Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 34

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 34
Áhrif nýs verklags — niðurstöður Þegar bornar eru saman niðurstöður úr fyrstu þrem könnunum sem gerðar hafa verið sést að þó nokkur árangur hefur náðst. Sjúklingahópurinn helst svipaður allan tímann sem kannanirnar hafa verið gerðar. Meðalaldur hefur verið í kringum 70 ár, hlutfall karla og kvenna um 60/40 og sjúklingafjöldi á bilinu 20–22 hverju sinni. niðurstöður úr fyrstu könnun voru fremur sláandi því, eins og fyrr segir, í febrúar 2015 reyndust heil 27% sjúklinga eða 6 sjúklingar af 22 með þrýstingssár og þar af tveir með fleiri en eitt sár. Þá mátti til að mynda sjá þrjú 4. stigs þrýstingssár. Sjö mánuðum síðar hafði 4. stigs þrýstingssárum fækkað niður í eitt og rúmu ári síðar, eða í þriðju könnuninni, var engin 4. stigs þrýstingssár að finna. Eins og við mátti búast hafa flest þrýstingssár fundist á spjaldhrygg og hælum en einnig hafa fundist þrýstingssár á olnboga, eyra og á ökklabeinum. Í annarri könnun, sem var gerð um 7 mánuðum á eftir þeirri fyrstu, hafði þrýstingssárum fækkað úr 27,3% niður í 14,3% og hélst þannig í þriðju könnun sem var gerð árið á eftir (tafla 1). Líkt og minnst er á hér að framan var ekki notuð neins konar snúningsskrá til að skrá hve oft sjúklingum var snúið og hagrætt í rúmi þegar farið var af stað með þetta verk- efni. Búin var til og tekin í notkun ný skrá sem komst fljótlega í vana hjá starfsfólki að nota. Í annarri könnun voru í notkun sex snúningsskrár og í þeirri þriðju voru þrjár skrár á náttborðum sjúklinga. Þeir sjúklingar, sem reyndust í hættu á þrýstingssárum skv. áhættumati, voru ekki allir með snúningsskrá og því má sjá tækifæri til úrbóta þar. Mikla aukningu má sjá í gerð áhættumats sjúklinga frá fyrstu könnun að þeirri næstu en matið fór úr 59% sjúklinga upp í 95%. Strax í þriðju könnun hefur matið lækkað aftur í svipað horf, þá voru 62% sjúklinga á deildinni með virkt áhættumat út af myndun þrýstingssára. Samkvæmt áhættumati sjúklinga á deildinni hafa um 40–50% sjúklinga verið í einhvers konar hættu á að fá þrýstingssár. notkun réttra hjúkrunargreininga í tengslum við þrýstingssár hélst svipuð í gegnum allt ferlið. Umræður Með nýju og bættu verklagi var strax hægt að sjá árangur, milli fyrstu könnunarinnar í febrúar 2015 og næstu könnunar sjö mánuðum síðar má sjá stórfellda fækkun þrýstingsára en hún fer úr 27 % niður í 14%. Þess skal getið að ekki er vitað hvort sárin mynduðust á deildinni eða komu að heiman og því mjög mikilvægt að við innlögn sé húð sjúklinganna skoðuð og þrýstingssár sem og önnur sár skráð í upplýsingaskrá hjúkrunar. notkun snúningsskrár er komin í vana og nú eru fleiri sjúklingar, sem eiga á hættu á að fá þrýstingssár samkvæmt áhættumati, með snúningsskrá og er hagrætt reglulega yfir sólarhringinn. Snúningsskrárnar hafa fest sig í sessi á deildinni og hafa reynst gott vinnutæki til að styðjast við, bæði til að fylgja eftir snúningum og húðmati og sömuleiðis við vaktaskipti til að ekki fari á milli mála hvenær sjúklingi var síðast hagrætt. berglind guðrún chu og jóna margrét guðmundsdóttir 34 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 Mynd 5. Ný dýna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.