Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 125
honum. Þar leigði hann lítið rými og
seldi ís og ódýrt sælgæti. 22 ára að aldri
starfaði hann sem þjónn á veitinga-
stað og út frá því kviknaði hugmyndin
um Lakrids og segir hann hvatann
hafa verið að búa til heimsins besta
lakkrís. Það tók þó töluverðan tíma
að koma fyrstu afurðinni frá sér enda
lakkrís talsvert erfiður í framleiðslu.
„Ég fékk hugmyndina í eldhúsinu
hjá mömmu og byrjaði með trésleif í
hendi að reyna að elda og búa eitthvað
til. Ég keypti lítinn poka af Piratos frá
Haribo og skoðaði innihaldsefnin
til að sjá hvað þetta snerist allt um,“
segir Johan og er fljótur að játa því að
lakkrís hafi alla tíð verið hans uppá-
haldssælgæti.
Líkt og áður sagði tók þó talsverðan
tíma að fullkomna uppskriftina en
Johan stóð í fjórtán mánuði yfir pott-
unum áður en hann var kominn með
afurð í hendurnar sem hann var sáttur
við. Þá opnaði hann fyrstu búðina í 35
fermetra rými og tveimur og hálfum
klukkutíma eftir opnun var allur
lakkrísinn uppseldur. Lakrids-ævin-
týrið hefur heldur betur undið upp á
sig síðan þá og er lakkrísinn nú seldur
í tuttugu löndum og Lakrids með 14
búðir í þremur löndum og stefnan
sett á að opna átta búðir á þessu ári.
Lakkrísinn frá Lakrids má hér á landi
meðal annars fá í Epal sem og fleiri
búðum þar sem matgæðingar venja
komur sínar.
Johan segist þó ekki hafa haft
mikinn tíma til þess að velta sér upp
úr velgengninni þar sem alltaf sé nóg
að gera. „Ég held að á þessum átta
árum hafi ég einu sinni staldrað við
og hugsað: Vá, við gerðum þetta. Það
var fyrir þremur árum þegar ég heim-
sótti nýju lakkrísverksmiðjuna sem
við vorum nýbúin að kaupa en við
keyptum 3.500 fermetra rými sem við
máluðum allt svart til þess að endur-
spegla búðina á Borgundarhólmi.
Þann morgun fór ég í verksmiðjuna og
horfði á þessa stóru svörtu byggingu
og var stoltur í tíu mínútur og svo var
það bara bamm, aftur að vinna.“
Og þegar hann er spurður að því
hvort hann geti gefið ungum frum-
kvöðlum góð ráð er svarið einfalt: „Þú
þarft að vakna á hverjum morgni og
hafa góða tilfinningu fyrir því sem þú
ert að fara að gera.“ gydaloa@frettabladid.is
Framtíðarreikningur
– í fullu gildi í framtíðinni
Með því að leggja fermingarpeningana inn á Framtíðar-
reikning auðveldar þú þér að láta framtíðardraumana rætast.
Fermingargjafir eldast misvel og með því að spara tryggir
þú að gjöfin þín nýtist í framtíðinni.
Framtíðarreikningur Arion banka ber alltaf hæstu vexti
verðtryggðra sparnaðarreikninga okkar og er bundinn til
18 ára aldurs.
Ef 30.000 kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning
leggjum við 5.000 kr. á móti.
Hljómflutningstæki
vinsæl fermingargjöf 1985
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
6
-0
6
1
9
Á vefsíðunni Liquorice.nu má nálg-
ast fjölda uppskrifta sem innihalda
lakkrísvörur frá Johan og félögum,
til dæmis þennan ís sem er kjörið
helgarverkefni!
Fyrir 6-8
3 dl mjólk
2 dl rjómi
1 matskeið Fine Liquorice Powder
frá Johan Bülow
7 eggjarauður
100–200 g fersk eða þídd
jarðarber
10 myntulauf
Hellið mjólk, rjóma, lakkrísduftinu
og sykri á pönnu og hitið að suðu-
marki. Þeytið eggjarauðurnar í skál.
Haldið áfram að þeyta rauðurnar
og hellið heitum vökvanum rólega
yfir þær. Setjið allt aftur á pönn-
una, hitið aftur rólega og hrærið
allan tímann þar til blandan hefur
náð 84-85 gráðu hita (notist við
hitamæli). Takið af hitanum um
leið og blandan byrjar að þykkna.
Látið kólna í 10-15 mínútur, hellið
í gegnum sigti og komið fyrir í
ísskáp. Hrærið endrum og eins þar
til blandan er orðin alveg köld.
Blandið jarðarberjunum og myntu-
laufunum saman við blönduna og
hellið svo blöndunni í ísvél þar til
hún er orðin þykk og rjómakennd.
Geymist í frysti í tvo daga. Berið
fram með ferskum jarðarberjum og
skreytið með myntulaufum.
Jarðarberjaís með lakkrís og myntu
FréttaBLaðið/Ernir
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 73L A U G A R D A G U R 1 2 . m A R s 2 0 1 6