Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 120
Já, líklega hljómar það skringi-
lega í fyrstu að bera saman leik-
stjórann Baltasar Kormák, sem
verður fimmtugur á næsta ári, og
þrítugu NBA-stjörnuna LeBron
James. En við frumsýningu á kvik-
myndinni Everest rann það upp
fyrir blaðamanni, að þessir tveir
menn virðast vera með ákaflega
líkt gildismat og líkir í hugsun. Í
ræðu á frumsýningunni kall-
aði Baltasar alla þá Íslend-
inga sem unnu að myndinni
upp til sín, svo áhorfendur
gerðu sér grein fyrir því hversu
íslensk Everest er. Í myndinni
leikur Ingvar E. Sigurðsson, vinur
Baltasars til margra ára, einnig
stórt hlutverk.
LeBron James hefur einnig
haldið tryggð við æskuvinina og
gert sitt til þess að útvega þeim
störf í umboðsmennsku og fleiru.
James átti um tíma í töluvert
stirðara sambandi við heima-
svæði sitt en Baltasar. James
yfirgaf heimaliðið í Cleveland
Cavaliers og fór í stórlið Miami
Heat; fór í glamúrinn. En nú er
hann kominn aftur heim – og
virðist hafa sama markmið og
Baltasar; að efla nærumhverfi sitt
og hafa jákvæð áhrif á heima-
bæinn.
Allir frá Kópavogi
„Einhvern tímann var ég í Óskars-
partíi. Það voru allir frægir og ég
sat þarna og var nýi leikstjórinn
og hugsaði: Ég er bara frá Kópa-
vogi, hvað er ég að gera hérna?
Og þá uppgötvaði ég að það eru
allir frá Kópavogi. Það eru allir frá
einhverjum stað, flestir frá litlum
stað. Og öllum líður eins, það eru
allir frá vesturbæ Kópavogs.“
Þessi orð lét Baltasar Kormákur
falla í föstudagsviðtali Frétta-
blaðsins fyrir stuttu. Þetta lýsir
vel annars vegar nálgun Baltasars
að stjörnulífinu í Hollywood og
tengslum hans við heimabæinn.
LeBron James hefur látið svipuð
orð falla. „Ég er bara strákur frá
Akron,“ er þekkt tilvitnun í James.
Liðsfélagi hans, Dwyane Wade,
sagði frá því í samtali við frétta-
stofu Fox að James hefði sagt
þetta þegar þeir voru að ræða um
möguleika hans á að verða valinn
besti leikmaður NBA í fjórða sinn.
LeBron James hefur haldið
tryggð við heimabæinn, þrátt
fyrir að yfirgefa lið Cleveland
tímabundið. Þegar hann kom
aftur heim ritaði hann frægt bréf
þar sem hann útskýrði að hans
hlutverk væri að koma lífinu á
svæðinu í kringum Cleveland, þar
á meðal í heimabænum Akron,
á hærra plan. Hann segist vilja
gefa fólkinu í norðausturhluta
Ohio von. „Fólkið þarna hefur
séð mig vaxa úr grasi og finnst
ég örugglega vera eins og sonur
þess. Stundum líður mér eins og
það sé rétt. Ástríða fólksins getur
vissulega verið yfirþyrmandi, en
hún drífur mig áfram. Ég vil gefa
fólkinu von. Ég vil veita því inn-
blástur. Samband mitt við Norð-
austur-Ohio er meira en körfu-
bolti. Ég gerði mér ekki grein
fyrir þessu fyrir fjórum árum. En
nú geri ég það,“ skrifaði hann til
aðdáenda Cleveland.
Vinirnir með
Það sem er líklega hvað líkast
með LeBron James og Baltasar
Kormáki er að þeir taka ekki
árangri sínum sem sjálfsögðum
hlut. Þeir virðast skynja velgengni
sína sem hluta af stærra mengi
og að þeim beri skylda til þess að
láta gott af sér leiða. Að hjálpa
þeim sem eru í kringum þá til
þess að njóta sömu velgengni, í
þessum erfiða heimi íþrótta og
kvikmynda.
Í Bandaríkjunum er LeBron
þekktur fyrir að hafa tekið
vini sína með sér í þá rússí-
banareið sem líf hans hefur verið.
Heimildar mynd var gerð um
vinahópinn, undir titlinum More
Than a Game. Hluti af þeim vina-
hópi vinnur enn fyrir LeBron, þar
af er einn þeirra, Maverick Carter,
í umboðsmannateymi LeBron.
En sá vinur LeBron sem hefur lík-
lega náð lengst er Rich Paul, sem
er nú á góðri leið að verða einn
heitasti umboðsmaður
NBA-deildarinnar.
Hann hefur nokkra
unga og efnilega
leikmenn á sínum
snærum auk þess að
vera í umboðsmanna-
teyminu í kringum
LeBron James. Þeir
félagar kynntust á
flugvellinum í Akron,
þegar LeBron var 17
ára og Rich Paul 21 árs.
James hreifst af treyju
sem Paul var í og byrjuðu þeir
að spjalla. Tæpum fjórtán árum
síðar eru þeir saman á toppinum.
Ef einhver ætti að vera Rich
Paul í lífi Baltasars hlýtur það
að vera Ingvar E. Sigurðsson.
Þeir voru saman í bekk í leik-
listarskólanum og hér má sjá
Baltasar rifja upp samtal þeirra
á milli: „Leikstjórinn kom svo
ekki fyrr en ég byrjaði í leiklistar-
skólanum. Þegar ég útskrifaðist
var ég að tala við Ingvar E. held
ég. Við vorum saman í bekk.
Við vorum að ræða framtíðina,
kannski 24 ára gamlir. Ég sagði
við hann, segjum sem svo að við
fáum ógeðslega mikið að gera og
við erum orðnir þrítugir, hvað
þá?“ Ingvar leikur stórt hlutverk í
Everest og hefur áður unnið með
Baltasar, meðal annars í Mýrinni,
þar sem hann var í aðalhlutverki.
Þó má ekki skilja það sem svo að
Ingvar hafi ekki notið velgengni
án aðstoðar Baltasars, Ingvar
hefur skapað sinn eigin feril á
glæstan hátt.
Baltasar virðist einnig líta á
það sem hálfgerða skyldu sína
að efla íslenska kvikmyndagerð.
Hann á auðvitað framleiðslufyr-
irtæki hér á landi og hefur verið
duglegur að vinna með íslensku
kvikmyndagerðarfólki, eins og
sjá má í Everest. „Mig langar að
geta gert þetta hér, en vera með
úti. Ég finn mig í svona verkefni
eins og Everest. Þar á ég heima.“
Ég
er
bara
strák-
ur frá
akron.
Kjartan Atli
Kjartansson
kjartanatli@frettabladid.is
Baltasar KormáKur
Baltasar Kormákur hefur farið með
íslenska kvikmyndagerð þangað
sem hún hefur aldrei áður farið.
Baltasar ólst upp í Kópavogi og
útskrifaðist úr Leiklistarskólanum
1990. Hann starfaði sem leikari til
ársins 1997, auk þess sem hann setti
upp verk. Frá árinu 2000 hefur hann
leikstýrt ellefu stórum kvikmyndum.
Baltasar hefur leikstýrt nokkrum
stórmyndum, nú síðast Everest.
Hann hefur unnið með leikurum á
borð við Denzel Washington, Mark
Wahlberg og Jake Gyllenhaal. Í kjöl-
farið á velgengni kvikmyndarinnar
101 Reykjavík, sem Baltasar var
handritshöfundur að og leikstýrði,
komst hann á lista hins stóra tímarits
Variety yfir tíu leikstjóra sem les-
endur ættu að fylgjast grannt með.
Baltasar hefur hlotið mörg verð-
laun fyrir kvikmyndir sínar. Nú síðast
hlaut hann verðlaun á CinemaCon-
hátíðinni sem besti kvikmynda-
gerðarmaður utan Bandaríkjanna.
Þegar verðlaunin voru afhent var
myndband með ýmsum Holly-
wood-stjörnum leikið, þar sem Balti
var lofaður. Meðal annars notaði
Jake Gyll enhaal orðið „badass“ til
að lýsa íslenska leikstjóranum. Mark
Wahlberg sagði að Baltasar ætti
verðlaunin skilið og fleiri væru á
leiðinni.
Að fara og sigra heiminn, koma svo aftur heim og fá
fólkið úr hverfinu til að taka þátt í snilldinni. Þetta gætu
verið einkunnarorð leikstjórans Baltasars Kormáks og
NBA-stjörnunnar LeBron James. Lífið ber saman feril
beggja stjarnanna, sem virðast nú í sínu besta formi.
leBron James
LeBron James er af mörgum
talinn besti körfuknattleiks-
maður heims. LeBron kemur
frá smábænum Akron í norð-
austurhluta Ohio-fylkis í Banda-
ríkjunum. LeBron hefur fjórum
sinnum verið valinn besti leik-
maður NBA-deildarinnar, tvisvar
orðið meistari og fimm sinnum
komið liði sínu í úrslitaeinvígið
í NBA.
Það var ótrúleg lukka, ef svo
má að orði komast, að Cleveland
Cavaliers áttu fyrsta valréttinn í
nýliðavali NBA árið sem LeBron
James lauk framhaldsskóla og
tilkynnti að hann vildi inn í NBA.
Íþróttalið í Cleveland hafa verið
einstaklega óheppin í gegnum
tíðina og hefur lið Cavaliers
aldrei orðið meistari. Aðdáendur
liðsins litu á LeBron sem eins
konar bjargvætt og kyndilbera
nýrra tíma.
Því urðu margir brjálaðir þegar
hann yfirgaf liðið og fór til Miami
Heat. Þar var hann í fjögur ár,
komst í úrslit öll árin og vann tvo
titla. Fyrir um ári tilkynnti hann
svo, öllum að óvörum, að hann
ætlaði aftur heim til Cleveland
og komst liðið í úrslit síðasta vor,
þar sem LeBron spilaði nánast
óaðfinnanlega.
Ég er bara frá kópa-
vogi, hvað er Ég að
gera hÉrna?
2 6 . s e p t e m B e r 2 0 1 5 l a u G a r D a G u r64 l í f i ð ∙ f r É t t a B l a ð i ð
Lífið
baltasar
kormákur
hvernig
Lebron James
Íslands
& öfugt
er