Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 28
því. Davíð drullaði sér nú mun
fyrr en ég í meðferð. Ég þrjóskaðist
við það lengi. Þegar við vorum að
skemmta vorum við alltaf með hátt
borð nálægt mæknum þar sem við
vorum með bjór. Vorum bara fullir,
rifum kjaft og fannst það voða
flott en það er kannski flott þegar
maður er 28 ára en ekki fimmtugur.
Og alveg hættur að ráða við þetta.
Þetta er mjög skrítinn sjúkdómur,“
segir hann.
Eftir að það fór að róast hjá Steini
í uppistandinu fór hann að talsetja
teiknimyndir og skellti sér í Leið-
sögumannaskólann en vann alltaf
við smíðar líka þangað til eftir hrun.
Í dag hjólar hann um borgina með
ferðamenn milli þess sem hann tal-
setur teiknimyndir. „Ég útskrifaðist
úr Leiðsöguskólanum í Kópavogi
árið 2010. Ég er mest á sumrin að
hjóla með fólk og blanda þessu svo-
lítið saman, uppistandi og leiðsögn.
Það eru mörg tækifæri þarna með
öllum þessum fjölda ferðamanna.“
Oft hjólar hann upp í 100 kílómetra
á dag. „Þetta er bara minn ferðamáti.
Þegar maður er kominn í form þá er
þetta ekkert mál. Til hvers að vera
á bíl þegar maður getur hjólað?“
segir Steinn sem hjólar milli Hafn-
arfjarðar og Reykjavíkur í nánast
öllum veðrum. „Á góðum degi þá er
ég kannski 30–45 mínútur að hjóla
til Reykjavíkur. En ef það er snjór og
norðanátt og svona getur þetta farið
upp í klukkutímann.“
Sjálfsblekkingin öflug
Eins og áður sagði urðu kaflaskil
í lífi Steins þegar hann hætti að
drekka fyrir rúmu ári. Þetta var ekki
fyrsta tilraunin sem hann gerði til
þess. „Ég gerði tilraun 2011, þá fór ég
voða vitlaust í þetta og leið mjög illa
þann tíma sem ég var edrú. Þá fór ég
á Vog í 10 daga og ekkert meir. En
í fyrrahaust fór ég á Voginn og svo
á Staðarfell. Alvörumeðferðin var
þarna á Staðarfelli. Að vera þarna
í haustlitunum var mjög gott og
endurnærandi. Þetta er ofboðslega
fallegur staður og sjarmerandi.“
Hann segir drykkjuna hafa tekið
yfir líf sitt og allt annað kom á eftir
en því hafi hann ekki áttað sig á.
„Sjálfsblekkingin er svo öflug. Maður
er bara helsjúkur. Svo koma tímar
sem maður viðurkennir þetta og þá
er mikið vonleysi, samviskubit yfir
því sem þú ert búinn að gera öðrum.
Menn segja oft að þetta komi engum
við, þetta er bara ég, en þetta er ekki
þannig. Það eiga allir einhverja fjöl-
skyldu og vini og þeir þjást út af
þessu. Og þá kemur upp hjá alkó-
hólistum svona sjálfsvorkunn og
sjálfsmorðshugleiðingar,“ segir hann
og viðurkennir að hafa sjálfur verið
þannig þenkjandi á tímabili. „Ég
hugsaði hvernig ég gæti gert þetta
frekar sársaukalaust og á auðveldan
hátt. Ég fann nú aldrei neina lausn
á því en maður var svona aðeins að
vorkenna sér og íhuga það.“ Hann
segir mikla orku og einbeitingu hafa
farið í drykkjuna.
Líf hans breyttist mikið þegar
hann hætti að drekka. „Fyrst urðu
alveg stórkostlegar breytingar. Ég
Þeir Steinn Ármann og Davíð Þór nutu mikilla vinsælda sem Radíusbræður. Steinn er mikill hestamaður en þurfti að hætta í hestamennskunni því hann hafði ekki lengur efni á því að sinna því áhugamáli sínu.
Hér er Steinn með sonum sínum þeim Huga og Tuma fyrir nokkrum árum en þeir eru 21 og 23 ára í dag. Steinn og Jenný á brúðkaupsdaginn.
Steinn er spenntur fyrir framtíðinni og segir mörg tækifæri í ferðamannabrans an um
þó hann myndi gjarnan vilja leika meira í leikhúsunum. FRéTTablaðið/STeFÁn
↣
Við Vorum hálfpartinn
frumkVöðlar í þessu.
Dónalegri og kjaft-
forari en áður hafði
tíðkast. það Var ekki
um auðugan garð að
gresja í þessu gríni
þannig að það Varð
alVeg ofboðslega mikið
að gera hjá okkur.
í Dag hefur þetta
breyst. það er orðið
jafnVel smá Vesen að
koma sér inn í þennan
bransa.
gerði svona prógramm fyrir daginn.
Skipti deginum í þrennt, vinna einn
þriðji, áhugamál einn þriðji og svo
hvíld einn þriðji. Og fór svona frekar
rólega í gang vinnulega séð en var
þó alltaf að lesa inn á teiknimyndir
sem ég er enn að gera. Þannig að ég
fór að hreyfa mig rosalega mikið og
það gerði mér mjög gott. Ég byrjaði
á Staðarfelli að labba mjög mikið
og þegar ég kom í bæinn fór ég að
synda, labba og hjóla mikið. Svo
fóru bara góðir hlutir að gerast.
Ég fékk þetta hlutverk í Þjóðleik-
húsinu. Mér fannst það æði og það
gekk mjög vel,“ segir hann og á þar
við hlutverk í Fjalla-Eyvindi.
Steinn hafði lengi vitað að hann
þyrfti að hætta að drekka. „Það var
búið að segja mér það og ég vissi það.
Það var búið að vera aftast í huga mér
að þetta gengi ekki. Ég væri bara að
drepa mig. Þegar læknirinn á Vogi
var að útskrifa mig, spurði hann mig
hvað ég væri gamall, ég sagði honum
það og þá sagði hann að þetta væri
akkúrat rétti tíminn fyrir mig til að
hætta því ég væri ekki kominn með
neinar lifrarskemmdir eða skemmd-
ir í brisið. Verandi á þessum aldri og
ef ég hefði haldið svona áfram þá
hefði brisið farið að gefa sig og lifrin
farið að kvarta.“
Lítur þú hlutina öðruvísi í dag? „Já
og nei. Lífið breytist í raun og veru
ekkert. Þú getur breytt sjálfum þér
en ekki öllum hinum. Þú getur bara
breytt því hvernig þú sérð hlutina.
Svo er endalaus barátta við að vera
ekki neikvæður, vera jákvæður,
hamingjusamur og frjáls. Allir þessir
frasar. En það er voða auðvelt að
detta í það að vera neikvæður og
allir eru á móti manni. Þá verður
maður bitur og ef maður leyfir þessu
að þróast þá er það bara komið í það
að þú ert bara fallinn aftur. Maður
verður að fara á fundi, vinna pró-
grammið sitt og vera jákvæður.“
Íhugaði að gerast útigangsmaður
Steinn segir stutt í þessar svokölluðu
glansmyndir af áfengisneyslu og
auðvelt sé að selja sér að það sé nú í
lagi að fá sér einn kaldan. „Ég kalla
þetta áfengisauglýsingar þar sem
þetta lítur allt voða vel út. Í mínu til-
felli var það ekki þannig. Ég var bara
einhvers staðar á fatlaða klósettinu
að þamba tvo, þrjá. Einangraður á
subbulegum stöðum. Það sem gerist
síðan svo oft, og gerðist með mig, að
ég fór að hætta hugsa vel um mig,
fór sjaldan í bað og burstaði sjaldan
í mér tennurnar. Ég var alveg kom-
inn þangað. Ég var farinn að skoða
ruslatunnugeymslur og var bara
farinn að íhuga að verða útigangs-
maður. Hið rómantíska líf, sofa bara
úti og því fylgdi engin ábyrgð,“ segir
hann og hristir hausinn.
„Ef maður myndi eyða jafn mikl-
um tíma í það bara að vera edrú og
í prógrammi og hjálpa öðrum eins
og maður eyddi miklum tíma í það
að vera fullur eða bara hvað sem er,
gæti maður gert alveg stórkostlega
hluti. Það sem það fór mikil orka og
einbeiting bara í þetta. Allt annað
var látið sitja á hakanum og var bara
aukaatriði. Áhugamálin og allt hitt.
Ég var til dæmis í hestum en þurfti
að hætta því vegna þess að ég hafði
ekki efni á því lengur, ég fékk ekkert
að gera.“
Var ekki lengur treyst
Steinn segist fullviss um að drykkjan
hafi haft áhrif á það að hann hafi
lítið fengið að gera í leiklistinni. „Já,
alveg pottþétt. Góð vinkona mín
sagði að ég væri búinn að brenna
svo margar brýr að baki mér, og það
er pottþétt rétt þó að ég hafi verið
móðgaður þegar hún sagði þetta. Ég
held það hafi verið aðallega þann-
ig að það hafi verið lykt af mér í
leikhúsinu þá sjaldan sem ég fékk
hlutverk þar. Fólk treysti mér ekki.
