Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 74
Náms- og rannsóknarstyrkur
Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir
eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk
fyrir árið 2014. Styrkurinn nemur 1.200.000 kr.
Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að
rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi.
Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna
ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi
fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.
Umsóknarfrestur er til 3. nóvember
næstkomandi. Nánari upplýsingar á
www.fraedslunet.is og www.hfsu.is.
Steypumót fyrir krana.
Mjög lítið notuð PREFORM kranamót til sölu ásamt I bitum,
steypusílói, stoðum fyrir undirslátt ofl.
Mótin skiptast í aðalatriðum þannig:
20 stk. flekar 300x240,
14 stk. flekar 300x48,
2 stk. flekar 300x30.
Út- og innhorn,
150 stoðir fyrir undirslátt,
vinnupallafestingar, ofl. ofl.
Upplýsingar í síma 896 1012 og 898 1014
Auglýsing um umhverfismat tillögu samgönguráðs
að samgönguáætlun 2015-2026
Samgönguráð auglýsir hér með umhverfismat á tillögu að
samgönguáætlun 2015-2026 til kynningar í samræmi við lög nr.
105/2006 um umhverfismat áætlana. Tillaga samgönguráðs að
samgönguáætlun er unnin í samræmi við lög nr. 33/2008 um
samgönguáætlun. Þar er mörkuð stefna og markmið fyrir allar greinar
samgangna næstu tólf árin. Með umhverfismatinu hafa verið skilgreind
helstu áhrif sem kunna að verða vegna samgönguáætlunar og
aðgerðir sem ráðast þarf í til að tryggja að dregið verði úr líklegum
neikvæðum umhverfisáhrifum samgönguáætlunar.
Undirbúningur vinnu við tillögu að samgönguáætlun 2015–2026 hófst
árið 2013. Við mótun tillögunnar hefur verið haft víðtækt samráð við
landshlutasamtök sveitarfélaga, atvinnulíf og fulltrúa frjálsra
félagasamtaka.
Samhliða mótun tillögu samgönguráðs að samgönguáætlun
2015-2026 var unnið að umhverfismati áætlunarinnar í samræmi við
lög nr. 105/2006. Umhverfismatið er hér með auglýst til kynningar.
Með umhverfisskýrslu fylgja til hliðsjónar drög að tillögu að
samgönguáætlun ásamt að greinargerð. Ekki er óskað eftir sérstökum
athugasemdum við þessi fylgigögn.
Umhverfismat samgönguáætlunar ásamt drögum að samgönguáætlun
liggur frammi til kynningar hjá eftirtöldum samgöngustofnunum:
• Samgöngustofu, Ármúla 2, 108 Reykjavík
• Vegagerðinni, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík
Frestur til að gera athugasemdir við umhverfismat samgönguáætlunar
er til og með 13. nóvember 2015. Athugasemdir skal senda
bréfleiðis, merktar umhverfismat, á innanríkisráðuneytið,
Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið
postur@irr.is.
Hægt er að nálgast auglýst gögn á vefsvæði samgönguáætlunar á
vef innanríkisráðuneytisins.
Vefslóðin er eftirfarandi: http://www.innanrikis-
raduneyti.is/verkefni/malaflokkar/samgonguaaetlun/
Samgönguráð
Umsóknarfrestur
15. október 2015
Nánari upplýsingar
www.efla.is
Við styðjum samfélagið
ÍSLAND • DUBAI • FRAKKLAND • NOREGUR • SVÍÐÞJÓÐ • PÓLLAND • TYRKLAND
EFLA verkfræðistofa starfrækir samfélagssjóð sem hefur að markmiði að styðja jákvæð og
uppbyggileg verkefni í samfélaginu. Úthlutanir styrkja úr sjóðnum fara fram tvisvar á ári, að vori
og hausti.
Óskað eftir umsóknum.
Samfélagssjóður EFLU óskar nú eftir umsóknum. Hverri umsókn skal fylgja kjarnyrt og greinargóð
lýsing á viðfangsefni og markmiðum, og skal miðað við umsóknartexta á einni blaðsíðu.
Umsóknir þurfa að berast sjóðnum fyrir 15. október næstkomandi. Vinsamlega nálgist nánari
upplýsingar og leiðbeiningar vegna umsókna á efla.is.
Fundurinn verður haldinn mánudaginn 28. september kl. 17:00 í Borgartúni 12-14 í
Vindheimum á 7. hæð, gengið er inn um eystri dyr í Borgartúni 14.
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Boðað er til kynningarfundar vegna
aðal- og deiliskipulagsbreytinga á
reit 1.154.3 Barónsreit
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Breyting á deiliskipulagi reits 1.154.3 Barónsreits.
Kynnt verður tillaga T.ark teiknistofu arkitekta ehf dags. júlí/ágúst 2015,
unnin fyrir hönd lóðarhafa, að breytingu á deiliskipulagi hluta reitsins. Í
tillögunni felst talsverð breyting á vesturhluta reitsins, að undanskilinni
lóðinni Hverfisgötu 83, Bjarnarborg. Meðal annars breytist fyrirkomulag
húsa úr þremur turnbyggingum yfir í randbyggð og eina turnbyggingu,
byggingarmagn, húshæðir og lóðir.
Einnig verður kynnt breyting á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 2010-2030, Barónsreitur-Skúlagata.
Kynnt verða drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur,
dags. september 2015. Breytingin felst í því að heiti reitsins verður
Barónsreitur-Skúlagata og skilgreining um hæðir húsa verður 4-6/6-16
og heimild um fjölda íbúða verður 80-200 í stað 100 áður.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 29. september kl. 16:30 í Borgartúni 12-14 í
Kerhólum á 7. hæð, gengið inn um vestari dyr að Borgartúni 12.
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Boðað er til kynningarfundar vegna
aðal- og deiliskipulagsbreytinga
á Kirkjusandsreit
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Breyting á deiliskipulagi Kirkjusandsreits
Deiliskipulagsbreytingin felst í uppbyggingu blandaðrar byggðar
á svæðinu.
Um er að ræða byggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis í samræmi
við markmið Reykjavíkurborgar í nýju aðalskipulagi.
Einnig verður kynnt breyting á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 2010-2030 fyrir Kirkjusandsreit
Kynnt verður breyting á aðalskipulagi – sem felst í fjölgun íbúða
á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur