Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 72

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 72
pössuðu engan veginn inn í þessa staðalímynd vegna þess hve ungir þeir voru. fríða var 49 ára þegar hún fékk hjartaáfall. henni fannst hún ekki passa inn í staðalímynd hjartasjúklinga því hún var það ung, borðaði hollan mat, reykti ekki, var nokkurn veginn í kjörþyngd og hreyfði sig mikið. henni fannst það óraunveru- legt að vera komin í þá stöðu að fara í hjartaendurhæfingu með fólki sem var 20 árum eldra en hún. Ég var alltaf yngst alls staðar og mér fannst ég einhvern veginn bara … „ég tilheyri ekki þessum hópi“. Þegar ég var að fá póst: „kæri hjartasjúklingur,“ þá fannst mér það bara vera póstur sem var að villast hérna inn í mína tölvu … hL-leikfimi, ég fór í hana og þá var ég að labba svona hringi með fólki sem var 20 árum eldra en ég og mér fannst það … hræðilegt. Vangreind einkenni vegna ungs aldurs. Við hjartaáfallið var tæp- lega helmingur þátttakenda sendur heim eftir skoðun hjá lækni á heilsugæslustöð eða á bráðamóttöku án þess að fara í ýtarlegri skoðun með tilliti til kransæðaþrengsla eða hjartaáfalls. Samt var aðdragandinn að hjartaáfalli þátttakenda með þeim hætti að þeir lýstu einkennum hjartaáfalls ef skoðuð eru minna þekkt einkenni. aðeins rétt um helmingur þátttakenda fékk rétta greiningu strax eða sex af ellefu. aldur þátttakenda hafði áhrif á þá þjónustu sem þeir fengu á sjúkrastofnunum, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. andri var einungis 44 ára þegar hann fékk sitt fyrsta hjartaáfall en það var vangreint og hann var sendur heim með magalyf. Ekki voru mæld hjartaensím því hann var „of ungur“ til að vera að fá hjartaáfall. hann fékk sömu einkenni tveimur árum seinna og þá greindist hjartaáfall og sást að skemmd var í hjartavöðvanum frá því hann var yngri. Getur verið forréttindi að vera ungur. hallur, sem var 47 ára þegar hann fékk hjartaáfall, lýsti forgangi í heilbrigðiskerfinu vegna ungs aldurs miðað við eldri herbergisfélaga sem fór í opna hjartaaðgerð á sama degi: Ég var kominn … á undan honum og hann varð alveg vitlaus yfir því. hann var ekkert kominn á reykjalund þegar ég fór … það var aðeins önnur umsýsla við yngri manninn heldur en þann eldri. Það sá maður alveg. Andleg líðan í kjölfar áfallsins Þátttakendur upplifðu margvíslegar tilfinningar eftir hjarta- áfallið en flestir fundu til kvíða, þunglyndis og hræðslu. Þeir sem fannst áfallið koma aftan að sér voru oft með meiri andlega vanlíðan en þeir sem höfðu fundið fyrir einhverjum krankleika og nú væri komin skýring á vandamálinu. Meirihluti þátttak- enda fann fyrir andlegri vanlíðan en nokkrir sögðust ekki hafa fundið fyrir slíku. Þeir sem upplifðu andlega vanlíðan eftir hjartaáfallið töluðu flestir um að ef þeir hefðu fengið fræðslu um kvíða, þunglyndi og hræðslu hefðu þeir frekar áttað sig á hvað væri að hrjá þá og leitað sér hjálpar fyrr og á réttum stöðum. Kvíði, þunglyndi og hræðsla. Íris fann fyrir miklum kvíða eftir hjartaáfallið en henni fannst hjartaáfallið hafa komið aftan að sér. hún fór í þræðingu og útskrifaðist um helgi og fékk enga fræðslu um andlega líðan í kjölfar hjartaáfalls. Ég held að ég hafi verið svolítið dofin og ég held að ég hafi ein- hvern veginn ekki áttað mig á þessu enda talaði í sjálfu sér enginn við mig … ég var bara, liggur við, í fósturstellingunum heima hjá mér … ég fór að gráta af engu tilefni, ég var með hjartslátt, ég upplifði mig einhvern veginn aldrei heilbrigða …var bara að fara að deyja á morgun … var bara föst upp við vegg og ofandandi ofan í poka. Tilfinning um missi. Daníel var 47 ára þegar hann fékk hjarta- áfall. hann átti ekki von á því að fá hjartaáfall svona ungur en sjúkdómurinn var í ættinni þannig að hann átti alveg eins von á að fá hjartaáfall eftir fimmtugt. hann telur sig hafa farið í gegnum alla reiði- og sorgarferlana sem verða við missi. hjá honum var missirinn fólginn í því að missa heilsuna. Maður var alltaf smeykur og hræddur, sú tilfinning kom reglu- lega upp því maður vissi hvaða hættur fylgja því að standa í svona … Það tengist kannski þessu að vera pínulítið hræddur … Ég held að ég hafi lokað mig dálítið í skel og ekki talað um þessar tilfinningar eða talað um hættuna … alla vega hefðu börnin mín orðið dálítið hrædd ef ég hefði byrjað að tala um að ég væri hræddur … Þannig að ég lokaði dálítið á það að tjá tilfinningar mínar sem er náttúrlega slæmt líka. Sjálfsásökun. hallur hafði glímt við ofþyngd síðan hann var barn. hann hafði farið í alls kyns megrunarkúra en alltaf bætt á sig aftur. hjartaáfallið kom honum verulega á óvart, engin hjartaáföll höfðu orðið meðal ættingjanna og hann var einungis 47 ára. Í kjölfarið fann hann fyrir mikilli sjálfsásökun því hann tengdi ofþyngd sína, og að geta ekki passað upp á mataræðið, við að hafa fengið hjartaáfall. Eftir markvissa endurhæfingu, þar sem hann fékk góðar leiðbeiningar um hreyfingu og mat- aræði, hefur hann haldist í kjörþyngd. hún [andlega líðanin] var nú ansi bágborinn … maður var leiður og þungur. Maður felldi svona aðeins tár með þessu … var búinn að eiga við ofþyngd í mörg ár og fannst maður bera ábyrgð á hjartaáfallinu … Maður tengdi þetta alveg svakalega við þessa ofþyngd og [ég] kveið fyrir því að ég myndi ekki geta haldið einhverri eðlilegri þyngd og ég væri eiginlega á leið að drepast. Breytingar á lífsstíl Lífsstílsbreyting verður strax við áfallið. flestir þátttakendur tóku þá ákvörðun að breyta lífsstíl sínum í kjölfar hjartaáfallsins til að minnka líkur á að fá hjartaáfall á nýjan leik eða til að auka lífsgæði sín, og var þetta vendipunktur í lífi þeirra. Slíkur vendi- punktur varð hjá 9 af 11 þátttakendum. Þessir 9 þátttakendur breyttu lífsstíl sínum strax í kjölfar hjartaáfallsins. hjá meiri- hluta þátttakenda var það aðallega breyting á mataræði og hreyfingu. hjá tveimur var streitan eini áhættuþátturinn og drógu þeir úr vinnuálagi. hjá einum þátttakenda voru reyk- ingar aðaláhættuþátturinn og hætti viðkomandi strax að reykja við áfallið. Bjarni var 46 ára gamall þegar hann fékk fyrsta hjartaáfallið og var með alla áhættuþætti til staðar. Vendipunkturinn varð strax eftir hjartaáfallið þegar hann lá uppi í rúmi eftir hjarta - þræðingu og ígrundaði stöðu sína. birna gestsdóttir, árún k. sigurðardóttir og sigríður halldórsdóttir 72 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.