Fréttablaðið - 12.03.2016, Page 32

Fréttablaðið - 12.03.2016, Page 32
Við eigum eftir um það bil tveggja klukku-stunda flug til Fort Lauderdale í Banda-ríkjunum og Bruce Dickinson, söngvari Iron Maiden og einn af flugmönnum vélarinnar, þarf ekkert að hugsa sig um þegar ég spyr hvort það sé ekki freistandi að slaka á og láta aðra sjá um flugið í tónleikaferðinni sem er fram undan. „Ég myndi sjálfsagt verða vitlaus úr leiðindum ef ég væri bara farþegi í fluginu,“ segir hann og glottir en bætir svo við af meiri alvöru: „Það er liðið eitt ár frá því læknarnir gáfu mér grænt ljós eftir níu vikna lyfja- meðferð og 33 skipti í geislum vegna krabbameins í hálsi og tungu. Ég hef aldrei haft meiri ástríðu fyrir því sem ég fæst við en einmitt núna; fyrir fluginu, tónlistinni og viðskiptunum. Þetta var næstum því allt tekið frá mér.“ Vél frá Atlanta Við Bruce sitjum einir á efri hæð í 747 breiðþotu íslenska flugfélagsins Air Atlanta, eða í kryppunni, sem gerir þessa flugvélargerð eina þá auð- þekktustu í heiminum. Félagar hans í Iron Maiden eru komnir til Banda- ríkjanna þannig að það er enginn á efri hæðinni þennan fyrsta legg. Þarna er yfirleitt viðskiptafarrými með að minnsta kosti 26 lúxussæt- um. Í tilefni ferðarinnar hefur þeim verið fækkað í átta tvíbreið sæti þar sem meðlimir hljómsveitarinnar munu láta fara vel um sig á hljóm- leikaferðinni. Það er að segja allir nema Bruce. Hann hefur hugsað sér að vera sem mest í flugstjórnarklef- anum, eins og hann hefur verið frá því við tókum á loft frá Cardiff-flug- velli tæplega sjö klukkustundum áður. En hvernig bar það til að hljóm- sveitin ákvað að leigja þessa tröll- vöxnu flugvél, sem venjulega tekur um 440 farþega en mun ekki fljúga með mikið fleiri en 50 til 60 hvern legg í þessari ferð? „Ég á flugþjónustufyrirtæki í Cardiff með félaga mínum. Atlanta er stærsti einstaki viðskiptavinurinn okkar og sendir á hverju ári flug- menn í þjálfun hjá okkur. Fyrir um tveimur árum voru nokkrir Atlanta- menn í heimsókn og þá datt mér í hug að spyrja hvort þeir ættu ekki svona vél fyrir mig. Þetta var náttúru- lega klikkuð spurning en þegar þeir svo hringdu og sögðu já, fór boltinn að rúlla og hér erum við.“ Gegnheill flugnörd Tengsl Bruce við íslenska fluggeir- ann má rekja til þess þegar hann var flugmaður hjá breska flugfélaginu Astreus sem flaug um árabil með farþega Iceland Express. Bruce var flugmaður Astreus frá stofnun 2002 og þar til félagið óskaði eftir gjald- þrotaskiptum haustið 2011. Fall Astreus reyndist Bruce hins vegar engin ógæfa því það varð til þess að hann stofnaði 2012 eigið flugþjónustufyrirtæki, Cardiff Avi- ation, í félagi við Breta sem höfðu upprunalega stofnað Astreus. Ég hafði einmitt hitt Bruce í fyrsta skipti daginn áður í húsakynnum Cardiff Aviation. Hann var klæddur í einkennisbúning félagsins og gult endurskinsvesti, eða svo til eins og allir aðrir starfsmenn á svæðinu. Ég trúði því varla að þetta væri mað- urinn fyrr en við vorum formlega kynntir. Þarna var sem sagt kominn söngvarinn í hljómsveit sem hefur selt yfir 90 milljón plötur og troð- fyllir enn íþróttahallir, og jafnvel leikvanga en virtist engu að síður vera á heimavelli á látlausri kaffi- stofu innan um flugvirkja og annað starfsfólk Cardiff Aviation. Viku seinna átti ég eftir að sjá hann fara fullkomlega með hlutverk rokkstjörnunnar á fyrstu tónleikum heimsreisunnar, en þá hafði ég líka komist að því að flugið er ekki aðeins áhugamál og annað starf Bruce Dickinson heldur ástríða sem hefur átt hug hans í um tuttugu ár. Og ég var líka búinn að komast að því að alþýðleiki kappans var síður en svo eitthvert leikrit. Það sýndi sig vel þegar hann mætti einsamall kvöldið fyrir brottför frá Wales og tékkaði sig inn á fábrotið Holiday Inn Express flugvallarhótelið ásamt öðrum úr áhöfn vélarinnar frá Atlanta, en formlega er hann starfsmaður íslenska flugfélagsins á meðan ferðin stendur yfir. Fyrst trommarinn gat það Enska þungarokkssveitin Iron Maiden lagði á dögunum af stað í tónleikaferð um sex heimsálfur í Boeing 747-400 breiðþotu frá íslenska flugfélaginu Air Atlanta og flýgur söngvari hljómsveitarinnar, Bruce Dickinson, vélinni sjálfur. 