Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 106
Íshildur Rún er að verða 11 ára
núna í apríl. Hún hefur verið að
leika lítið hlutverk undanfarið
í leikriti sem heitir heitir Old
Bessastaðir og er sýnt í Tjarnar-
bíói. Mitt hlutverk er að leika
eina persónu í leikritinu þegar
hún var lítil en hver áhorfandi
getur eiginlega samt ákveðið
fyrir sig hvað ég á að tákna.
Er skemmtilegt að vera í svona
leikriti? Já, mjög og líka gaman
að vera í svona félagsskap og
kynnast skemmtilegu fólki.
Færðu eitthvað greitt fyrir að
koma fram? Já, ég fæ ágætis
laun.
Hvað ætlar þú að gera við
peningana? Ég hef verið að safna
mér fyrir trommusetti og hugsa
að ég setji peninginn í þann sjóð.
Ertu langt komin að safna? Eftir
þetta verkefni er ég nokkuð langt
komin held ég. Svo á ég bráðum
afmæli þá er aldrei að vita hvað
gerist.
Af hverju trommur? Ég er í
stelpuhljómsveitinni Meistur-
unum í Þingeyjarsveit og þar
spila ég á trommur og finnst það
gaman.
Ertu stundum fyrir norðan? Já,
ég var í Þingeyjarskóla í fyrra-
vetur. Þá spiluðum við á litlu
jólunum og þorrablóti skólans.
Hvernig finnst þér skemmti-
legast að leika þér? Mér finnst
mjög gaman að spila fótbolta
og vera með vinkonum mínum
og baka eða spila eða eitthvað
þannig.
Í hvaða skóla ertu núna og
hvert er uppáhaldsfagið þitt
þar? Vesturbæjarskóla og
íþróttir eru uppáhaldsfagið mitt.
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór? Mig langar að
verða leikkona, ljósmyndari,
læknir, sundþjálfari og kennari.
Er að safna pening
fyrir trommusetti
Íshildi Rún Hönnu Haraldsdóttur bregður fyrir á sviði í leikritinu
Old Bessastaðir. Svo er hún trommari í stelpuhljómsveitinni
Meisturunum. Henni finnst gaman að baka og spila fótbolta.
Íslhildur komin með kjuðana. Nú er bara eftir að útvega settið. Fréttablaðið/aNtoNBrandarar
björg: Hundurinn minn er rosa-
lega klár í stærðfræði.
Kennari: Nú?
björg: Já, ég spurði hann hvað
16 mínus 16 væru og hann
sagði ekki neitt.
Mamma: Hvað er að sjá þig?
Ásta: Ég datt í drullupoll.
Mamma: Í þessum fínu fötum?
Ásta: Já, ég hafði ekki tíma til
að fara úr þeim.
Kári: Veistu hvað er með
fjörutíu fætur og syngur?
Stebbi: Nei.
Kári: Tuttugu manna kór.
Doddi var í ferðalagi með
mömmu sinni og pabba í
Þýskalandi þegar þau óku fram
hjá kastala.
Sjáðu, Doddi minn, þarna búa
kóngurinn og drottningin, sagði
pabbi.
Já, en hvar býr gosinn? Spurði
Doddi.
Listaverkið
Ásdís Júlíusdóttir, fimm ára, sendi okkur mynd af hvítri kisu í rauðu herbergi.
Bragi Halldórsson
190
„Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa
hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann.
„Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg
til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert
orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin
mjög klár,“ sagði hún montin.
Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata?
1 8 3 7
7 5 4 2 8
8 4 7 6 2
3 2 5 8 9 6
8 7
9 1 7 3 6 2 8
3 8 1 9 6
1 7 8 3 2 9
9 6 1
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r54 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð