Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 7

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 7
Viðræður um endurnýjun stofnana- samninga ganga hægt kjaraumhverfi hjúkrunarfræðinga einkennist mjög af því að miðlægur kjarasamningur við ríki er bundinn í gerðardómi til mars 2019. Þrátt fyrir það hefur félagið unnið að endurnýjun stofnanasamninga við ýmsar heilbrigðisstofnanir. nú standa yfir viðræður við nokkrar þeirra, þar á meðal heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnun Vestfjarða, heil- brigðisstofnun Vesturlands, heilbrigðisstofnun norðurlands, heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Sjúkrahúsið á akureyri. Þetta eru þær heilbrigðisstofnanir sem núna hafa lýst yfir vilja til að endurskoða stofnanasamninga svo að þeir séu meira í takt við starfsemina. Viðræðurnar ganga hægt á flestum stöðum og fyr- irséð að þetta muni ekki leiða til verulegra launahækkana til handa hjúkrunarfræðingum heldur frekar einhverra aðgerða sem miða að því að bæta starfsumhverfi þeirra. aðrar stofnanir munu væntanlega fylgja í kjölfarið enda stefnir fíh á að hafa lokið endurskoðun allra stofnanasamninga áður en gerðardómi lýkur í mars 2019. Svona verkefni taka tíma og mannafla, sem og önnur mik- ilvæg málefni og aðstoð sem félagsmenn þurfa. Eftir ítrekaðar ábendingar félagsmanna um að þörf sé á að styrkja kjara- og réttindasviðið svo að hægt sé að bæta þjónustu til félagsmanna, tók stjórn félagsins þá ákvörðun að ráða einn starfsmann í viðbót á sviðið og mun hann hefja störf núna í sumar. kjarabarátta ljósmæðra hefur eflaust ekki farið framhjá neinum hjúkrunarfræðingi og þegar horft er til baka á við - ræðutímabilið milli ríkis og Ljósmæðrafélags Íslands má velta fyrir sér hvort samningaferlið við þessa kvennastétt gefi tóninn fyrir það sem hjúkrunarfræðingar eiga von á í komandi kjara - viðræðum. Er það svona sem ríkisvaldið ætlar að ganga fram við að jafna kynbundinn launamun eða við hverju mega hjúkr- unarfræðingar búast árið 2019 þegar gerðardómi lýkur, árið sem hjúkrunarfræðingar fagna 100 ára afmæli félagsins? já, framundan er undirbúningur fyrir komandi kjarasamn- inga og miklu máli skiptir að félagsmenn láti okkur vita hvaða áherslur þeir vilja setja í forgang í þessum samningum. fleira er á dagskrá félagsins og af nógu að taka. Í febrúar síðastliðnum voru greiddir út styrkir til 3054 hjúkrunarfræð - inga úr a-hluta Vísindasjóðs. nam heildarfjárhæðin 211 millj- ónum króna og hefur aldrei verið hærri. Það sama er að segja um B-hluta Vísindasjóðsins en þar voru veittar rúmlega 14 milljónir til rannsókna í hjúkrun og tel ég þetta endurspegla þá miklu grósku og afl sem er í íslenskum hjúkrunarrannsóknum sem og alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi. allt eru þetta mikil- vægir hlutir í vegferð okkar til að styrkja hjúkrun og láta fram- lag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa áhrif á gæði hjúkrunar, jafnt innanlands sem erlendis. Fjölga þarf karlkyns hjúkrunar- fræð ingum Eins og mörgum félagsmönnum er kunnugt hefur stjórn fíh hafið átak um að fjölga karlmönnum í hjúkrunarfræði. Átakið er m.a. á þann hátt að karlmönnum sem klára námsár í faginu, er gert kleift að sækja um styrk fyrir skráningargjaldi í háskól- ann á akureyri og háskóla Íslands. Einhverjir félagsmenn hafa haft áhyggjur af því hvort ekki sé verið að brjóta jafnréttislög en svo er ekki. um er að ræða jákvæða mismunun. rannsóknir hafa sýnt að blandaðir vinnustaðir skila bestum árangri og starfsfólki líður betur. Skjólstæðingar okkar hjúkrunarfræðinga eru ólíkir og með ólíkar þarfir. Við eigum í raun að endurspegla þann hóp sem við hjúkrum og er því aukning karlmanna í stétt- inni einn liður í þeirri viðleitni. Öllum ætti að vera kunnug umræðan í kjölfar #metoo-bylt- ingarinnar en stofnaður var vinnuhópur innan félagsins vegna þessa sem ennþá er að störfum. Ákjósanlegast er að þátttaka fíh í því máli sé í samvinnu við önnur stéttarfélög og vinnustaði hjúkrunarfræðinga en ábyrgð félagsins felst í að fylgja eftir aðgerðaáætlun vinnustaða tengdri kynbundnu ofbeldi og úr- vinnslu slíkra mála. Verður þessu verkefni sinnt áfram og m.a. í góðum tengslum við önnur stéttarfélög. fíh er mjög virkt í umsögnum og ályktunum um ýmis mál- efni sem sett eru fram á alþingi og tengjast skjólstæðingum hjúkrunarfræðinga og þeim sjálfum, enda þátttaka og áhrif okkar á skipulag heilbrigðisþjónustu mikilvæg. Ég hvet félags- menn til að kynna sér þær á vefsíðu félagsins, http://www. hjukrun.is/um-fih/utgafa/. nú er sumarið komið á íslenska vísu og enn sem fyrr upplifa hjúkrunarfræðingar miklar annir í heilbrigðiskerfinu, sem löngu er komið að þolmörkum. Margir hjúkrunarfræðingar eru með hnút í maganum vegna skorts á sumarafleysingum, þjón- ustulokunum o.s.frv. Við bíðum ennþá eftir útspili stjórnvalda um lausnamiðuð úrræði í heilbrigðismálum fyrir skjólstæðinga okkar og hjúkrunarfræðingana sjálfa, sem jafnvel gæti fengið hjúkrunarfræðinga til að vilja vinna innan heilbrigðiskerfisins í stað þess að leita í önnur störf. Vonandi munu þeir hjúkrunar - fræðinemendur sem nú eru að útskrifast sem hjúkrunar - fræðingar vinna innan heilbrigðiskerfisins en eftir samtal við þá kemur enn og aftur í ljós að starfsumhverfi og launakjör ráða hvað mestu um val á vinnustað eftir útskrift. Skilaboðin eru því skýr til atvinnurekenda í heilbrigðiskerfinu um hvað þarf að gera til að tryggja sér þessa hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar til starfa. Ég vil hvetja alla hjúkrunarfræðinga til að taka lögbundið frí á sumarorlofstímanum, hugsa um ykkur sjálf og njóta lífsins með fjölskyldu og vinum. Það að hvílast og geta staðið upp frá daglegu amstri vinnunnar er ein aðalforsenda þess að hægt sé að stunda hjúkrun af heilindum og fagmennsku. njótið sum- arsins og komið endurnærð til starfa á ný að fríi loknu. gleðilegt sumar! breyttur tíðarandi meðal ungra hjúkrunarfræðinga tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 7 Mesta útborgun Vísindasjóðs til hjúkrunar - fræðinga frá upphafi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.