Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 56

Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 56
Torfan Humarhúsið óskar eftir að ráða starfsmenn í sal Torfan//Humarhúsið er veitingahús með mikla sögu í miðbæ Reykjavíkur. Við leitum eftir duglegu starfsfólki í sal. Bæði framtíðar og hlutastarf í boði með sveigjanlegum vöktum. Um er að ræða fjölbreytt þjónustustarf bæði í hádeginu og á kvöldin. Viðkomandi þarf að vera eldri en 18 ára, duglegur, snyrtilegur, ábyrgur og með ríka þjónustulund. Íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Umsóknir sendist á info@torfan.is Vantar þig starfsfólk Bresland hefur milligöngu um að finna og aðstoða við ráðningu á starfsfólki frá Póllandi, sjá www.bresland.eu Vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn (á ensku) á info@bresland.eu ef þú vilt leita nánari upplýsinga um þessa þjónustu. Einnig er fyrirspurnum svarað í síma 775 4350. Hitastýring hf. er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu, uppsetningu og þjónustu á hita- og loftræstikerfum, kælikerfum fyrir gagnaver, tölvu og tæknirými, rakakerfum, hússtjórnar- kerfum og ýmiskonar iðnaðarsjálfvirkni. Óskum eftir að ráða Rafvirkja Starfssvið: - Reglubundið eftirlit loftræsti- og kælikerfa - Uppsetning á loftræsti- og kælikerfum - Viðhald og þjónusta Menntunar- og hæfniskröfur: - Menntun á sviði kælitækni og/eða rafvirkjunar - Sjálfstæði í vinnubrögðum - Almenn tölvukunnátta Nánari upplýsingar gefur Helgi Sverrisson sími: 552-2222 netfang: helgi@hitastyring.is Helstu verkefni og ábyrgð Starfssvið í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum m.a. vegna langvinnra sjúkdóma. Starfsemi heimahjúkrunar er ört vaxandi og er starfið mjög fjölbreytt og gefandi. Hjúkrunarfræðingur / sjúkraliði tekur þátt í teymisvinnu þar sem hjúkrunarþarfir skjólstæðingahópa eru hafðar að leiðarljósi. Viðkomandi mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma. Hæfnikröfur Íslenskt hjúkrunarleyfi / sjúkraliðaleyfi Reynsla af heimahjúkrun / hjúkrun aldraðra æskileg Framúrskarandi samskiptahæfni Faglegur metnaður Reynsla af og áhugi á teymisvinnu Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi Gilt ökuleyfi Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Stéttarfélög eru Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag Íslands. Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun PO R T ön nu n Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar í heimahjúkrun - sumarafleysingar Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum til sumarafleysinga fyrir sameinaða heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi. Um tímabundin störf í vaktavinnu er að ræða. Til greina kemur að ráða hjúkrunar- og sjúkraliðanema. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1.júní eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 60–80%. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2016. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is), undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is). Nánari upplýsingar veitir Sigríður Aðalheiður Pálmadóttir, yfirhjúkrunarfræðingur - sigridur.a.palmadottir@heilsugaeslan.is - 594-0500 Starfsemi heimahjúkrunar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á samfellu í hjúkrun, teymisvinnu og náið samráð við aðstandendur. Um er að ræða spennandi starfsvettvang fyrir hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem áhuga hafa á þróun heimahjúkrunar í nýrri einingu. Nánari upplýsingar um starfsemi og markmið heimahjúkrunar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is). Hjá Icelandair hótelum starfar úrvalshópur með sameiginleg markmið þar sem borin er virðing fyrir gestum og samstarfsmönnum. Icelandair hótelin leggja áherslu á samvinnu, ábyrgð og frumkvæði í starfi ásamt vilja til að takast á við krefjandi verkefni. Nýir starfsmenn fá vandaða kynningu á fyrirtækinu og fara í gegnum markvissa þjálfun til þess að geta tekist á við störf sín af öryggi. Unnið er að stöðugri framþróun og starfsmönnum veitt tækifæri til vaxtar og þroska í starfi. leitar af öflugum liðsmönnum í eftirfarandi störf: • Vaktstjórar í sal • Framreiðslumenn • Þjónusta í veitingasal • Starfsfólk í morgunverð Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingum með brennandi áhuga á þjónustustörfum. Nánari upplýsingar um starfssvið og hæfniskröfur má finna á www.icelandairhotels.is en umsóknir skulu jafnframt berast í gegnum heimasíðuna. Viðkomandi starfsmenn þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2016. Nánari upplýsingar um starfið veita: Birgir Guðmundsson, hótelstjóri: birgirgu@icehotels.is Hrefna Sif Gunnarsdóttir, verkefnastjóri: hrefnasg@icehotels.is Icelandair hótel eru leiðandi keðja gæðahótela á Íslandi og reka nú alls 21 hótel undir fjórum ólíkum vörumerkjum; Icelandair Hotels, Eddu hótelin, Hilton Reykjavík Nordica og Canopy Reykjavík. Hjá félaginu starfa rösklega 700 manns.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.