Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 110
Í gegnum Katrín Sigurðardóttir myndlistar-
kona hefur á undanförnum árum
haslað sér völl í heimi alþjóðlegrar
myndlistar. Í tvo áratugi hefur hún
kannað hvernig skynjun okkar er
háð rýmislegri upplifun. Í verkum
sínum vinnur hún oft á mörkum
myndlistar og arkitektúrs.
„Skúlptúr er oftar en ekki bygging.
Íslenska orðið höggmynd nær aðeins
yfir verk sem eru höggvin út eða þar
sem form er grafið út úr stærri massa.
En skúlptúr getur líka verið byggður
upp og þannig er það yfirleitt í
mínum verkum. Upphaflega hafði
ég áhuga á arkitektúr sem aðferð
til að lýsa rými í gegnum teikningu.
Kannski að nota tæknimál til að
gera mjög ótæknilegum hliðum til-
verunnar skil. Pendúllinn í arkitektúr
er alltaf mannveran, og þó að hana
vanti alltaf í verkin mín, þá er hún
samt sem áður aðalviðfangsefnið.“
Katrín sýnir í Bandaríkjunum og
Evrópu en eftir viku verður opnuð
í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur
sýningin Horft inn í hvítan kassa.
Þar verður skyggnst inn í myndheim
Katrínar frá hugmynd til listaverks.
„Í gegnum list komumst við nær
kjarnanum í lífi okkar, á þann hátt
sem við getum ekki í gegnum hvers-
dagslega upplifun. Fyrir mér er það
bæði tilgangur og nauðsyn þess sem
ég geri.“
list
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Boiserie Verkið Boiserie er nákvæm endurgerð á frönsku 18. aldar herbergi sem er varðveitt í Metropolitan-
safninu. Verkið gerði Katrín í boði safnins og var það sýnt þar árið 2010. Verkið, sem er í 80% stærð, er lokaður
marghyrndur klefi sem áhorfendur skoða í gegnum veggspegla hans. Verkið er drifhvít kyrralífsmynd, fullbúin
með húsgögnum og húsmunum herbergisins og hefur draumkennda og jafnvel draugalega áferð. Þetta verk hefur
nýlega bæst í safneign Listasafns Reykjavíkur og verður opnuð sýning með því og öðrum verkum Katrínar þar
3. október.
ÓByggð hús í reykjavík 1920-1930 Á síðustu 10 árum hefur
Katrín unnið seríu af verkum þar sem viðfangsefnið er óbyggð hús í Reykjavík. Þessi
verk eru gerð úr ýmsum efnum eftir arkitektateikningum frá því milli 1920-1930,
af húsum sem voru aldrei byggð. Eftir að Katrín skapar þessi módel, eru þau ýmist
brotin eða brennd, en síðan endurbyggð og verða þannig eins og minjar um fyrra
ástand sitt. Þessi verk ásamt seríunni Ellefu, sem samanstendur af ellefu verkum
þar sem Katrín minnist bernskuheimilis síns í Hlíðunum, voru í aðalhlutverki á
stórri sýningu Katrínar í MIT háskólalistasafninu í Boston síðasta vor.
supra Terram
Supra Terram er latína
og þýðir að koma upp á
yfirborðið. Þetta er titill
á síðustu einkasýningu
Katrínar, í Parasol Unit
Foundation for Con-
temporary Art í London,
í sumar. Þar sýndi hún
stóran helli sem teygði
sig af fyrstu hæð upp á
aðra hæð. Verkið er risa-
stórt á neðri hæðinni en
einungis efsti toppurinn
sendur upp úr gólfinu
á efri hæðinni. Þannig
upplifir áhorfandinn
verkið bæði sem
ægistórt og pínulítið,
eftir því hvort hann er
uppi eða niðri.
BouveToya Verk Katrínar, Bouvetoya, má sjá í New York um þessar
mundir en þar er það til sýnis í The High Line lystigarðinum sem liggur ofan
á gömlum upphækkuðum járnbrautarteinum í Chelsea-hverfinu. Þetta
er í fyrsta skipti sem undirhlið garðsins eru notuð, og hefur Katrín hengt
litla eyju á hvolf yfir höfðum vegfarenda. Verkið er endurgerð á raunveru-
legri eyju í Suður-Atlantshafi, sem um margt er lík Íslandi. Verkið er hluti af
sýningunni Panorama og stendur hún fram í mars 2016.
Katrín Sigurðardóttir í óða
önn að setja upp sýninguna í
Hafnarhúsinu.
Fréttablaðið/GVa
komumst
við nær
kjarnanum
í lífi okkar
Næstkomandi laugardag verður opnuð í
hafnarhúsi Listasafns reykjavíkur
sýning á verkum katrínar sigurðar
dóttur. Þar gefst gestum kostur á að
skyggnast inn í myndheim listakonunnar.
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r54 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning