Fréttablaðið - 26.09.2015, Síða 57
ALLT AÐ
GERAST!
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur enn fleiri snillinga
AZAZO er hugbúnaðar- og þekkingarfyrirtæki sem hefur
meðal annars þróað CoreData hugbúnaðarlausnir. Við
viljum bæta við okkur hæfileikafólki sem hefur gaman af
lífinu og ástríðu fyrir því sem það gerir. Drifkraftur, frum-
kvæði og sjálfstæð og öguð vinnubrögð eru eiginleikar
sem eru okkur að skapi.
Umsóknir skal senda á jobs@azazo.com merktar viðkomandi starfi fyrir 4. október 2015.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Þjónusturáðgjafi
Þjónusturáðgjafar okkar tryggja að viðskiptavinir
fái fyrirtaks þjónustu og skjóta svörun — jafnt í
þjónustusíma og tölvupósti.
Æskileg menntun, reynsla og hæfni:
– Framúrskarandi þjónustulund
– Áhugi á tækni og nýjungum
– Hæfileiki til að hugsa í lausnum
Forritarar
Við leitum logandi ljósi að öflugum hugbúnaðarsér-
fræðingum til að takast á við krefjandi verkefni í þróun
framendalausna. Meðal annars fyrir rafrænar
undirskriftir og tengd verkefni.
Æskileg menntun, reynsla og hæfni:
– Háskólamenntun í tölvunarfræði eða sambærilegu
– Þekking á Python, Django og Java vefstöðlum
– Þekking á Agile og reynsla af Scrum vinnuaðferðum
– Reynsla af viðmótsforritun
Framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs
Við óskum eftir kraftmiklum leiðtoga til að stýra hópi
hugbúnaðarsérfræðinga, bæði á Íslandi og erlendis.
Viðkomandi ber ábyrgð á daglegum rekstri sviðsins og
framfylgir ferlum sem tengjast þróun lausna okkar.
Hann þarf að hafa metnað og skýra framtíðarsýn fyrir
hönd AZAZO, reynslu og mikla stjórnunarhæfileika.
Æskileg menntun, reynsla og hæfni:
– Reynsla af stjórnun hugbúnaðarþróunar
– Rík skipulagshæfni og háskólapróf sem nýtist í starfi
– Þekking á Agile
DevOps
DevOps teymi ber ábyrgð á reglulegum uppfærslum
hugbúnaðarlausna og gæðum uppfærsluferla. Einnig
eftirliti og rekstri skýjaumhverfis AZAZO.
Æskileg menntun, reynsla og hæfni:
– Háskólapróf í tölvunarfræði er kostur
– Þekking á Qstack, Salt, Solr, Linux Systems Admin-
istration, Distributed systems, vinnu við flókinn kóða,
Statsd/Ganglia/önnur eftirlitstól, Elasticsearch,
PostgreSQL, Docker, CI tools, OpenStack Swift,
Scrum/Kanban, Logstash
Hönnuður
Við leitum að viðmótssérfræðingi eða hönnuði fyrir
fjölbreytileg verkefni fyrirtækisins. Viðkomandi ber
ábyrgð á hönnun og rekstri á vefsíðu okkar, auglýsing-
um, ýmsu prentefni og viðmóti hugbúnaðarlausna.
Æskileg menntun, reynsla og hæfni:
– Reynsla af viðmótsvinnslu
– Menntun sem nýtist í starfi
– Gott vald á forritun fyrir framenda
– Dæmi um vinnu má gjarnan fylgja umsókn
Kerfisstjóri
Kerfisstjóri ber ábyrgð á öllum innri kerfisrekstri, þar á
meðal rekstri útstöðva starfsmanna, símkerfis og
póstþjóns. Hann ber ábyrgð á því að sinna beiðnum
starfsmanna vegna tæknitengdra mála.
Æskileg menntun, reynsla og hæfni:
– Færni í að finna lausnir á tölvutengdum vandamálum
– Þekking á Google Apps, Swyx og Active Directory
– Reynsla af rekstri staðarneta
Verkefnastjóri / Ráðgjafi
Við óskum eftir öflugum verkefnastjóra / ráðgjafa í
ráðgjafateymið okkar. Meðal verkefna teymisins eru
verkefnastjórnun, ferlagreiningar, upplýsingastjórnun
og gæðastjórnun. Einnig innleiðing CoreData
hugbúnaðarlausna og ráðgjöf til viðskiptavina.
Æskileg menntun, reynsla og hæfni:
– Háskólapróf og reynsla sem nýtist í starfi
– Góð kunnátta í upplýsingatækni
– Færni í mannlegum samskiptum og hópvinnu
www.azazo.is