Fréttablaðið - 26.09.2015, Side 61

Fréttablaðið - 26.09.2015, Side 61
| ATVINNA | LAUGARDAGUR 26. september 2015 15 Seltjarnarnesbær www. seltjarnarnes. is Laust starf Grunnskóli Seltjarnarness –unglingastig • Stuðningsfulltrúi, 80% starfshlutfall. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Ólafsdóttir, þroskaþjálfi, johannao@grunnskoli.is, sími 5959200. Öllum umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar -undir http://www.seltjarnarnes.is –Störf í boði Umsóknarfrestur er til 4. október næstkomandi. Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga. Sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar fullt starf sérfræðings á skrifstofu heilbrigðisþjónustu. Skrifstofan fjallar um skipulag heilbrigðisþjónustu, sérhæfingu og verkaskiptingu þjónustuaðila, þjón- ustukerfi sveitarfélaga, eignarhald þjónustustofnana og hæfni og árangur heilbrigðisstofnana. Starfssvið: Vinna við faglega stefnumörkun í heil- brigðismálum og nánari útfærslu hennar. Í starfinu felst jafnframt að fylgja eftir faglegri þróun heil- brigðisþjónustu, utan sem innan heilbrigðisstofnana, þ.m.t. heilsugæslu, sérfræðiþjónustu, sjúkrahús- þjónustu, endurhæfingu, rannsóknum, auk annarra verkefna sem undir skrifstofuna og ráðuneytið heyra. Menntunar- og hæfniskröfur: Gerð er krafa um að umsækjendur hafi háskólamenntun og reynslu á sviði heilbrigðismála. Æskilegt er að þeir hafi þekk- ingu á starfsemi heilbrigðisstofnana og framhalds- menntun á sviði stjórnunar. Umsækjendur þurfa að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt. Þá er gerð krafa um að þeir hafi gott vald á íslensku, ensku og einu öðru Norðurlanda- máli auk almennrar tölvukunnáttu. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Ráðuneytið hvetur karla, jafnt sem konur, til að sækja um starfið. Upplýsingar um starfið veitir Sveinn Magnús- son, skrifstofustjóri (sveinn.magnusson@vel.is). Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu berast velferðarráðuneytinu, Hafnar- húsinu við Tryggvagötu, 101 Reykjavík eða á postur@vel.is. eigi síðar en 12. október 2015. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Velferðarráðuneytinu, 24. september 2015. Við óskum eftir hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum í launað starfsnám til sérfræðiviðurkenningar í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði. • Að efla og bæta við klíníska færni og þekkingu á viðkomandi sérsviði hjúkrunar/ ljósmóðurfræði • Fá þjálfun í fræðilegum vinnubrögðum og bæta við rannsóknareynslu • Að þjálfa ýmiskonar hlutverk sérfræðings á viðkomandi sérsviði Markmið starfsnámsins • Meistarapróf sem uppfyllir skilyrði reglugerðar um veitingu sérfræði- leyfa í hjúkrun og ljósmóðurfræði nr. 124/2003 og nr. 1089/2012 • Áhugi og metnaður til sérfræði- viðurkenningar á tilteknu sviði hjúkrunar- eða ljósmóðurfræði • Íslenskt hjúkrunar-/ljósmóðurleyfi Hæfnikröfur Starfsnámið er einstaklingsmiðað í 9-24 mánuði á tímabilinu 1. nóvember 2015 - 1. janúar 2016. Starfshlutfall tekur mið af lengd námsins. Nánari upplýsingar veita Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, (sigridgu@landspitali.is, 543 1106) og Hrund Sch. Thorsteinsson, deildarstjóri, (hrundsch@landspitali.is, 543 1490). Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2015. HJÚKRUNAR- OG LJÓSMÓÐURFRÆÐI Launað starfsnám til sérfræðiviðurkenningar Umsókn fylgi náms- og starfsferil- skrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf þar sem tilgreind eru persónuleg markmið með starfsnáminu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur. Laun skv. kjarasamningi fjármála- ráðherra og stéttarfélags. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf”. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttis- stefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Landspítali er lifandi og fjölmennur vinnustaður með um 5.100 starfsmenn. Hann er aðalsjúkrahús landsins og miðstöð menntunar og rannsókna í heil brigðisvísindum. Á Landspítala er lögð áhersla á öryggi, jafnrétti, ábyrgan rekstur, góðan starfsanda og bættan húsakost. Við leitum eftir metnaðarfullum einstaklingum í starfsnám á geðsviði Landspítala. Störfin eru veitt í 4-12 mánuði og ráðið er í þau á tímabilinu 1. desember 2015 til 1. maí 2016. Þau geta nýst sem hluti af sérnámi í öðrum sérgreinum en geðlæknisfræði, svo sem heimilis-, endurhæfingar- og öldrunarlækningum. Einnig gott tækifæri fyrir heimilislækna sem vilja auka við þekkingu sína á greiningu og meðferð geðsjúkdóma í teymisvinnu. LÆKNAR Í STARFSNÁM Geðsvið Landspítali er lifandi og fjölmennur vinnustaður með um 5.100 starfsmenn. Hann er aðalsjúkrahús landsins og miðstöð menntunar og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Á Landspítala er lögð áhersla á öryggi, jafnrétti, skilvirka verkferla, ábyrgan rekstur, góðan starfsanda og bættan húsakost. Helstu verkefni og ábyrgð • Þjálfun í geðlækningum og klínísku • Þátttaka í kennslu- og fræðslu dagskrá námslækna tvo virka daga í mánuði • Þátttaka í handleiðslu og þjálfun í samtalsmeðferð, m.a. hug rænni atferlismeðferð, psychodynamískri meðferð og áhugahvetjandi samtölum • Þátttaka í rannsóknum og í hópmeðferð Hæfnikröfur • Hæfni til að vinna sjálf stætt og sýna frumkvæði • Hæfni og geta til að vinna í teymi • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum • Vilji til þátttöku í áfram haldandi þróun sérnámsins • Almennt Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2015. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt lækningaleyfi. Starfshlutfall er 80-100% Umsjón með framhaldsmenntun unglækna á geðsviði hefur Nanna Briem yfirlæknir (nannabri@landspitali.is, 543 1000) og veitir hún nánari upplýsingar ásamt Engilbert Sigurðssyni yfirlækni (engilbs@landspitali.is, 543 1000). Laun skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og stéttar- félags. Sótt er um starfið rafrænt á www.landspitali.is, undir „Laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.