Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 6
Starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga einkennist mjög af því að hjúkrunarfræðinga vant -
ar til starfa á nánast öllum sjúkrahúsum, heilbrigðisstofnunum, hjúkrunarheimilum
og á heilsugæslustöðvum á landinu. félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (fíh) og ríkis -
endurskoðun vöktu athygli á þessum vanda á síðastliðnu ári í skýrslum um vinnu-
markað og menntun hjúkrunarfræðinga. félaginu berast oft fregnir af miklu álagi sem
þessu fylgir á starfandi hjúkrunarfræðinga. fíh hefur reglulega á síðustu árum lagt
fram ýmsar lausnir til að bregðast við skorti á hjúkrunarfræðingum, draga úr álagi á
starfandi hjúkrunarfræðinga og bæta starfsumhverfi. Því miður virðast þessar lausnir
ekki vera eitthvað sem nær eyrum núverandi ráðamanna þjóðarinnar ef tekið er mið
af því að engar raunhæfar tillögur eða lausnir hafa verið lagðar fram af hendi núver-
andi stjórnvalda.
fíh mun þrátt fyrir þetta halda áfram að vekja athygli á þessu ástandi og leita lausna.
Sem hluta af þeirri vegferð hélt félagið málþing um starfsumhverfi, álag í starfi og laun
og kjör hjúkrunarfræðinga í febrúar síðastliðnum. Málþinginu eru gerð góð skil hér í
tímaritinu, en sérstaklega var ánægjulegt að sjá hversu margir hjúkrunarfræðingar
mættu eða rúmlega 250. Einnig var málþinginu streymt í gegnum vefinn, en það er
nýjung og náði til tæplega 2000 manns. Þessi málaflokkur snertir hjúkrunarfræðinga
mikið enda starfsumhverfi mjög víða ábótavant í heilbrigðiskerfinu og starfsálag
mikið.
Könnun meðal félagsmanna um viðhorf þeirra
til starfsins, starfsánægju, vinnuumhverfi, aðbúnað
og líðan í starfi
niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var á meðal starfandi félagsmanna í nóvember
síðastliðnum um viðhorf þeirra til starfsins, starfsánægju, vinnuumhverfi, aðbúnað
og líðan í starfi styðja þetta einnig. Þátttakan var mjög góð eða tæplega 75% sem er
nánast fáheyrt í sambærilegum könnunum hjá öðrum stéttarfélögum. niðurstöður
könnunarinnar sýna mjög sterka mynd af viðhorfi hjúkrunarfræðinga til starfsum-
hverfis og álags í starfi. nánar má lesa um þær í tímaritinu. Þó vil ég sérstaklega taka
hér fram að niðurstöðurnar sýndu að tæplega helmingur telur atvinnuhúsnæðið
óviðunandi, 64% töldu álag vera mjög eða of mikið í starfi og 70% hjúkrunarfræðinga
eru óánægðir með launakjör. Þetta eru mikilvægar niðurstöður sem félagið mun nýta
sér, ásamt skýrslunni um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga og skýrslu ríkisendur -
skoðunar, í baráttunni fyrir bættum kjörum félagsmanna.
6 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Formannspistill
Breyttur tíðarandi meðal ungra hjúkrunarfræðinga
Vel heppnað málþing um starfsumhverfi, álag í starfi og laun og kjör
hjúkrunarfræðinga.
70% hjúkrunarfræðinga eru óánægðir með launakjör.