Fréttablaðið - 26.09.2015, Side 96

Fréttablaðið - 26.09.2015, Side 96
Illugi Jökulsson veltir fyrir sér þeirri aðkallandi spurningu hvernig geimverum myndi lítast á nýjasta dýrling kaþólsku kirkjunnar. Flækjusaga E inhvers staðar las ég á netinu að nú þætti vísindamönnum fara að kortast líkurnar á að finnast mundi önnur viti borin tæknimenn­ ing í alheiminum en okkar. Þeir sögðu sem svo að ef tæknivæddar geimverur væru um allt, þá hlytum við nú þegar að vera búin að sjá ein­ hver merki um þá miklu orkunotk­ un þeirra sem tæknimenning krefst. Að ekki sé nú minnst á að við ættum að vera löngu búin að ná sjónvarps­ sendingum geimveranna en á ein­ hverjum tímapunkti í þróun sinni hlytu þær að hafa sent frá sér sjón­ varpsbylgjur. En í mínu sjónvarpi er semsé hvergi að finna AlienTV. Niðurstaðan getur því aðeins orðið sú að við séum einu lífverurnar í alheiminum sem höfum þróað með okkur tæknimenningu. Nú var það svo að málsmetandi menn hafa, þrátt fyrir sjónvarps­ leysið utan úr geimnum, enn mikla trú á að þar sé eitthvað að finna. Nú er að minnsta kosti nýhafin umfangsmesta geimveruleit okkar hingað til. Svo ég vona það besta. Forvitnin í mér hefur nefnilega allt­ af krafist þess að geimverur séu til og helst að ég fái að kynnast þeim eitthvað áður en ég dey. En um leið hefur mér reyndar upp á síðkastið farið að blöskra svolítið tilhugsunin um hvernig geimverunum litist á blikuna ef þær rækjust nú hingað sem gestir yfir óravíðáttu geimsins. Hvað myndu gestirnir sjá? Myndu þeir ganga glaðir inn í hús tegundar sem vissulega getur unnið saman og reist og þróað ýmislegt snoturt, en er öðrum stundum sjálfri sér svo sundurþykk að það stappar brjálæði næst? Geimverur, sem ná því stigi að ferðast milli stjarnanna, hljóta eiginlega að vera búnar að losa sig við mesta glóruleysið úr menningu sinni og hugsun, og hvernig gæti þá sómakær háþróuð geimvera annað en fyllst hryllingi og vonleysi þegar hún stæði andspænis meintum vits­ munaverum, sem hefðu vissulega náð fágætum árangri í vísindum og tækni á örskömmum tíma, en væru líka tilbúnar til að drepa hver aðra í hrönnum og ganga sjálfar í dauðann í þrotlausu þrefi um hver ætti flott­ asta ósýnilega vininn – eins og ein­ hver orðaði það. Frumbyggi húðstrýktur Og nú víkur sögunni eins og hendi sé veifað utan úr víðáttum geimsins og niður í sólbakaða rykuga trú­ boðsstöð í Kaliforníu og þar er kufl­ klæddur maður tæplega sjötugur að lúberja ungan frumbyggja með hnútasvipu sem aðrir munkar hafa bundið við staur. Munkurinn leggur sig allan fram við barsmíðarnar þótt hann sé bersýnilega sárþjáður sjálf­ ur af fótarmeini og ýmsum kvillum, og hann lætur sig einu gilda þján­ ingarópin frá unga frumbyggjanum sem hangir í böndunum, nema hvað þegar munkurinn hefur lokið sér af, þá gerir hann krossmark í bak og fyrir og fullvissar hinn húð­ strýkta um að þetta hafi verið guði til dýrðar og nú hafi hann færst nær himnaríki og eilífri sælu. Þessi mynd af guðsmanninum að lúskra á manni sem hafði á einhvern hátt gengið gegn smámunasemi munkareglunnar, sem hélt úti trú­ boðsstöðinni, hún var því miður ekki s j a l d g æ f . Munkurinn var af reglu Fransiskana og þeim hafði verið fengið það verkefni a f s p æ n s k a kónginum að útbreiða kristin gildi í Kaliforníu, og það gerðu þeir svona – með hörku og ofbeldi þegar svo bar undir. Frumbyggj­ arnir eða hinir svonefndu Indíánar á svæðinu fengu ekkert val um hvort þeir vildu undirgangast kristindóm­ inn, kærleika Krists var troðið ofan í þá með offorsi og munkarnir lögðu sig meðvitað fram um að uppræta siði, tungumál og menningu frum­ byggjanna, svo þeir yrðu móttæki­ legri fyrir bænakvakinu og synda­ talinu. Munkurinn sem mundaði hnútasvipuna var æðsti yfirmaður Fransiskana á allmörgum trúboðs­ stöðvum þar um slóðir og hann var með einhverjum undarlegum hætti ekki talinn vondur maður. Hann hét Junípero Serra og fæddist af fátæku bændafólki á Mæjorka 1713. Frá blautu barnsbeini þráði hann að ganga í þjónustu kirkjunnar og breiða út trú á Jesú Krist. Hann varð doktor í guðfræði og hefði getað setið á hægum sessi á Mæjorka en reri að því öllum árum að komast til Mexíkó og gerast trúboði á slóð­ um þeirra Indíána sem enn voru heiðnir. Tæplega fertugur komst