Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 103

Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 103
Nánari upplýsingar Útgefandi lýsingar hlutabréfa er Síminn hf., kennitala 460207-0880, Ármúla 25, 108 Reykjavík. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu og því ferli að fá hlutabréf félagsins tekin til viðskipta. Nánari upplýsingar um félagið, hlutabréf þess og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins sem dagsett er 25. september 2015 og birt er á vef félagsins, siminn.is/siminn/fjarfestar. Þar má nálgast lýsingarnar næstu 12 mánuði. Lýsingarnar má einnig nálgast á vef Arion banka, arion.is. Innbundin eintök af lýsingu hlutabréfa má nálgast frá 29. september 2015 hjá Símanum á skrifstofu félagsins í Ármúla 25, Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19, Reykjavík. Reykjavík, 26. september 2015 Stjórn Símans hf. Síminn hf. birtir lýsingu hlutabréfa í tengslum við almennt hlutafjárútboð og umsókn um að öll útgefin hlutabréf í félaginu verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Heildarfjöldi útgefinna hluta í Símanum hf. er 9.650.000.000 og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Allir útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og jafn réttháir. Félagið á 19 eigin hluti. Hlutir í félaginu eru gefnir út rafrænt í kerfum Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. Auðkenni hlutanna hjá Nasdaq Iceland verðbréfamiðstöð er SIMINN og er óskað eftir sama auðkenni í kerfum Nasdaq Iceland. ISIN númer þeirra er IS0000015089. Almennt útboð 5.-7. október Arion banki hyggst selja 18% hlut í Símanum hf. með almennu útboði sem fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur umsjón með. Markmið útboðsins er annars vegar að gera félaginu kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði en hins vegar horfir seljandi til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði. Stærð útboðsins nemur 1.737.000.000 hlutum eða 18% hlut í félaginu og nemur söluandvirði þeirra að lágmarki 4.689,9 milljónum króna. Seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 2.026.500.000 hluti sem samsvara 21% eignarhlut í Símanum hf. Á vef umsjónaraðila útboðsins, www.arionbanki.is, verður tekið við áskriftum frá 5. október 2015 klukkan 10.00 til 7. október 2015 klukkan 16.00. Tvær áskriftarleiðir eða tilboðsbækur verða í boði en ákvörðun um stærð tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn. Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðs verði birtar opinberlega 8. október 2015. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq Iceland opinberlega ásamt tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi kaupverðs er áætlaður 13. október 2015 og geta viðskipti í fyrsta lagi hafist á Aðalmarkaði 15. október 2015. Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála útboðsins í lýsingu hlutabréfa og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Aðstoð vegna úboðsins má nálgast hjá söluaðilum þess, fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum fjárfestingabankasviðs Arion banka ásamt Arctica Finance, eða hjá verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444-7000 og tölvupóstfangi siminn-utbod@arionbanki.is. • Hver áskrift að andvirði 100.000 kr. – 10.000.000 kr. • Verðbil 2,7-3,1 kr./hlut • Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B Tilboðsbók A • Áskrift að andvirði yfir 10 milljónum kr. • Lágmarksverð 2,7 kr./hlut • Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A Tilboðsbók B
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.