Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 100
Ástkær bróðir minn og mágur,
Þorgrímur Einarsson
sýningarstjóri,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund þann 23. september. Útförin
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 2. október kl. 15.00.
Margrét Guðmundsdóttir
Sigrún Hermannsdóttir
og aðstandendur.
Faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og vinur,
Vigfús Magnússon
læknir,
Sóltúni 10, Reykjavík,
varð bráðkvaddur á fjöllum
mánudaginn 21. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 30. september kl. 13.00. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþökkuð en þeim er vildu minnast hans
er bent á líknarfélög.
Kristín Vigfúsdóttir Finnur Ingólfsson
Ragnhildur Vigfúsdóttir Hafliði Helgason
Ástríður Vigdís Vigfúsdóttir Árni Leifsson
Guðrún Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku sonur okkar, bróðir og mágur,
Davíð Þór Egilsson
lést af slysförum 19. september
síðastliðinn. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarathöfn
sem fer fram í Fella- og Hólakirkju,
mánudaginn 28. september kl. 17.00.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Arnheiður M. Þórarinsdóttir Jón Þ. Steinþórsson
Egill Geirsson
Linda Björg Arnheiðardóttir Ægir Freyr Stefánsson
Hildur Birna Egilsdóttir Jose MBA
Herdís María Jónsdóttir Elísa Dagrún Jónsdóttir
og aðrir ástvinir.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Sigurður Í. Ámundason
löggiltur endurskoðandi,
lést á heimili sínu, Dalbraut 14,
Reykjavík, þann 16. september sl. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey. Bestu þakkir og
kveðjur færum við vinum, vandamönnum, Brynjari lækni,
dagdeild 11C og Karitas heimahjúkrun. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Karitas heimahjúkrun og aðrar
líknarstofnanir.
Jóhanna Óskarsdóttir
Finnur Ísfeld Sigurðsson Málfríður Vilmundardóttir
Sigríður Lóa Sigurðardóttir Ævar Örn Ævarsson
Jóhanna Sif
Ámundi Örn Ísfeld
Ólafía Ósk
María Lóa
Sigurður Ísfeld
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og afa,
Vals Waage
Lindarseli 5.
Guð blessi ykkur öll.
Helena Ásdís Brynjólfsdóttir
Guðrún Lind Valsdóttir Waage Smári Arnarsson
Stefanía Lind Stefánsdóttir Waage Bjarki Stefánsson
Stefán Valur Stefánsson
Ásdís Halldóra Lind Stefánsdóttir Waage
Stefán Stefánsson
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r44 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Margrét Helga Hjartardóttir flytur
erindi í dag á Evrópska tungumáladeg-
inum. Í erindinu fjallar hún um stöðu
tungumálakennslu í Kvennaskólanum
eftir styttingu náms til stúdentsprófs,
en haustið 2009 tók skólinn upp nýja
námskrá þar sem miðað er að því að
útskrifa nemendur með stúdentspróf
eftir þriggja vetra nám.
„Til að gera langa sögu stutta fóru
enskan og danskan þá leið að skera út
alla upprifjun úr grunnskólanáminu og
byrjuðu ofar. Kennarar reyndu að skera
neðan af náminu og þétta allt, breyta
inntaki námskeiðanna og kennsluað-
ferðum,“ segir Margrét. Hún segir það
hafa gengið ágætlega í enskunni, þó
þorir hún ekki að fullyrða um upplifun
enskukennaranna.
Margrét segir dönskukennara þó ekki
hafa sömu sögu að segja. „Dönskukenn-
ararnir finna fyrir gapi á milli grunn-
skóla og framhaldsskóla. Það má segja
að kennarar þar séu ósáttir og finnist
að danskan hefði þurft að fá meira svig-
rúm við gerð nýrrar námsskrár,“ segir
hún.
Margrét segir stöðuna versta í þýsku-
og frönskukennslu, en skólinn kennir
málin sem þriðju mál. Ekki var hægt að
sleppa neinu úr fyrstu áföngum kennsl-
unnar þar sem málin eru kennd á byrj-
endastigi, ólíkt ensku og dönsku.
„Það sem við horfumst í augu við er
að einingum fækkaði á öllum brautum
og þar er kannski sárasta skerðingin í
okkar tilviki. Á brautum sem við köllum
félagsvísinda- og náttúruvísindabrautir
fór þriðja mál úr fjórum áföngum niður
í þrjá, þetta finnst okkur mikil afturför.
Þetta er til dæmis ekki nógur grunnur ef
maður ætlar síðan í háskólanám í mál-
inu. Við erum ekki með jafngóða stúd-
enta í þessum málum og áður,“ segir hún.
Margrét segist þó ekki vera að segja
stúdentspróf Kvennaskólans minna
virði og ekki beint tala gegn styttingu
náms sem hafi sína kosti og galla. Hún
segir margt gott hafa fengist út úr stytt-
ingunni en undirbúningstími stytting-
arinnar í Kvennaskólanum hafi verið of
skammur, sumt hafi ekki verið nógu veil
ígrundað, til dæmis hvað varðar fjölda
eininga í kjarna brautanna. Hún segist
jafnframt ekki vera sátt við hlut þýsku
og frönsku.