hann vestur um haf og var þar til æviloka. Hann var atorkumaður og brennandi í andanum svo honum voru brátt falin á b y r g ð a r ­ v e r k . T i l dæmis var h a n n u m skeið útsend­ a r i r a n n ­ sóknarréttarins illræmda í hér­ aði einu og sendi skýrslur til yfir­ boðara sinna um ægi­ legar galdrakindur meðal héraðsbúa. Hann hafði þá látið handtaka nokkra, einkum konur, sem hann sakaði um viðurstyggi­ lega glæpi eins og ákalla andskot­ ann í líki kiðlinga og fljúga um loftið á kústsköftum. Serra krafðist harðrar refsingar yfir þeim djöfla­ dýrkendum, ella myndi viðbjóður þessi breiðast út til frumbyggjanna. Því miður hefur mér ekki tekist að afla upplýsinga um hvaða refsingu þessar galdrakindur fengu, en rann­ sóknarrétturinn var náttúrlega ekki þekktur fyrir hálfkák eða miskunn. Sjálfspíslir Serra var þá líka orðinn frægur fyrir sjálfspíslir þær sem hann lagði á sig. Þær áttu að hreinsa sálu hans af syndum. Innan á kuflum Serra voru því ýmist þyrnar eða vírbútar sem rifu sífellt hörundið til blóðs, hann barði sig grjóti við hvert tækifæri, húðstrýkti sig með hárbeittum járnstöngum og hnútasvipum, og neitaði að láta gera að vondu sári á fæti svo hann varð æ haltari með árunum. Af einhverjum ástæðum hneigðust trúmenn í þá daga og stundum síðar til að telja eitt­ hvað göfugt og kristilegt við slíkan masókisma ef yfirbragð hans var trúarlegt en ekki einungis kynferðis­ legt, en jafnvel þá þótti Serra ganga helstil langt í blóðþorsta sínum. Hins vegar þótti yfirboðurum hans framganga hans gegn frum­ byggjum í Kaliforníu til stakrar fyrirmyndar. Sú stóra Kalifornía sem Serra átti að annast tilheyrir reyndar nú bæði Mexíkó og Banda­ ríkjunum. Þangað var hann skip­ aður 1768 og gekk afar rösklega fram allt til æviloka 1784. Það eru til mörg dæmi um að Serra hafi sýnt einstökum frumbyggjum góðvild og jafnvel hlýju. En á þeim sama tíma létu líka þúsundir frumbyggja lífið þegar lifnaðarháttum þeirra var ger­ bylt, menning þeirra svívirt, margir drepnir sem hreyfðu mótbárum, öðrum refsað harðlega fyrir það sem þeim fannst óskiljanleg brot á dogmatískum siðareglum Spánverj­ anna. Og frumbyggjum var í fyrsta sinn kennt að berja börnin sín, það höfðu þeir aldrei látið sér detta í hug áður en var nú tjáð að það væri guði þóknanlegt og í samræmi við kristin gildi. Lítill vafi er á að Serra trúði því í einlægni að þær ruddalegu trú­ boðsaðferðir sem hann og aðrir Fransiskanar notuðu, og þær ströngu refsingar sem hann og fleiri beittu, væru mikil sáluhjálp frum­ byggjunum og eina ráðið til að forða þeim frá helvíti. En bætir einlægnin orðspor hans? Er nokkuð hættu­ legra en hugsjónamenn sem telja sig hafa höndlað hinn eina sann­ leika og þeir hafi umboð frá guði til að ráða lífi og dauða annars fólks? Prúðmennið Frans páfi En hvað? Ég sagði sjálfur áðan að þetta væri ekki óalgeng saga. Hvað er þá merkilegt við hana? Og hvað kemur hún geimverum við? Jú, ef við fengjum nú gesti og þeir kæmust að því að andlegur leiðtogi stórs hluta mannkynsins – hið ann­ álaða prúðmenni Frans páfi – hefði rétt í þessu tekið Junípero Serra, mann sem er persónulega ábyrgur fyrir dauða og þjáningum þúsunda, að páfi hefði tekið hann í dýrlinga­ tölu sakir guðhræðslu hans – sem þýðir í raun að Serra telst nú sérlega guði þóknanlegur, hann er talinn fyrirmynd annars fólks og sérstakt göfugmenni og eiginlega kominn í stöðu hálfguðs því það má nú biðja til hans eins og guðs – hvernig ættu gestirnir að skilja það? Nei, það varla hægt að bjóða gestum upp á svoleiðis furður. Svo kannski er þrátt fyrir allt best að það komi engir gestir, já, það séu bara alls engir gestir til, við séum ein hér í húsinu, kannski að smíða undursamleg tæki á efri hæðunum en að murka lífið hvert úr öðru í kjallaranum, og tilbiðjum ofstopa­ menn eins og Serra á miðhæðinni, og umhverfis húsið sé ekkert. Já, kannski er það bara best. Dýrlingurinn eð hnútasvipuna JUNÍPERO SERRA. ÓVINUR DJÖFULSINS, VINUR SVIPUNNAR Frumbyggjar skemmta sér. Svona fjör kvað Serra í kútinn. ER NOKKUÐ HÆTTULEGRA EN HUGSJÓNAMENN SEM TELJA SIG HAFA HÖNDLAÐ HINN EINA SANNLEIKA OG ÞEIR HAFI UMBOÐ FRÁ GUÐI TIL AÐ RÁÐA LÍFI OG DAUÐA ANNARS FÓLKS? 2 6 . S E P T E M B E R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.