Fréttablaðið - 26.09.2015, Page 2
Veður Hlaupið á hólnum
Suðaustan hvassviðri eða stormur
og víða talsverð rigning, jafnvel mikil
úrkoma suðaustan til. Hiti víða 8 til 13
stig. Sjá Síðu 52
K ja r a m á l S a m n i n g a f u n du r
hefur ekki verið boðaður í kjara-
deilu þriggja stærstu félaga BSRB
við ríkið. Niðurstaða um boðun
verkfalls hjá SFR – stéttarfélagi
í almannaþjónustu og Sjúkra-
liðafélaginu (SLFÍ) liggur fyrir í
hádeginu næsta þriðjudag. Síðasti
fundur, sem haldinn var á þriðju-
dag hjá ríkissáttasemjara, var
árangurslaus.
Þriðja félagið sem þátt tekur í
viðræðunum er Landssamband
lögreglumanna (LL), en lögreglu-
menn hafa ekki verkfallsrétt.
„Staðan er í rauninni óbreytt,“
segir Árni Stefán Jónsson, for-
maður SFR. Enn þokist ekkert í
samningsátt og mikið beri í milli.
Hann segir þó áhugaverðar fregnir
af því að Efling og Starfsgreina-
sambandið færist nær því að loka
samningi við ríkið. „Það verður
áhugavert að sjá hvað er í þeim,
en gagnvart okkur er þetta óbreytt
enn sem komið er.“
Umfang aðgerða SFR og SLFÍ er
umtalsvert og segir Stefán Árni
flestar stofnanir ríkisins koma
til með að finna fyrir þeim í ein-
hverri mynd. „Við erum með þessa
ófaglærðu hópa inni á þessum
ríkisstofnunum, en stillum þessu
þannig upp að við byrjum þarna
15. október á fimmtudegi og föstu-
degi og svo á mánudegi og þriðju-
degi í allsherjarverkfalli.“ Sú törn
stendur fram í nóvember. Hins
vegar verður allsherjarverkfall allt
frá byrjun hjá Landspítala, sýslu-
mannsembættum, ríkisskattstjóra
og tollinum.
Árni Stefán segir ljóst að vel-
flestir ættu að verða varir við
aðgerðir félagsins þurfi til þeirra
að koma. „Eins og á Landspítalan-
um þegar ellefu hundruð manns
labba út.“
Þá er ljóst að aðgerðirnar trufla
útgáfu vegabréfa, leyfisveitingar
og ýmsa aðra þjónustu ríkisins.
Árni Stefán segist þó ekki úrkula
vonar um að samningar náist. „Við
vonum að menn fari nú að setjast
niður með okkur fljótlega eftir
helgi til þess að ræða málin í ein-
hverri alvöru.“
olikr@frettabladid.is
Aðgerðirnar snúa mest
að fjórum stofnunum
Verkfallsaðgerðir SRF og SLFÍ hefjast að óbreyttu 15. næsta mánaðar. Hafa mikil
áhrif á starfsemi Landspítala, sýslumannsembætta, ríkisskattstjóra og tollsins.
Blanda af skærum og allsherjarverkfalli. Kjöri um verkfall lýkur á þriðjudag.
Tilboðsverð frá 49.900 kr.
Á mann m.v. 2 í íbúð á Ambar Beach*** í 4
nætur.
Vikuferð á hótel Albir Playa**** frá 99.900 kr.
með hálfu fæði.
Alicante
Löng helgi 9. - 13. október
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444
landbúnaður „Það er heilmikill
ávinningur í að ná í nýtt erfðaefni í
þessa holdanautastofna okkar, þá bæði
fyrir kjötgæði og kjötmagn og þannig
möguleika greinarinnar til að viðhalda
tekjum og mæta þörfum markaðarins
um magn,“ segir Sigurður Loftsson, for-
maður Landssambands kúabænda.
Sigurður Ingi Jóhannsson, landbún-
aðar- og sjávarútvegsráðherra, hefur
undirritað reglugerð sem heimilar
flutning á erfðaefni nautgripa til lands-
ins. Þar er um að ræða sæði og fóstur-
vísa til nautaeldis. Sigurður Loftsson
segir að Landssambandið hafi upphaf-
lega haft aðrar hugmyndir um málið
en að þetta hafi verið lendingin eftir
umfjöllun fagaðila um dýraheilbrigði
og sjúkdómavarnir.
Tilgangur reglugerðarinnar er að
efla nautakjötsframleiðslu á landinu.
Nautaeldi af þessum toga verður háð
ströngum skilyrðum en kálfar ræktaðir
með þessum hætti þurfa að dvelja í ein-
angrunarstöð fyrstu 9 mánuði lífs síns.
Sigurður segir að næstu skref séu að
fjármagna og setja upp einangrunar-
stöðina. „Ef það tekst í haust er hægt
að sækja fósturvísa til Noregs.“ Hann
reiknar með að fyrsta kjötið komi á
markað á árunum 2019 til 2020.
Sigurður segir að ekki sé hægt að
ræða um nýjan nautgripastofn á Íslandi
þar sem blendingastofnar eru hér þegar
til.
Framleiðsla nautakjöts hefur hingað
til ekki náð að anna eftirspurn en í
fréttatilkynningu segir Sigurður Ingi að
innflutningur erfðaefnis sé í raun for-
senda þess að annað verði eftirspurn á
nautakjötsmarkaði. – srs
Kjötið fer
á markað
2019 eða
2020
Nemendur við Kvennaskólann í Reykjavík fjölmenntu á Arnarhól í gær þar sem fram fór leikfimitími. Kvennaskólinn býr ekki að eigin leikfimisal
en þess í stað er hver góðviðrisdagur nýttur til að ná upp hjartslætti nemenda og rækta heilsuna. Fréttablaðið/GVa
StjórnSýSla Hugsanlegt er að skoða
verði hvernig staðið er að skipan
dómara, að mati Ólafar Nordal
innan ríkisráðherra. Hún segir að allir
þrír umsækjendurnir um lausa stöðu
hæstaréttardómara séu afburðamenn.
Hæfnisnefnd, sem starfað hefur
samkvæmt lögum frá 2010, lagði til að
Karl Axelsson, starfandi hæstaréttar-
dómari, yrði skipaður. Gagnrýnt hefur
verið að nefndin sé einungis skipuð
karlmönnum.
Ráðherra getur hunsað mat nefnd-
arinnar, en þarf þá stuðning Alþingis
við skipan dómarans. – jhh
Fyrirkomulagið
verði skoðað
upp á nýtt
Það er heilmikill
ávinningur í að
ná í nýtt erfðaefni í þessa
holdanauta stofna okkar.
Sigurður Loftsson
Fyrirhugaðar aðgerðir sjúkraliða
Á öllum stofnunum*
15.-16. október (fimmtudagur og föstudagur)
19.-20. október (mánudagur og þriðjudagur)
29.-30. október (fimmtudagur og föstudagur)
2.-3. nóvember (mánudagur og þriðjudagur)
12.-13. nóvember (fimmtudagur og föstudagur)
16. nóvember (mánudagur) - ótímabundið verkfall hefst
*frá miðnætti til miðnættis og nær til allra félagsmanna SLFÍ sem starfa hjá ríkinu.
Sértækar vinnustöðvanir**
08:00-16:00 miðvikudaginn 21. október
08:00-16:00 fimmtudaginn 22. október
08:00-16:00 föstudaginn 23. október
08:00-16:00 mánudaginn 26. október
08:00-16:00 þriðjudaginn 27. október
08:00-16:00 miðvikudaginn 28. október
08:00-16:00 miðvikudaginn 4. nóvember
08:00-16:00 fimmtudaginn 5. nóvember
08:00-16:00 föstudaginn 6. nóvember
08:00-16:00 mánudaginn 9. nóvember
08:00-16:00 þriðjudaginn 10. nóvember
08:00-16:00 miðvikudaginn 11. nóvember
**ná til Landspítala háskólasjúkrahúss, Heilbrigðisstofnunar
Austurlands og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Við vonum að menn
fari nú að setjast
niður með okkur fljótlega
eftir helgi til þess að ræða
málin í einhverri alvöru.
Árni Stefán Jónsson,
formaður SFR
Ólöf Nordal
innanríkis-
ráðherra
2 6 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 l a u G a r d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð