Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 85
|FÓLKHEILSA
Virkni Femarelle hefur verið staðfest með fjölda rannsókna á undanförnum þrettán árum. Eva Ólöf Hjaltadóttir deilir reynslu sinni af notkun Fem-
arelle. „Mér hafði ekki liðið nógu vel í svolítinn tíma, var
á lyfjum við sykursýki og vegna veikinda í skjaldkirtli.
Ég hafði þyngst vegna lyfjanna. Einnig er ég með gigt og
hef því haft mikla verki. Mér fannst óþægilegt að vera of
mikið innan um fólk, var orðin svolítið þunglynd af van-
líðan. Mér fannst ekki gott að vera þar sem var hávaði
og var því mjög mikið að einangrast frá félagslífi,“ segir
Eva Ólöf. „Ég er 71 árs og var ekki sátt við hvernig mér
leið, ég vildi geta tekið meiri þátt í lífinu. Eftir að ég las
umfjöllun um Femarelle leist mér vel á að prófa náttúru-
lega og hormónalausa meðferð, sérstaklega þar sem ég
sá að hún getur haft áhrif á verki. Ég hef notað Femarelle
í fjóra mánuði og hef endurheimt mitt fyrra líf. Mér líður
svo vel að nú get ég farið daglega út að ganga með hund-
inn.
Ég fer í sund á hverjum degi og sæki félagsvistina
og fer í bingó vikulega. Mig er hætt að verkja um allan
líkamann og ég nota Femarelle sem náttúrulega verkja-
meðferð því ef ég er með verk tek ég aukalega af því.
Það besta er að börnin mín og tengdabörn segja að ég
sé orðin miklu líflegri og hressari. Ég hef meira gaman af
því að hitta barnabörnin mín, því ég get veitt þeim betri
athygli. Ég hef að auki misst ellefu kíló án þess að reyna
það, vegna þess að mér líður betur og ég get hreyft mig
óhindrað.“
FEMARELLE HEFUR HJÁLPAÐ MIKIÐ
Valgerður Kummer Erlingsdóttir hefur notað Femarelle í
nokkurn tíma og finnur nú vel hve miklu máli það skipti
fyrir hana að taka það. „Ég var byrjuð að finna fyrir
breytingum hjá mér, var farin að svitna mikið yfir daginn
og var oft með skapsveiflur. Ég var ekki sátt við þessa
líðan, ég fékk hormónatöflur hjá lækninum en var aldrei
róleg yfir að nota þær. Mér líður núna svo miklu betur
en áður, og jafnvel betur en þegar ég var að nota horm-
ónatöflurnar. Ég tek yfirleitt bara eitt hylki af Femarelle á
dag, en stundum tvö þegar ég er í miklum hita á sumrin.“
Valgerður er svo ánægð með Femarelle að hún mælir
með því við allar vinkonur sínar. „Ég veit að nokkrar eru
að nota það líka. Femarelle hefur hjálpað mér alveg ótrú-
lega mikið og bjargað líðan minni.“
UNDRANDI HVAÐ ÞAÐ VIRKAR VEL
Gerður Guðjónsdóttir er betri af verkjum í liðamótum
og meltingin hefur lagast eftir að hún fór að taka Fem-
arelle. „Mér bauðst að prófa Femarelle fyrir tveimur
mánuðum og ég ákvað að slá til. Ég hafði verið með verki
í liðamótum og í vöðvum í töluverðan tíma, hélt ég væri
komin með liða- og vefjagigt. Einnig hafði ég verið slæm
í meltingunni en ég var orðin mjög vön því eftir mörg
ár, þannig að það var ekki að angra mig sérstak-
lega. Eftir um það bil eina viku fann
ég fljótlega mun á liðamótunum
og var ekki lengur með verki.
Þá fór ég að hugsa hvað
ég hefði gert öðruvísi en
áður, og þá rann upp fyrir
mér að það væri inntakan
á Femarelle sem var eina
breytingin hjá mér.“
Gerður var mjög ánægð
að uppgötva að hún fyndi
svo fljótt mun á sér, og
ákvað að halda áfram að
taka Femarelle. „Núna
get ég setið lengi við og
heklað og prjónað, sem ég
gat varla gert lengur. Ég á
erfitt með að gleypa hylki,
þess vegna tek ég inni-
haldið úr hylkjunum og
blanda með matnum. Eftir
um það bil mánuð fann ég
líka mjög góða breytingu á
meltingunni en þar sem ég
hafði verið í mörg ár með
slæma meltingu, þá kom
þetta mér sérstaklega á
óvart og er ég alveg undr-
andi og mjög glöð að Fem-
arelle skuli virka svona vel
á mig,“ segir Gerður.
SEFUR EINS OG ENGILL
Ég sá nokkrar auglýs-
ingar í blöðunum um
undramátt Femarelle og þar sem
ég var farin að finna fyrir miklum
hitakófum og svefntruflunum
langaði mig að prófa,“ segir Sig-
ríður Elín Thorlacius. „Ég fékk
þessi hitakóf nokkrum sinnum
yfir daginn og vaknaði við þau
tvisvar til þrisvar yfir nóttina.
Þessi truflun á svefni fór illa í mig
þar sem ég hafði aldrei vaknað á
nóttunni fyrr. Ég keypti pakka og
sé ekki eftir því. Það tók um það
bil þrjár vikur að virka hjá mér
svona í fyrsta skipti en eftir það
hef ég ekki fundið fyrir hitakófum
og sef eins og engill allar nætur,“
segir hún.
„Ég þarf vinnu minnar vegna
að ferðast um nokkur tímabelti
tvisvar í mánuði og hafði smá
áhyggjur af því að þetta rugl
með líkamsklukkuna myndi hafa
áhrif á Femerelle-notkun mína.
Það gerðist ekki, ég sef líka mjög
vel erlendis. Ég mæli hiklaust
með Femarelle þar sem það er
náttúrulegt. Þar sem ég vildi
ekki taka inn hormóna var þetta
snilldarlausn fyrir mig.“
DÁSAMLEGT UNDRAEFNI
„Ég ákvað að prófa Femarelle síðasta vetur eftir að hafa
lesið frásögn konu í blaði þar sem hún lýsti ánægju sinni
með vöruna,“ segir Soffía Káradóttir sem á þeim tíma var
að byrja á breytingaskeiðinu en vildi ekki nota hormóna.
„Ég fann fyrir hitakófum, fótaóeirð, skapsveiflum, líkam-
legri vanlíðan og vaknaði oft upp á nóttunni.“
Eftir að Soffía hafði tekið Femarelle inn í aðeins tíu
daga hurfu öll einkenni breytingaskeiðsins. „Nú fæ ég
samfelldan svefn, finn ekki lengur fyrir hitakófum eða
fótaóeirð og líður mun betur á allan hátt og er í góðu
jafnvægi.“ Soffía mælir hiklaust með Femarelle við vin-
konur sínar. „Ég mæli með því að allar konur á breytinga-
aldrinum prófi Femarelle.“
FEMARELLE ER FRÁBÆR LAUSN
ICECARE KYNNIR Femarelle er náttúruleg lausn fyrir konur á breytingaaldri. Það er gert úr jurtaefnum og rannsóknir sýna að það
slær á einkenni tíðahvarfa og hefur hjálpað mörgum konum að ná betri líðan.
ÁNÆGÐ MEÐ LÍFIÐ Gerður var ánægð að uppgötva að hún fyndi svo
mikinn mun á sér eftir að hún hóf að taka inn Femarelle.
MUN SÁTTARI Eva Ólöf Hjaltadóttur hefur endurheimt fyrra líf eftir að
hún fór að taka Femarelle og er mun hressari nú.
SÖLUSTAÐIR OG UPPLÝSINGAR Vörurnar eru fáanlegar í öllum apótekum, heilsuverslunum og
heilsuhillum stórmarkaðanna. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is.
LÍÐUR BETUR Femarelle hefur hjálpað Valgerði mikið en hún fann áður
fyrir skapsveiflum og svitnaði mikið. MYND/GVA
ÁNÆGÐ Soffía getur ekki ímyndað sér hvernig henni
liði í dag ef hún hefði ekki kynnst Femarelle.
FEMARELLE ER ÖRUGGUR KOSTUR FYRIR KONUR
Vinnur á einkennum tíðahvarfa.
Slær á óþægindi eins og hitakóf, höfuðverk, svefn-
truflanir, nætursvita, skapsveiflur, óþægindi í liðum
og vöðvum.
Þéttir beinin.
Hefur ekki áhrif á móðurlíf eða brjóstavef.
Náttúruleg vara, unnin úr soja og inniheldur tofu-
extrakt og hörfræjaduft.
Inniheldur engin hormón eða ísóflavóníða.
Staðfest með rannsóknum sem fram hafa farið
síðustu þrettán ár.