„Okkur finnst skjóta skökku við að á
sama tíma og ferðaþjónusta er að aukast
svona mikið og þegar samfélagið og
markaðurinn kallar á fólk með aukna
málakunnáttu sé verið að skera niður í
tungumálanámi,“ segir Margrét.
thorgnyr@frettabladid.is
Stytting náms hefur slæm
áhrif á tungumálakennslu
Margrét Helga Hjartardóttir flytur erindi á Evrópska tungumáladeginum. Hún mun fjalla
um áhrif styttingar framhaldsskólanáms í Kvennaskólanum á kennslu í tungumálum.
Margrét Helga segir stöðuna versta í þýsku- og frönskukennslu. Fréttablaðið/GVa
Á þessum degi árið 1960 áttust
bandarísku forsetaframbjóð
endurnir John F. Kennedy
og Richard Nixon við í
einum frægustu sjón
varpskappræðum allra
tíma. Þetta var í fyrsta
sinn sem forsetafram
bjóðendur mættust
í sjónvarpskappræð
um í Bandaríkjunum
en þeim var einnig
útvarpað. Þetta voru
fyrstu kappræðurnar af
fjórum og tekist var á um
innanlandsmál.
Sjónvarp var nýjung á þessum
tíma og fæstir stjórnmála
menn höfðu leitt hugann
að því hvernig þeir
gætu nýtt það sér
í vil. Kennedy var
einn af þeim fáu
sem höfðu gert
það. Þegar hann
mætti í sjón
varpið var hann
nýkominn af
framboðsfundum
í Kaliforníu og var
sólbrúnn og hraust
legur. Nixon var á
hinn bóginn nýrisinn úr
rekkju eftir að hafa legið á
spítala um nokkurra vikna skeið vegna
hnémeiðsla. Hann var horaður og fölur
og þvertók fyrir að láta farða sig fyrir
sjónvarpið.
Yfirgnæfandi meirihluti sjón
varpsáhorfenda taldi að Kennedy
hefði borið sigur úr býtum en þeim
sem hlýddu á kappræðurnar í útvarpi
fannst vera mjótt á munum. Lengi var
það viðtekin skoðun að sjónvarps
kappræðurnar hefðu valdið straum
hvörfum í kosningabaráttunni og
Kennedy átt sigur sinn þeim að þakka.
Það er sennilega ofmat, en ljóst er að
Kennedy átti vinsældir sínar sannar
lega sjónvarpi að einhverju leyti að
þakka.
Þ ETTa g E r ð i sT :
2 6 . s E p T E M b E r 1 9 6 0
Kennedy og Nixon áttust við
1580 Francis Drake lýkur hnattsiglingu sinni
þegar Gullna hindin kemur til hafnar
í Plymouth.
1915 Við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík er
afhjúpaður minnisvarði um Kristján
9. konung á afmælisdegi Kristjáns 10.
Styttan, sem er eftir Einar Jónsson,
sýnir konung með stjórnarskrána í
framréttri hendi.
1939 Við Raufarhöfn neyðist bresk Cata
linasjóflugvél til að lenda vegna
þoku.
1942 Ríkið leggur niður einkasölu sína á bif
reiðum, sem það hafði haft í sjö ár.
1950 Vegna mengunar í lofti er dimmt
fram eftir degi á landinu og virðist
sólin vera bláleit. Talið er að þetta
stafi frá eldgosi á Filippseyjum eða
skógareldum í NorðurAmeríku.
1959 Í Reykjavík mælist metúrkoma á ein
um sólarhring, 49,2 millimetrar.
1960 Á leið sinni vestur um haf kemur
Harold Macmillan, forsætisráð
herra Breta, við á Keflavíkurflugvelli
og ræðir við starfsbróður sinn, Ólaf
Thors, um landhelgismálið.
1969 Ellefta breiðskífa Bítlanna, Abbey
Road, kemur út í London.
1970 Íslensk flugvél ferst á Mykinesi í Fær
eyjum. Þetta er Fokker Friendship
farþegavél frá Flugfélagi Íslands og
eru 30 farþegar um borð auk fjögurra
manna áhafnar. Átta manns farast,
þar af einn Íslendingur.
200 Á bilinu 1015 þúsund manns ganga
mótmælagöngu niður Laugaveg til
þess að mótmæla stóriðjustefnu rík
isstjórnarinnar. Þetta voru talin vera
fjölmennustu mótmæli á Íslandi frá
24. maí 1973.
2008 Gengisvísitala íslensku krónunnar
fer upp í 183,91 stig og hefur þá
aldrei verið hærri. Krónan hefur
aldrei verið lægri gagnvart evrunni
(1/140,96) og ekki lægri gagn-
vart bandaríkjadal síðan árið 2002
(1/96,80).
Merkisatburðir