Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 34
Guðmundur Ómar Þráinsson er yfir-maður sérsveitar ríkislögreglustjóra. Hann fer fyrir fjöru-tíu lögreglumönnum
sem eru sérþjálfaðir til þess að tak-
ast á við vopnuð lögreglustörf. Sér-
sveitin gegnir mikilvægu hlutverki
í hryðjuverkavörnum og þjálfun
hennar snýst m.a. um undirbúning
til að takast á við fjöldadrápsárásir,
stórfelld ofbeldisbrot, handtökur á
hættulegum mönnum, gíslatökur,
sprengjutilræði, flugrán og sjórán.
Æfingarnar eru umfangsmiklar og
reynt að líkja eftir aðstæðum válegra
atburða í nágrannalöndunum.
Auk þess að sinna sérsveitarverk-
efnum sem upp koma á landsvísu
þá sinnir sérsveitin almennum lög-
reglustörfum allan sólarhringinn,
alla daga ársins. Hún annast hand-
tökur hættulegra brotamanna og
aðstoðaði til að mynda í aðgerðum
lögreglu á Suðurlandi vegna meints
vinnumansals í Vík. Þá tekur hún
þátt í aðgerðum vegna fíkniefna-
mála og sinnir ýmsum verkefnum
þar sem þjálfun hennar og tækja-
Hefur þú
Farið yfir málin. Reglulega eru haldnar stórar æfingar þar sem hermt er eftir atburðum úti í heimi. Mynd/LögRegLan
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Eins og ég minntist
á áðan þá höfum við
þEssi gildi. Einn fyrir
alla og allir fyrir
Einn. Ef kona kEmst inn
í sérsvEitina þá gEtur
Enginn sEtt sig á stall
gEgn hEnni. sagt við
hana: þú passar Ekki
í hópinn.
búnaður kemur að notum. Sérsveit-
in er líka liðsstyrkur fyrir almanna-
varnadeild þegar neyðarástand
skapast og mikið og gott samstarf er
á milli hennar og Landhelgisgæsl-
unnar. Guðmundur segir þörf á fleiri
sérsveitarmönnum, það hefur verið
metið svo að sveitin sé fullmönnuð
með 52 meðlimum. Hins vegar þurfi
að vanda valið vel. „Árið 2004 tók
ríkisstjórnin ákvörðun um að það
skyldu starfa 52 lögreglumenn í sér-
sveit ríkislögreglustjóra. Við höfum
ekki enn náð þeirri tölu og mest
verið 46. Næsta nýliðanámskeið er í
apríl. Við vonumst til að sem flestir
lögreglumenn klári námskeiðið og
hægt verði að bæta í hópinn.“
Inntökuferlinu í sérsveitina mætti
líkja við að fara í gegnum nálarauga.
Það er heilt ár og á þeim tíma eru
haldin nokkur erfið þrekpróf, sál-
fræðipróf og fleiri þrautir sem reyna
á líkamlegan og andlegan styrk. „Við
förum yfir umsóknirnar og metum
þær, þá fara umsækjendur í sál-
fræðipróf og svo eru þeir í inntöku-
ferlinu í heilt ár. Við gefum ekki uppi
nákvæmlega hvernig inntökuferlið
er. Menn vita samt að hluta til hvað
þeir eru að fara út í, málið er að það
er oft ekkert betra.“
Guðmundur segir þrekprófið
þurfa að vera erfitt. Tilvonandi sér-
sveitarmenn taka prófið í einni sam-
það sem til þarf
í sérsveitina?
Fjörutíu lögreglumenn skipa sérsveit ríkislögreglustjóra. Engin kona
hefur komist í hana, inntökuskilyrðin eru ströng og sömu reglur
gilda fyrir konur og karla. guðmundur ómar þráinsson yfirmaður
sveitarinnar segir koma að því að kona fái inngöngu og lýsir hvaða
eiginleikum menn þurfa að vera búnir til starfa í sérsveitinni, verk-
efnum sveitarinnar og hvernig hún er vopnum og tækjum búin.
fellu, byrja á því að hlaupa þrjá kíló-
metra undir tólf mínútum, gera svo
80 kg hnébeygjur fimmtán sinnum,
fara strax í bekkpressu og endurtaka
tíu sinnum 80 kíló. Þá er upphífing
með 25 kg þyngingu, framkvæmd
einu sinni og svo hangið í sextíu
sekúndur. Þrekprófinu lýkur svo á
tveggja mínútna planka.
„Við reynum líka á andlegan styrk
með ýmsum hætti og mælum getu
fólks í þáttum sem við teljum skipta
máli. Andlegi styrkurinn skiptir
mjög miklu máli. Við þurfum til
dæmis að útiloka ýmsar fóbíur sem
upp geta komið í aðstæðum sem við
getum lent í. Líkamlegi styrkurinn
er líka gríðarlega mikilvægur. Menn
verða að hafa styrk til þess, þó að
þeir séu þreyttir, að yfirstíga ýmsar
hindranir og bjarga borgurum og
hugsanlega særðum félögum út af
hættusvæði. Menn treysta hver á
annan. Við verðum að treysta því
að næsti félagi við hliðina geti veitt
björgun við erfiðar aðstæður. Að
gefast aldrei upp, hver og einn sér-
sveitarmaður verður að hafa þennan
andlega og líkamlega styrk til þess
að klára verkefnin.“
einn fyrir alla og allir fyrir einn
Guðmundur nefnir einnig ákveðin
gildi sem koma við liðsheild og sam-
kennd sem skipta máli. „Það eru
ákveðin gildi sem við höfum í heiðri
innan sveitarinnar. Við berum virð-
ingu fyrir félaganum og viljum vera
tilbúnir að gera allt fyrir hann. Í
sérsveitinni gildir einn fyrir alla og
allir fyrir einn þegar menn sinna
verkefnum.“ Helst má líkja þessu
við t.d. landslið í hópíþrótt þar sem
árangurinn byggist m.a. á samvinnu
og liðsheild.
Engar konur eru í sérsveitinni,
Guðmundur segir nokkrar konur
hafa komist nálægt því en þær hafi
fallið úr ferlinu vegna meiðsla. Hann
segist sjá að konur stunda mjög
stranga líkamsþjálfun í dag og að
konur geti vel komist inn í sveitina,
það sé tímaspursmál. „Það hafa
gegnum tíðina þó nokkrar konur
byrjað í undirbúningsferli fyrir
nýliðanámskeið og í tvígang hafa
konur komist nokkuð langt inn í
það. Á lokastigi ferlisins urðu þær
fyrir meiðslum og gátu ekki klárað
síðustu þrepin.
Það sem reynist konunum erfiðast
er líkamlegi styrkurinn. Það liggur í
hlutarins eðli. En þessi þjálfun öll
sem er boðið upp á núna, cross fit,
boot camp og bardagalistir, er ansi
öflug. Ég sé það og hef það á tilfinn-
ingunni að það styttist í að konur
komist inn í sérsveitina.“
Guðmundur tekur fram að í sér-
sveitinni verði tekið vel á móti
konum. Innan sérsveitarinnar gildi
virðing fyrir félaganum. Megingildið,
einn fyrir alla og allir fyrir einn, muni
líka gilda um konur í sveitinni. „Eins
og ég minntist á áðan þá höfum við
þessi gildi. Einn fyrir alla og allir fyrir
einn. Ef kona kemst inn í sérsveitina
þá getur enginn sett sig á stall gegn
henni. Sagt við hana: þú passar ekki
í hópinn. Við tökum þessi gildi alvar-
lega. Nýliðanámskeiðin eru mikil
sía. Þar kemur allt í ljós, hvort menn
starfa í þágu liðsheildar eða eru ein-
farar. Hvernig menn falla að þessum
gildum sem við höfum.“
Einfarana segir Guðmundur ekki
eiga erindi í sérsveitina þar sem
starfið byggi allt á liðsheild og öll
merki um skerta samkennd og þátt-
töku í liðsheildinni verða til þess að
umsækjendur falla úr nýliðanám-
skeiðsferlinu.
Hann segist ekki vilja tjá sig um
það hvort einhver hafi verið rekinn
úr sérsveitinni. „Það er bara innan-
hússmál en tekið er á málum þegar
það á við. Það er mjög misjafnt hve
lengi menn starfa í sérsveitinni en
menn eru oft ótrúlega lengi við störf
hérna hjá okkur. Hafa enst lengi þrátt
fyrir mikið líkamlegt og andlegt álag
og það hefur vakið athygli meðal
starfsfélaga okkar erlendis.“
Harmleikur tekur mestan toll
Snemma morguns 2. desember 2013
beittu sérsveitarmenn í fyrsta sinn
vopnum sínum á vettvangi, gegn
manni sem hafið hafði skothríð úr
íbúð sinni í Hraunbæ í Reykjavík.
Maðurinn skaut að lögreglumönn-
um og var að lokum skotinn til bana.
„Atburðurinn reyndist sérsveitinni
erfiður,“ segir Guðmundur og hann
nefnir Hraunbæjarmálið sem það
erfiðasta sem hann hefur fengist
við í sérsveitinni. „Án þess að ég vilji
nokkuð tala um Hraunbæjarmálið
þá var það öllum sérsveitarmönn-
um mjög erfitt. Þarna voru erfiðar
aðstæður.“
Hann segir að almenn störf þeirra
í lögreglunni taki einnig mikinn
toll. „Við erum fyrst og fremst lög-
reglumenn og sinnum oft erfiðum
almennum útköllum. Mannlegur
harmleikur og slys tekur alltaf mikið
á hjá lögreglumönnum í starfi.“
Æfa í IKea
Hvað varðar annan búnað, svo sem
báta og þyrlur, segir Guðmundur
1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r34 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð