Fréttablaðið - 26.09.2015, Page 128
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Pawels
Bartoszek
Bakþankar
Þáttarstjórnandinn John Oliver tók nýlega fyrir bandaríska íþróttaleikvanga í þætti sínum.
Einn var með VIP-sundlaug á áhorf-
endapöllunum, annar hafði fiskabúr
hringinn í kringum hafnabolta-
flötinn og svo framvegis. Allt þetta
væri hið fínasta mál ef byggt væri
fyrir einkafé en það var oftast ekki.
Það var til dæmis algengt trikk hjá
NFL-liðum að hóta að flytja til Los
Angeles til að að kreista peninga út
úr pólitíkusum. Það virkaði oftast.
Maður myndi nú halda að hót
unin um að íslenska landsliðið í fót
bolta myndi flytja sig til útlanda ef
það fengi ekki betri völl væri hlægi
leg. En viti menn. Það var nákvæm
lega um það sem byrjað var að hóta
í kjölfar þess að karlalandsliðið
komst á stórmót. Sagt var að með
tilkomu nýrrar keppni væri oftar
leikið í nóvember og þá þyrfti bara
yfirbyggðan leikvang. En reyndar er
þegar gert ráð fyrir landsleikjum í
nóvember. Við bara reynum að leika
þá leiki úti og í það skipti sem það
gekk ekki, í umspilinu við Króatíu,
var bara leikið hér í kuldanum.
Látum ekki taka okkur á einföldu
„yfirmaðurinn bannar mér að selja
bílinn svona ódýrt“ trikki. Umrædd
ar breytingar á fyrirkomulagi lands
leikja í Evrópu, stofnun Evrópu
deildar landsliða og minniháttar
fjölgun leikdaga í nóvember voru
samþykktar af öllum aðildarfélögum
UEFA. KSÍ sagði ekki: „Sýnið okkur
miskunn! Við getum ekki spilað í
nóvember.“ Munum að KSÍ og UEFA
eru saman í liði. Og við, íslenskir
skattgreiðendur, erum í öðru liði.
Knattspyrnuhreyfingin er iðn
aður. Þeim iðnaði óska ég alls hins
besta. Það er alveg gaman að flottum
mannvirkjum. En það á ekki króna
af skattfé ríkisins eða stórskuldugr
ar höfuðborgar að fara í að byggja
einhvern glæsivöll sem fyllist þrisvar
á ári, þegar stórkostlega vel gengur.
Þeir sem slíkan völl vilja byggja verða
bara að borga fyrir hann sjálfir.
Lærum
að segja nei
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
MARIBOWL
Mikið úr val af Iittala
vörum í verslun okkar.