Fréttablaðið - 26.09.2015, Side 85

Fréttablaðið - 26.09.2015, Side 85
|FÓLKHEILSA Virkni Femarelle hefur verið staðfest með fjölda rannsókna á undanförnum þrettán árum. Eva Ólöf Hjaltadóttir deilir reynslu sinni af notkun Fem- arelle. „Mér hafði ekki liðið nógu vel í svolítinn tíma, var á lyfjum við sykursýki og vegna veikinda í skjaldkirtli. Ég hafði þyngst vegna lyfjanna. Einnig er ég með gigt og hef því haft mikla verki. Mér fannst óþægilegt að vera of mikið innan um fólk, var orðin svolítið þunglynd af van- líðan. Mér fannst ekki gott að vera þar sem var hávaði og var því mjög mikið að einangrast frá félagslífi,“ segir Eva Ólöf. „Ég er 71 árs og var ekki sátt við hvernig mér leið, ég vildi geta tekið meiri þátt í lífinu. Eftir að ég las umfjöllun um Femarelle leist mér vel á að prófa náttúru- lega og hormónalausa meðferð, sérstaklega þar sem ég sá að hún getur haft áhrif á verki. Ég hef notað Femarelle í fjóra mánuði og hef endurheimt mitt fyrra líf. Mér líður svo vel að nú get ég farið daglega út að ganga með hund- inn. Ég fer í sund á hverjum degi og sæki félagsvistina og fer í bingó vikulega. Mig er hætt að verkja um allan líkamann og ég nota Femarelle sem náttúrulega verkja- meðferð því ef ég er með verk tek ég aukalega af því. Það besta er að börnin mín og tengdabörn segja að ég sé orðin miklu líflegri og hressari. Ég hef meira gaman af því að hitta barnabörnin mín, því ég get veitt þeim betri athygli. Ég hef að auki misst ellefu kíló án þess að reyna það, vegna þess að mér líður betur og ég get hreyft mig óhindrað.“ FEMARELLE HEFUR HJÁLPAÐ MIKIÐ Valgerður Kummer Erlingsdóttir hefur notað Femarelle í nokkurn tíma og finnur nú vel hve miklu máli það skipti fyrir hana að taka það. „Ég var byrjuð að finna fyrir breytingum hjá mér, var farin að svitna mikið yfir daginn og var oft með skapsveiflur. Ég var ekki sátt við þessa líðan, ég fékk hormónatöflur hjá lækninum en var aldrei róleg yfir að nota þær. Mér líður núna svo miklu betur en áður, og jafnvel betur en þegar ég var að nota horm- ónatöflurnar. Ég tek yfirleitt bara eitt hylki af Femarelle á dag, en stundum tvö þegar ég er í miklum hita á sumrin.“ Valgerður er svo ánægð með Femarelle að hún mælir með því við allar vinkonur sínar. „Ég veit að nokkrar eru að nota það líka. Femarelle hefur hjálpað mér alveg ótrú- lega mikið og bjargað líðan minni.“ UNDRANDI HVAÐ ÞAÐ VIRKAR VEL Gerður Guðjónsdóttir er betri af verkjum í liðamótum og meltingin hefur lagast eftir að hún fór að taka Fem- arelle. „Mér bauðst að prófa Femarelle fyrir tveimur mánuðum og ég ákvað að slá til. Ég hafði verið með verki í liðamótum og í vöðvum í töluverðan tíma, hélt ég væri komin með liða- og vefjagigt. Einnig hafði ég verið slæm í meltingunni en ég var orðin mjög vön því eftir mörg ár, þannig að það var ekki að angra mig sérstak- lega. Eftir um það bil eina viku fann ég fljótlega mun á liðamótunum og var ekki lengur með verki. Þá fór ég að hugsa hvað ég hefði gert öðruvísi en áður, og þá rann upp fyrir mér að það væri inntakan á Femarelle sem var eina breytingin hjá mér.“ Gerður var mjög ánægð að uppgötva að hún fyndi svo fljótt mun á sér, og ákvað að halda áfram að taka Femarelle. „Núna get ég setið lengi við og heklað og prjónað, sem ég gat varla gert lengur. Ég á erfitt með að gleypa hylki, þess vegna tek ég inni- haldið úr hylkjunum og blanda með matnum. Eftir um það bil mánuð fann ég líka mjög góða breytingu á meltingunni en þar sem ég hafði verið í mörg ár með slæma meltingu, þá kom þetta mér sérstaklega á óvart og er ég alveg undr- andi og mjög glöð að Fem- arelle skuli virka svona vel á mig,“ segir Gerður. SEFUR EINS OG ENGILL Ég sá nokkrar auglýs- ingar í blöðunum um undramátt Femarelle og þar sem ég var farin að finna fyrir miklum hitakófum og svefntruflunum langaði mig að prófa,“ segir Sig- ríður Elín Thorlacius. „Ég fékk þessi hitakóf nokkrum sinnum yfir daginn og vaknaði við þau tvisvar til þrisvar yfir nóttina. Þessi truflun á svefni fór illa í mig þar sem ég hafði aldrei vaknað á nóttunni fyrr. Ég keypti pakka og sé ekki eftir því. Það tók um það bil þrjár vikur að virka hjá mér svona í fyrsta skipti en eftir það hef ég ekki fundið fyrir hitakófum og sef eins og engill allar nætur,“ segir hún. „Ég þarf vinnu minnar vegna að ferðast um nokkur tímabelti tvisvar í mánuði og hafði smá áhyggjur af því að þetta rugl með líkamsklukkuna myndi hafa áhrif á Femerelle-notkun mína. Það gerðist ekki, ég sef líka mjög vel erlendis. Ég mæli hiklaust með Femarelle þar sem það er náttúrulegt. Þar sem ég vildi ekki taka inn hormóna var þetta snilldarlausn fyrir mig.“ DÁSAMLEGT UNDRAEFNI „Ég ákvað að prófa Femarelle síðasta vetur eftir að hafa lesið frásögn konu í blaði þar sem hún lýsti ánægju sinni með vöruna,“ segir Soffía Káradóttir sem á þeim tíma var að byrja á breytingaskeiðinu en vildi ekki nota hormóna. „Ég fann fyrir hitakófum, fótaóeirð, skapsveiflum, líkam- legri vanlíðan og vaknaði oft upp á nóttunni.“ Eftir að Soffía hafði tekið Femarelle inn í aðeins tíu daga hurfu öll einkenni breytingaskeiðsins. „Nú fæ ég samfelldan svefn, finn ekki lengur fyrir hitakófum eða fótaóeirð og líður mun betur á allan hátt og er í góðu jafnvægi.“ Soffía mælir hiklaust með Femarelle við vin- konur sínar. „Ég mæli með því að allar konur á breytinga- aldrinum prófi Femarelle.“ FEMARELLE ER FRÁBÆR LAUSN ICECARE KYNNIR Femarelle er náttúruleg lausn fyrir konur á breytingaaldri. Það er gert úr jurtaefnum og rannsóknir sýna að það slær á einkenni tíðahvarfa og hefur hjálpað mörgum konum að ná betri líðan. ÁNÆGÐ MEÐ LÍFIÐ Gerður var ánægð að uppgötva að hún fyndi svo mikinn mun á sér eftir að hún hóf að taka inn Femarelle. MUN SÁTTARI Eva Ólöf Hjaltadóttur hefur endurheimt fyrra líf eftir að hún fór að taka Femarelle og er mun hressari nú. SÖLUSTAÐIR OG UPPLÝSINGAR Vörurnar eru fáanlegar í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is. LÍÐUR BETUR Femarelle hefur hjálpað Valgerði mikið en hún fann áður fyrir skapsveiflum og svitnaði mikið. MYND/GVA ÁNÆGÐ Soffía getur ekki ímyndað sér hvernig henni liði í dag ef hún hefði ekki kynnst Femarelle. FEMARELLE ER ÖRUGGUR KOSTUR FYRIR KONUR Vinnur á einkennum tíðahvarfa.  Slær á óþægindi eins og hitakóf, höfuðverk, svefn- truflanir, nætursvita, skapsveiflur, óþægindi í liðum og vöðvum.  Þéttir beinin.  Hefur ekki áhrif á móðurlíf eða brjóstavef.  Náttúruleg vara, unnin úr soja og inniheldur tofu- extrakt og hörfræjaduft.  Inniheldur engin hormón eða ísóflavóníða.  Staðfest með rannsóknum sem fram hafa farið síðustu þrettán ár.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.