Fréttablaðið - 26.09.2015, Page 39

Fréttablaðið - 26.09.2015, Page 39
MiniPos er hannað frá grunni af starfsmönn-um Smartmedia og þróað í nánu samstarfi við okkar viðskiptavini sem nú þegar nota netverslunarlausn okkar. Mikil ánægja er með miniPos-lausn- ina, enda er lögð áhersla á að hún sé einföld, skilvirk og fljót- leg í notkun,“ segir Jóhanna Sofía Karlsdóttir hjá Smart- media. „MiniPos er veflægt sölukerfi og hentar einstaklega vel til að selja vörur eða þjónustu og hafa góða yfirsýn yfir birgðir, fram- legð og sölu,“ útskýrir Jóhanna. Kerfið má nota eitt og sér en einnig er hægt að nota það með netverslun frá Smartmedia. „Það einfaldar málin mikið því þá þarf aðeins að keyra á einu kerfi og einum gagnagrunni sem heldur utan um allt í rekstr- inum, eins og að halda utan um birgðir, gefa út reikninga, vsk- skýrslur, rauntímasölutölur, setja kostnaðarverð á vörur og sjá framlegð og fleira skemmti- legt,“ lýsir hún. Lausn sem hentar öllum „Með miniPos getur þú selt hvað sem er, hvenær sem er, sem gerir það að verkum að þessi lausn getur hentað öllum þeim sem selja vörur og þjónustu, og þá á ég ekki bara við þá sem reka verslun og/eða netverslun,“ segir Jóhanna og tekur dæmi: „Bifvélavirki gæti notað þessa lausn til að gefa út reikninga, halda utan um sölutölur og til að senda vsk-skýrslu og reikninga beint til endurskoðanda síns.“ Það eina sem fólk þarf til að nota miniPos er nettenging ásamt tölvu eða spjaldtölvu. „Þar sem kerfið er veflægt skipt- ir ekki máli hvort spjaldtölvan er iPad eða Android.“ Þjónusta hátt í 400 netverslanir „Okkur fannst miniPos vera næsta rökrétta skref fyrir okkar viðskiptavini enda þjónustum við hátt í 400 netverslanir í dag, sem gerir okkur að stærsta að- ilanum á Íslandi á þessu sviði,“ upplýsir Jóhanna en Smart- media þróaði miniPos og nýtt vefumsjónarkerfi eftir fjárfest- ingu frá Jóni S. von Tetzchner. „Við viljum halda áfram að vera leiðandi á þessum mark- aði með því að koma fram með nýjar og skilvirkar viðbætur sem geta hjálpað viðskiptavin- um okkar að hafa heildarsýn yfir starfsemi sína og bjóða upp á lausnir sem hjálpa þeim að vaxa enn frekar.“ Laga sig að þörfum viðskiptavina Starfsmenn Smartmedia hafa gríðarlega reynslu af forrit- un á ýmiss konar veflausnum. „Og þar sem við smíðum okkar eigin lausnir frá grunni, getum við búið til og bætt við lausnum alveg eftir þörfum viðskipta- vina okkar,“ segir Jóhanna. Hún bendir á að Smartwebber-vef- umsjónarkerfið hafi farið í gegn- um gagngerar endurbætur síð- ustu 12 mánuði. „Við settum ný- verið í loftið útgáfu númer þrjú af kerfinu og einbeittum okkur að því að betrumbæta allt við- mót og gera kerfið notenda- vænna og skilvirkara en áður.“ Hafa sjálfbærni að markmiði Jóhanna segir eitt af markmið- um Smartmedia vera að gera netverslanir nánast sjálfbærar. „Það er til dæmis gert með því að tengja fjárhagskerfi fyrirtækja við netverslunina. Þá myndast brú milli kerfa með upplýsinga- flæði í báðar áttir. Ef þú pantar til dæmis vöru á netinu send- ir kerfið okkar upplýsingar yfir í kerfi eins og Navision, DK. Þar stofnast þú sem viðskiptavin- ur og reikningur verður til. Það eina sem þú þyrftir síðan að gera er að taka saman pöntunina.“ Auðvelt að opna netverslun Jóhanna segir lítið mál að stofna netverslun hjá Smartmedia, þar sé í boði bæði staðlað og sér- hannað útlit. „Þó er mikilvægt að byrja á því að greina þarf- ir, vilja og væntingar viðskipta- vinarins,“ segir hún en mörgum viðskiptavinum Smartmedia hefur gengið afar vel að byggja upp rekstur í gegnum netversl- unarlausn fyrirtækisins.. „Starfsfólk okkur býr yfir yfirgripsmikilli reynslu. Við höfum góða innsýn í markað- inn og sjáum mikla aukningu í veltu á milli ára,“ segir Jóhanna bjartsýn. Seldu hvað sem er, hvenær sem er MiniPos er veflægt sölukerfi sem byggir á netverslunarkerfi Smartmedia. MiniPos hentar vel litlum og meðalstórum fyrirtækjum enda er mjög einfalt að stofna vörur, selja vöru og gefa út reikning. Það eina sem þarf er nettenging ásamt tölvu eða spjaldtölvu. „MiniPos er hannað frá grunni af starfsmönnum Smartmedia,“ segir Jóhanna Sofía Karlsdóttir. MYND/GVA 26. SEPTEMBER 2015 LAUGARDAGUR miniPos er í fullkomnri tengingu við netverslanir Smartmedia Kynntu þér málið á www.minipos.is miniPos sölukerfið hentar þínum rekstri Inniheldur reikninga, birgðakerfi, kostnaðarverð, framlegð, tölfræði og vsk-skýrslur seldu hvað sem er, hvenær sem er 3KYNNING − AUGLÝSING Netverlsun og vefsíðugerð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.