Fréttablaðið - 12.03.2016, Qupperneq 71
Það er nóg að gera hjá Ljósleiðaranum enda erum við að undirbúa komu 1000 Megabita
tenginga fyrir heimilin í haust. Við leitum því að rafiðnaðarmönnum til starfa við að
afhenda viðskiptavinum okkar Ljósleiðarann eins fljótt og auðið er án þess að slá
af kröfum um vandaða uppsetningu og að fyllsta öryggis sé gætt.
Í starfinu felst meðal annars:
- Uppsetning innanhússlagna, jafnt ljósleiðara- sem og smáspennulagna
- Uppsetning búnaðar frá fjarskiptafélagi
Starfið býður upp á frábæra vinnuaðstöðu, virka starfsþjálfun, gott mötuneyti, sem og
skemmtilega og hæfa vinnufélaga. Við erum með vel mótaða jafnréttisstefnu og tökum
vel á móti bæði konum og körlum.
Eingöngu er sótt um starfið á ráðningarsíðu Gagnaveitu Reykjavíkur: starf.or.is/gagnaveitan/.
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2016. Ef þú vilt forvitnast um starfið sendu þá
póst á Bryndísi Ernstsdóttur mannauðsráðgjafa á netfangið starf@gagnaveita.is.
Kíktu á Ljósleiðarann á Facebook!
Gagnaveita Reykjavíkur er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur. Orkuveita Reykjavíkur
hefur sameiginlega starfsmannastefnu og býður upp á fjölbreyttan vinnustað fólks
með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað varðar öryggi,
vinnuumhverfi og möguleika til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð. Fyrirtækið
hlaut Jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs 2011 og 2013, sem og Hvatningarverðlaun
jafnréttismála árið 2015.
VILT ÞÚ KOMAST
Í GÆÐASAMBAND?
—— RAFIÐNAÐARMAÐUR
Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir
starfsmanni í mötuneyti í fullt starf.
Sjá nánari upplýsingar á starfatorg.is.
Við leitum að
GÓÐUM BÓKARA
Á bókhaldssviði Fjárstoðar starfa 7 öflugir bókarar sem
annast bókhald fyrirtækja og stofnana af ýmsum stærðum
og gerðum. Vegna aukinna verkefna viljum við stækka
hópinn og leitum að vönum og góðum bókara.
Helstu verkefni
Alhliða bókhaldsþjónusta fyrir viðskiptavini okkar,
þ.m.t. færsla fjárhags-, viðskiptamanna- og lána-
drottnabókhalds, afstemmingar og reikningagerð
Samskipti við viðskiptavini, uppgjörsaðila og
endurskoðendur
Hæfniskröfur
Reynsla af bókhaldi áskilin
Reynsla af DK æskileg en þekking á öðrum
bókhaldskerfum einnig kostur
Vottun sem viðurkenndur bókari kostur
Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Þekking á og reynsla af launavinnslu mikill kostur
Umsóknarfrestur er til 23. mars. Umsókn ásamt ferilskrá
sendist á umsokn@fjarstod.is.
Fjárstoð ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Sími 556-6000
fjarstod@fjarstod.is
www.fjarstod.is
Lífland leitar að starfsfólki í
eftirfarandi stöður
Tækni og Þjónustudeild:
Lífland leitar að starfsmanni í sölu og ráðgjöf á tækjabúnaði fyrir
landbúnað og ekki skemmir ef viðkomandi hefur þekkingu á
landbúnaði og tækjum. Lífland selur heildarlausnir á tækjabúnaði
fyrir alifuglabændur og kúabændur.
Starfssvið:
• Sala, tilboðsgerð og ráðgjöf til viðskiptavina.
• Vinna að úrlausnum verkefna með viðskiptavinum.
• Aðstoða við uppsetningu tækjabúnaðar.
• Utanum hald á varahlutum.
Hæfniskröfur:
• Tæknifræðimenntun kostur.
• Reynsla af sölustörfum.
• Þekking á íslenskum landbúnaði.
• Þarf að vera handlæginn.
• Góð almenn tölvuþekking og þekking á Navision æskileg.
• Þekking á tækniteiknun kostur
• Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Vöruhús:
Lífland leitar að starfsmanni í fullt starf í vöruhúsi Líflands í
Brúarvogi
Starfssvið :
• Móttaka og frágangur á vörum í vöruhúsi.
• Tínsla og afgreiðsla á pöntunum
• Almenn lagerstörf
Hæfniskröfur:
• Réttindi á lyftara er kostur.
• Góð almenn tölvuþekking og þekking á Navision er kostur.
• Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 31. mars 2016.
Nánariupplýsingar veitir Arnar Þórisson í síma: 540-1162.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda
umsókn og ferilskrá á atvinna@lifland.is