Er hann fullur eða ekki fullur? Fólk
getur ekki treyst þér. Það er ekki
endilega hvort þú ert leiðinlegur
með víni sem var ekkert endilega í
mínu tilfelli, en það er þetta að geta
ekki treyst. Það er málið.“
litli bróðir lenti í alvarlegu slysi
Hann segir drykkjuna auðvitað hafa
litað fjölskyldulífið en Steinn er gift-
ur Jennýju Berglindi Rúnarsdóttur
og saman eiga þau tvo syni, Huga,
21 árs, og Tuma, 23 ára. „Maður gerir
sér ekki grein fyrir því en getur séð
það svona eftir á. Þetta er ekkert gott
líf ef pabbi manns er alltaf undir
áhrifum. Ekkert að delera beint en
ef maður er ekki á staðnum. Ég veit
alveg sjálfur að ég hef alltaf verið
hálfhræddur við fullt fólk ef ég er
sjálfur edrú, þá finnst mér frekar
óþægilegt að umgangast fullt fólk.
Og það er þetta með traustið, að
geta aldrei treyst.“
Sjálfur ólst hann ekki upp við
alkóhólisma. Áfall í fjölskyldunni lit-
aði samt uppvöxt hans að einhverju
leyti. „Það var bandarískur sálfræð-
ingur sem var að segja um daginn að
áföll skiptu miklu meira máli þegar
kæmi að þessu. Það var áfall í minni
fjölskyldu. Bróðir minn yngsti lenti
í bílslysi með foreldrum mínum. Það
voru engin bílbelti á þessum tíma,
hvað þá barnabílstólar. Hann var
fjögurra og slasaðist mjög illa. Fékk
mikinn heilaskaða, mænuskaða og
var bara í rúminu í sextán ár eða
þangað til hann dó tvítugur.“ Móðir
hans hugsaði um bróður hans nán-
ast allan þann tíma en sjálf slasaðist
hún í bílslysinu. „Mamma var frekar
ströng við okkur fyrir þetta og fylgd-
ist vel með ef við vorum ekki að læra
heima og svona en þarna svona
losnaði kannski aðeins um. Þetta
gæti líka spilað inn í. Maður veit það
ekki. Við bræðurnir eldri erum báðir
búnir að fara í meðferð. Hann hefur
verið edrú í næstum 20 ár.“
allt hægt með jákvæðni
Steinn lítur framtíðina björtum
augum og telur nóg af tækifærum
fram undan. „Það er hægt að gera
allan fjandann ef maður er jákvæð-
ur.“ Hann segist gjarnan vilja leika
meira í leikhúsunum. „Ég spjallaði
við báða leikhússtjórana í vor og það
hefur greinilega ekki fundist pláss
fyrir mig. Sem er allt í lagi, það opn-
ast einhverjar aðrar dyr. Skemmti-
bransinn er að byrja og ég tek það
allt öðrum tökum í dag,“ segir hann
og heldur áfram. „Núna skemmti ég
bara og fer. Ég þarf ekki að vera allan
tímann í partíinu og drekka með
fólkinu,“ segir hann kankvís.
Hann segir mörg tækifæri liggja í
ferðamannabransanum. „Ég viður-
kenni alveg að ég lét það aðeins
draga mig niður að vera ekki í leik-
húsinu í vetur. Ég leyfði mér að fara
að kenna öllum öðrum um. Fífl-
unum fór að fjölga. En þetta er bara
spurning um að vera jákvæður, það
er svo margt sem maður getur gert.
Ég er aðeins að byrja að vera veislu-
stjóri og skemmtikraftur aftur. Og ég
blanda því líka saman að vera leið-
sögumaður og skemmtikraftur. Það
er fullt af tækifærum og hægt að gera
svo margt,“ segir hann.
„Ég væri líka til í að gera uppi-
standssýningu. Við höfum reynt að
endurvekja Radíusbræður en við
dræmar undirtektir. Við gerðum
þau mistök að hafa þetta ekki bara
sýningu og jafnvel í leikhúsi. Það er
aldrei að vita nema maður láti verða
af því núna,“ segir hann.
„Svo geng ég alltaf með bíómynd í
maganum. Ég er með hugmynd sem
mig langar að gera. Ég kann þetta þó
að tæknin hafi breyst, það er aldrei
að vita nema maður láti verða af því.“
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r28 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð