og bæði keypt og selt hlutabréf af
sjálfum sér. Þeir hefðu síðan keypt
tryggingafélög fyrir ágóðann og
greitt sér út arð úr bótasjóðunum. Í
sögulok fara þeir ekki til vítis heldur
í skattaskjól á Tortólaeyjum.
Don Giovanni
og siðleysingjar
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Nýbökuð Brauð
alla daga.