Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 50
Útdráttur Bakgrunnur: Mikil fjölgun í hópi þeirra sem vilja búa í sjálfstæðri búsetu þrátt fyrir versnandi heilsufar og óska eftir þjónustu heima- hjúkrunar gefur tilefni til þess að skoða kosti þess að nota samræmt matstæki, eins og interrai-matstækið (resident assessment instru- ment) sem metur heilsufar, færni og þjónustuþörf þjónustuþega. Tilgangur: að skoða heilsufar, færni og þjónustuþörf einstaklinga sem njóta þjónustu heimahjúkrunar á akranesi og á Sauðárkróki samkvæmt upplýsingum úr interrai-hC upphafsmati og MaPLe- reikniritinu sem forgangsraðar einstaklingum í þjónustuflokka eftir upplýsingum úr matinu. jafnframt að bera saman niðurstöður og skoða muninn á þeim og athuga hvort gagnlegt er fyrir heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu að nota slíkt matstæki. Aðferð: rannsóknin var megindleg afturskyggn lýsandi saman- burðarrannsókn. úrtakið var 60 skjólstæðingar heimahjúkrunar á akranesi og 42 skjólstæðingar á Sauðárkróki. Niðurstöður: Meðalaldur skjólstæðinga heimahjúkrunar á akranesi var 79,4 ár en 83,4 ár á Sauðárkróki. aldursflokkurinn 81–90 ára var fjölmennastur, 43,3% á akranesi og á Sauðárkróki 48,8%. fleiri skjól - stæðingar á akranesi fundu til einmanaleika, höfðu dregið úr þátttöku í félagsstarfi og höfðu orðið fyrir áföllum síðustu 90 daga en skjól - stæðingar á Sauðárkróki. Einvera yfir daginn og skerðing á skamm- tímaminni hjá skjólstæðingum var sambærileg á akranesi og á Sauð árkróki. um helmingur skjólstæðinga á báðum stöðum var með mæði eða öndunarerfiðleika og meirihluti skjólstæðinga á báðum stöðum fann til þreytu, eða í um 90% tilvika. um þriðjungur skjól - stæð inga á báðum stöðum hafði hlotið byltur síðustu 90 daga. fleiri þurftu aðstoð við lyfjatöku á Sauðárkróki en á akranesi. Ekki var marktækur munur á dreifingu í MaPLe-flokka og þjónustuþörf á akranesi og á Sauðárkróki. Skjólstæðingar á Sauðárkróki fengu ekki kvöldþjónustu frá heimahjúkrun og hvorki kvöld- né helgarþjónustu frá félagslegri heimaþjónustu en slík þjónusta var veitt á akranesi. Ályktanir: niðurstöður gefa til kynna að interrai-hC-upphafsmatið og MaPLe-flokkarnir geti nýst bæði heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu til að meta stöðu og þjónustuþörf skjólstæðinga þeirra og þar með veita þjónustu við hæfi og forgangsraða þjónustu til þeirra sem mest þurfa á henni að halda. Lykilorð: aldraðir, félagsleg heimaþjónusta, heimahjúkrun, interrai- hC, MaPLe, upphafsmat. Inngangur Áætlað er að veruleg fjölgun verði á fólki í aldurshópnum 65 ára og eldri til ársins 2065 á Íslandi eða frá því að vera 47.581 árið 2016 yfir í að vera 114.269 manns. Ef þetta gengur eftir er fjölgunin í þessum aldurshóp meira en 100% (hagstofa Íslands 2016). heimahjúkrun sinnir öllum aldurshópum en aldraðir eru stærsti hópurinn og m.t.t. mannfjöldaspárinnar þarf að horfa til framtíðar með umfang og gæði þjónustunnar í huga (heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 2003). Einnig lifa aldraðir lengur með fjölþætta langvinna sjúkdóma en áður, margir eru með minnkaða færni og þarfnast umönnunar frekar en lækningar og mun það valda auknu álagi á heilbrigðiskerfið, félagslega þjónustu og aðstandendur (hooyman og kiyak, 2011). Þegar þörf fyrir þjónustu eykst er mikilvægt að hafa yfir - sýn yfir þarfir skjólstæðinga og veitta þjónustu með góðri skráningu upplýsinga en vísbendingar eru um að hana þurfi að bæta í heimahjúkrun og félagslegri þjónustu (ríkisendurskoð - un, 2005). heimaþjónustan þarf að leggja áherslu á þá sem hafa 50 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 ingibjörg hjaltadóttir, Landspítala og háskóla Íslands hallveig Skúladóttir, hjúkrunar- og dvalarheimilinu höfða Notkun interRAI-upphafsmats til að meta þjónustuþörf og forgangsraða þjónustu í heima- hjúkrun og félagslegri heimaþjónustu Nýjungar: interrai-hC-upphafsmat er nýleg stytting á in- terrai-hC-mati sem útbúið er fyrir heimahjúkrun og félags- lega heimaþjónustu. Hagnýting: rannsóknin sýndi að interrai-hC-upphafs- matið, sem meðal annars inniheldur MaPLe-reikniritið, gefur góða mynd af heilsufari og þjónustuþörf skjólstæðinga í heima hjúkrun og félagslegri heimaþjónustu. Þekking: Leggja þarf áherslu á samræmda skráningu upplýs - inga hjá heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu svo að góð mynd fáist af þjónustuþörf skjólstæðinganna. Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: interrai-hC-upphafsmat er fljótlegt og auðvelt í notkun og niðurstöður fást strax en slíkt er mikilvægt til að gera þjónustuna sem markvissasta fyrir skjólstæðinga heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu. Hagnýting rannsóknarniðurstaðna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.