747-400 vél Atlanta er rækilega merkt Iron Maiden. Flugnúmerið er CC-666, eða stafir Atlanta og tilvísun í frægasta lag Iron Maiden, The Number of the Beast. LjósMyNd/jóN KALdAL Bruce dickinson með flugmönnum Atlanta eftir jómfrúarferðina frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Ásgeir Ásgeirsson fyrir miðju og Róbert Kristmundsson til hægri. Fyrst trommarinn gat það Bruce er stjórnarformaður Cardiff Aviation. Starfsmenn eru um 100 og reksturinn hefur farið hratt vaxandi. Félagið rekur nokkra flugherma, þannig að heimatökin voru hæg þegar Bruce þurfti að setjast á skóla- bekk og læra á 747 breiðþotuna. „Ég á milli sex og sjö þúsund flug- tíma á þessar algengustu farþegaflug- vélar, Boeing 757 og 737, en ég þurfti að fara í tveggja mánaða nám til að fá réttindi á þessa, enda er hún um það bil tvöfalt stærri en hinar og með fjóra hreyfla en ekki bara tvo,“ segir Bruce og gerir stutta þögn. Mögulega til að hlusta á hreyflana fjóra fyrir utan gluggana en sjálfsagt frekar til að njóta augnabliksins. Það fer ekki á milli mála að flugvélin er honum efst í huga. „Boeing 747 breiðþotan er goðsögn í heimi flugsins, Það eru stórkostleg forréttindi fyrir mig að fá að fljúga henni. Svona flugvél verður aldrei smíðuð framar. Það er raunverulegt samband milli manns og vélar í 747 sem er ekki til staðar í þessum nýju stóru flugvélum,“ segir hann. En hvernig stóð á því að rokk- stjarna sem vissi ekki aura sinna tal ákvað að verða flugmaður á hátindi ferils síns? Bruce útskýrir að flug og flugmenn hafi verið nærri honum frá barnæsku. „Frændi minn og guðfaðir störfuðu báðir fyrir breska flugher- inn. Ég var mikið á flugvöllum með þeim og límdi saman ófá flugvéla- módelin. Ég var hins vegar frekar dapur námsmaður og hélt að ég hefði ekki sjálfur það sem til þyrfti til að verða flugmaður.“ Ástæðu þess að sú hugmynd breyttist segir Bruce tengjast rokk- inu. „Já, þegar einn trommari sem ég þekki tók flugmannspróf, áttaði ég mig á því að ég hlyti að geta það líka. Það vita allir hvernig trommarar eru,“ segir hann og glottir. Bruce var 29 ára þegar hann tók fyrstu flugtímana. Hann var staddur í Los Angeles að vinna að sólóplötu í fríi frá Iron Maiden. „Ég var í stúdíó- inu á morgnana, fór í flugtíma eftir hádegi og settist svo yfir flugbækurn- ar á kvöldin. Þetta var frábær tími.“ Í kjölfar sólóprófsins fór hann í atvinnuflugmannsnám í Flórída og eftir það varð ekki aftur snúið. „Þegar ég var kominn með réttindi til að fljúga í Evrópu og Bandaríkjunum var ég kominn svo djúpt í flugið að ég ætlaði um tíma að hætta í tónlistinni og snúa mér alfarið að flugmanns- starfinu. En svo gat ég það ekki. Tón- listin skipti mig of miklu máli.“ Nýorðinn bjórframleiðandi Það er stífur hliðarvindur þegar við nálgumst Fort Lauderdale en lend- ingin lukkast fullkomlega hjá Bruce. Þar með er hann búinn að bæta enn einni línu á afrekalistann sinn. Þessi merkilegi náungi hefur stundum verið kallaður einn af síð- ustu endurreisnarmönnum rokksins vegna þess hversu óvenju fjölhæfur hann er. Fyrir utan flugið og tónlistina þykir hann afbragðs skylmingamað- ur, hefur sent frá sér skáldsögur, er að byggja upp vaxandi flugþjónustu- fyrirtæki og nýjasta verkefnið, segir hann mér, er að leiða fyrir hönd Iron Maiden þróun og markaðssetningu á bjórnum Trooper, sem er meðal annars nýkominn á markað á Íslandi. Merkilegast finnst mér hins vegar að sjá hversu vel hann virðist liggja í sjálfum sér. Þetta er náungi sem fer um án fylgdarliðsins, sem fræga fólk- ið er svo oft með í eftirdragi, og virtist una sér best á spjalli við flugmennina þá daga sem við erum á ferðinni. Undir lok spjalls okkar á leið vestur yfir hafið nefnir Bruce aftur að bar- áttan við krabbameinið hafi breytt mörgu og að honum finnist mikil- vægt að nýta sem best þann tíma sem honum er gefinn. „Ég verð 58 ára seinna á árinu og flugmenn hjá flugfélögum þurfa að setjast í helgan stein 65 ára. Og þó læknarnir segi mig fullkomlega lækn- aðan af krabbanum þá veit maður aldrei,“ segir hann. Það vottar ekki fyrir ótta þegar Bruce segir þetta. Þvert á móti lýsa augun af tilhlökkun, enda er fram- undan ferð um heiminn við stjórn- völinn á 747 breiðþotu og ég efast ekki eitt augnablik um að hann vill hvergi annars staðar frekar vera. Áhöfn frá Atlanta Tónleikaferð Iron Maiden 5 mánuðir | 35 lönd | 6 heimsálfur Áhöfn Bruce Dickinson flýgur vélinni en með honum verða allan tímann tveir flugmenn frá Atlanta auk flugvirkja, flugfreyja og flug- þjóna frá íslenska flugfélaginu. Um borð Tólf tonn af sviðsbúnaði, rótarar og annað fylgdarlið hljóm- sveitarinnar. Óvenjulegasta og eitt lengsta flug ferðarinnar Frá Perth í Ástralíu til Cape Town í Suður-Afríku. Flugið er 11 klukkustundir og er nánast bara yfir úthafi. Á stórum parti er engin flugumferð á þessari leið og ekkert talstöðvarsamband. Jón Kaldal jon.kaldal@icelandmag.com 1 2 . M a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r32 h e L G I n ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.