Fréttablaðið - 12.03.2016, Page 128

Fréttablaðið - 12.03.2016, Page 128
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Óttars Guðmundssonar Bakþankar Fór að sjá Don Giovanni í Íslensku óperunni á dögunum. Tónlistin var stórkostleg og söngurinn hljómfagur. Höfuðper­ sónan, kvennabósinn og siðblinding­ inn Don Giovanni, fer á fjörurnar við hverja yngismeyna á fætur annarri og nýtur dyggrar aðstoðar þjónsins, Leporello. Í þessari uppfærslu eru þó græddir englavængir á Don Giovanni svo að hann er ekki eins djöfullegur og venjulega. Hann er ekki lengur nauðgari og morðingi heldur glaðvær daðrari sem gerir sig kannski sekan um manndráp af gáleysi. Fyrir mörgum árum skrifaði Megas bókina Björn og Sveinn sem var íslensk útgáfa af Don Giovanni. Bókin fjallaði um þá feðga Axlar­ Björn og Svein skotta, þekktustu glæpamenn Íslandssögunnar, og ferðalag þeirra um myrkviði og undirheima Reykjavíkur eftirstríðs­ áranna. Þeir voru líkt og ítalska fyrirmyndin siðvilltir og þjónuðu hvötum sínum af stakri samvisku­ semi. Þessi bók, sem er mikið meistaraverk, vakti litla athygli og seldist einungis í 300 eintökum. Hún er nú ófáanleg. Boðskapur óperunnar og Megasar er þó sá sami. Glæpahundarnir Don Giovanni, Axlar­Björn og Sveinn skotti fá allir makleg málagjöld. Logar helvítis gleypa Don Giovanni í lok síðasta þáttar. Engum dylst hver var endanlegur áfangastaður feðg­ anna hjá Megasi. Þetta er sannkirkjuleg kenning þar sem laun syndarinnar eru dauði og tortíming. Mörgum nútíma­ manninum finnst þetta þó ósenni­ legt. Allir vita að Don Giovanni væri í dag á Tinder og félli vel að tíðarandanum. Siðblinda hans mundi njóta sín og væri honum til framdráttar. Björn og Sveinn skotti hefðu hagnast vel á glæpum sínum og bæði keypt og selt hlutabréf af sjálfum sér. Þeir hefðu síðan keypt tryggingafélög fyrir ágóðann og greitt sér út arð úr bótasjóðunum. Í sögulok fara þeir ekki til vítis heldur í skattaskjól á Tortólaeyjum. Don Giovanni og siðleysingjar Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Nýbökuð Brauð alla daga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.