Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 124
Ég stofnaði fyrirtækið þegar ég var ungur. Ég er frá Borgund-arhólmi, lítilli danskri eyju. Smá eins og Ísland, en bara ekki eins stór, við erum í
kringum 50.000. Lítil og falleg eyja sem
var nýverið að fá sína fyrstu Michelin-
stjörnu,“ segir lakkrísprinsinn Johan
Bülow sem staddur er hér á landi en
fyrirtæki hans, Lakrids, hefur heldur
betur vakið athygli á undanförnum
árum. Fyrirtækið stofnaði hann ungur
að árum en nú um helgina verður
efnt til lakkrísveislu á Kolabrautinni í
samstarfi við Lakrids og Johan Bülow
og hafa matreiðslumeistarar Kola-
brautarinnar sett saman matseðil með
fjórum réttum sem innihalda ýmsar
útfærslur á lakkrís frá fyrirtækinu.
Johan segir að móðir hans hafi í
uppvextinum lagt áherslu á að hann
yrði athafnamaður. „Hún var gler-
blásari og hannaði sitt eigið gler og frá
því ég var rúmlega þriggja ára gamall
fór ég með henni í vinnuna á hverjum
degi og fylgdist með henni. Hún
brýndi fyrir mér að vinna við eitthvað
sem ég elskaði af því að maður eyðir
svo miklum miklum tíma í vinnunni
út ævina. Maður yrði því að gera eitt-
hvað sem væri manni virkileg ástríða
af því að þá gæti maður unnið fjári
marga klukkutíma á viku án þess að
það sé vinna,“ segir hann.
Johan stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki
fjórtán ára gamall og því augljóst
frá unga aldri að rekstur lá vel fyrir
Johan Bülow segir
mikilvægt að hafa
ástríðu fyrir ævi-
starfinu og sjálfur
hefur hann brennandi
áhuga og ástríðu fyrir
lakkrís og lakkrísgerð
enda sérhæfir fyrir-
tæki hans, Lakrids, sig
í gerð sælgætisins.
Það kemur kannski engum á óvart að
uppáhaldssælgæti Johans sé lakkrís.
14 mánuði
að fullkomna
fyrstu uppskriftina
Skráning á svth.is
Margrét SandersBjarni Benediktsson Ari Eldjárn
Ken Hughes
Einn helsti sérfræðingur heims
í neytenda- og kauphegðun
leitar svara í neytendasálfræði,
mannfræði, hagfræði og
markaðsfræði við spurningum
sem lengi hafa brunnið á
honum: Hvað fær neytendur til
að kaupa og hvernig er hægt að
fá þá til að kaupa meira?
Ávarp
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
Einkarekstur eða opinber rekstur?
– Hugarfarsbreytingar er þörf
Margrét Sanders, formaður SVÞ
Shopper Marketing & Shopper Centricity
Ken Hughes, margverðlaunaður fyrirlesari
um kauphegðun
Uppistand: Ari Eldjárn
DAGSKRÁ
HVAÐ HEFUR
ÖRVANDI ÁHRIF
Á KAUPHEGÐUN?
FIMMTUDAGINN 17. MARS KL. 14 - 16
Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA
OPIN RÁÐSTEFNA Í TENGSLUM VIÐ AÐALFUND SVÞ
Veitingar í boði
1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r72 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð