Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 28
Samantekt
rafrænni hæfnistjórnun hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku
er ætlað að samræma og bæta þjónustu við skjólstæðinga með
mismunandi þarfir, bæði hvað varðar heilsufarsvandamál og
félagslega stöðu þeirra. Sérstök áhersla er lögð á að störf hjúkr-
unarfræðinga verði ávallt byggð á gagnreyndri þekkingu sem
endurspeglist í gæðum þjónustunnar. Verkefnið er mikilvægt til
að meta og gera sýnilega þá sérhæfni sem hjúkrunarfræðingar
á bráðamóttöku búa yfir. Þannig fæst tækifæri til viðurkenn-
ingar á störfum hjúkrunarfræðinga, innan deildar sem utan.
Vinna við hæfniviðmið í bráðahjúkrun á LSh hefur tekið
langan tíma, hófst 2013, en lykilatriði er að hún grundvallaðist
á samstarfi fagráðs í bráðahjúkrun við hjúkrunarfræðinga á
bráðamóttöku LSh, af deildum g2 og g3. Til að ná þessum ár-
angri hefur verið mikilvægt að meðlimir fagráðs hafa fengið
svigrúm í vinnutíma til að þróa viðmiðin, mikill velvilji hefur
verið hjá framkvæmdastjóra flæðisviðs auk þess sem rétt
mann eskja fékkst til að sinna upplýsingatækni verkefnisins.
Þeir hjúkunarfræðingar sem þegar hafa tekið þátt í innleiðing-
unni lýsa yfir almennri ánægju með hæfniviðmiðin og kerfið,
að það hvetji til starfsþróunar og haldi utan um gæðaskjöl og
önnur gögn sem nýtast þeim beint í starfi auk þess sem fagleg
markmið þeirra verði skýrari.
Vonin er að reynslan af því að skilgreina og innleiða hæfni -
viðmið og rafrænt hæfnistjórnunarkerfi á bráðamóttöku Land -
spít ala hvetji aðra hjúkrunarfræðinga til að skilgreina hæfni -
viðmið fyrir sérhæfða hjúkrun og/eða vinnustaði. rétt er að
ítreka að verkefni sem þetta þarf bæði réttan mannafla og tíma,
en dropinn holar steininn.
Heimildir
Benner, P. (1984). From Novice to Expert. Excellence and Power in Clinical
Nursing Practice. Menlo Park: addison Wesley.
Cowin, L.S., hengstberger-Sims, C., Eagar, S.C., gregory, L., andrew, S. og
rolley, j. (2008). Competency measurements: testing convergent validity
for two measures. Journal of Advanced Nursing, 64(3), 272–277. doi:
10.1111/j.1365-2648.2008.04774.x
gazaway, S., Schumacher a.M. og anderson, L. (2016). Mentoring to retain
newly hired nurses. Nursing Management, 47(8), 9–13. doi: 10.1097/
01.nuMa.0000488861.77193.78
hamric, a.B., Spross, j.a. og hanson, C.M. (2005). Advanced Practice Nursing.
An Integrative Approach. St. Louis: Saunders.
þórdís, gyða, dóra, bryndís, helga, ingibjörg, kristín, ragna, sigurlaug, sólrún og sólveig
28 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Meðlimir Fagráðs bráðahjúkrunar
á Landspítala 2013–18
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir, formaður
Anna María Þórðardóttir
Anne Mette Pedersen
Bryndís Guðjónsdóttir
Dóra Björnsdóttir
Guðbjörg Pálsdóttir
Helga Pálmadóttir
Helga Rósa Másdóttir
Ingibjörg Sigurþórsdóttir
Kristín Halla Marinósdóttir
Lovísa Agnes Jónsdóttir
Ragna Gústafsdóttir
Sigurlaug A. Þorsteinsdóttir
Sólrún Rúnarsdóttir
Sólveig Wium
vertu með á
https://www.facebook.com/hjukrun