Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 7
Viðræður um endurnýjun stofnana-
samninga ganga hægt
kjaraumhverfi hjúkrunarfræðinga einkennist mjög af því að
miðlægur kjarasamningur við ríki er bundinn í gerðardómi til
mars 2019. Þrátt fyrir það hefur félagið unnið að endurnýjun
stofnanasamninga við ýmsar heilbrigðisstofnanir. nú standa
yfir viðræður við nokkrar þeirra, þar á meðal heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnun Vestfjarða, heil-
brigðisstofnun Vesturlands, heilbrigðisstofnun norðurlands,
heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Sjúkrahúsið á akureyri. Þetta
eru þær heilbrigðisstofnanir sem núna hafa lýst yfir vilja til að
endurskoða stofnanasamninga svo að þeir séu meira í takt við
starfsemina. Viðræðurnar ganga hægt á flestum stöðum og fyr-
irséð að þetta muni ekki leiða til verulegra launahækkana til
handa hjúkrunarfræðingum heldur frekar einhverra aðgerða
sem miða að því að bæta starfsumhverfi þeirra. aðrar stofnanir
munu væntanlega fylgja í kjölfarið enda stefnir fíh á að hafa
lokið endurskoðun allra stofnanasamninga áður en gerðardómi
lýkur í mars 2019.
Svona verkefni taka tíma og mannafla, sem og önnur mik-
ilvæg málefni og aðstoð sem félagsmenn þurfa. Eftir ítrekaðar
ábendingar félagsmanna um að þörf sé á að styrkja kjara- og
réttindasviðið svo að hægt sé að bæta þjónustu til félagsmanna,
tók stjórn félagsins þá ákvörðun að ráða einn starfsmann í
viðbót á sviðið og mun hann hefja störf núna í sumar.
kjarabarátta ljósmæðra hefur eflaust ekki farið framhjá
neinum hjúkrunarfræðingi og þegar horft er til baka á við -
ræðutímabilið milli ríkis og Ljósmæðrafélags Íslands má velta
fyrir sér hvort samningaferlið við þessa kvennastétt gefi tóninn
fyrir það sem hjúkrunarfræðingar eiga von á í komandi kjara -
viðræðum. Er það svona sem ríkisvaldið ætlar að ganga fram
við að jafna kynbundinn launamun eða við hverju mega hjúkr-
unarfræðingar búast árið 2019 þegar gerðardómi lýkur, árið
sem hjúkrunarfræðingar fagna 100 ára afmæli félagsins?
já, framundan er undirbúningur fyrir komandi kjarasamn-
inga og miklu máli skiptir að félagsmenn láti okkur vita hvaða
áherslur þeir vilja setja í forgang í þessum samningum.
fleira er á dagskrá félagsins og af nógu að taka. Í febrúar
síðastliðnum voru greiddir út styrkir til 3054 hjúkrunarfræð -
inga úr a-hluta Vísindasjóðs. nam heildarfjárhæðin 211 millj-
ónum króna og hefur aldrei verið hærri. Það sama er að segja
um B-hluta Vísindasjóðsins en þar voru veittar rúmlega 14
milljónir til rannsókna í hjúkrun og tel ég þetta endurspegla þá
miklu grósku og afl sem er í íslenskum hjúkrunarrannsóknum
sem og alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi. allt eru þetta mikil-
vægir hlutir í vegferð okkar til að styrkja hjúkrun og láta fram-
lag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa áhrif á gæði hjúkrunar,
jafnt innanlands sem erlendis.
Fjölga þarf karlkyns hjúkrunar-
fræð ingum
Eins og mörgum félagsmönnum er kunnugt hefur stjórn fíh
hafið átak um að fjölga karlmönnum í hjúkrunarfræði. Átakið
er m.a. á þann hátt að karlmönnum sem klára námsár í faginu,
er gert kleift að sækja um styrk fyrir skráningargjaldi í háskól-
ann á akureyri og háskóla Íslands. Einhverjir félagsmenn hafa
haft áhyggjur af því hvort ekki sé verið að brjóta jafnréttislög
en svo er ekki. um er að ræða jákvæða mismunun. rannsóknir
hafa sýnt að blandaðir vinnustaðir skila bestum árangri og
starfsfólki líður betur. Skjólstæðingar okkar hjúkrunarfræðinga
eru ólíkir og með ólíkar þarfir. Við eigum í raun að endurspegla
þann hóp sem við hjúkrum og er því aukning karlmanna í stétt-
inni einn liður í þeirri viðleitni.
Öllum ætti að vera kunnug umræðan í kjölfar #metoo-bylt-
ingarinnar en stofnaður var vinnuhópur innan félagsins vegna
þessa sem ennþá er að störfum. Ákjósanlegast er að þátttaka
fíh í því máli sé í samvinnu við önnur stéttarfélög og vinnustaði
hjúkrunarfræðinga en ábyrgð félagsins felst í að fylgja eftir
aðgerðaáætlun vinnustaða tengdri kynbundnu ofbeldi og úr-
vinnslu slíkra mála. Verður þessu verkefni sinnt áfram og m.a.
í góðum tengslum við önnur stéttarfélög.
fíh er mjög virkt í umsögnum og ályktunum um ýmis mál-
efni sem sett eru fram á alþingi og tengjast skjólstæðingum
hjúkrunarfræðinga og þeim sjálfum, enda þátttaka og áhrif
okkar á skipulag heilbrigðisþjónustu mikilvæg. Ég hvet félags-
menn til að kynna sér þær á vefsíðu félagsins, http://www.
hjukrun.is/um-fih/utgafa/.
nú er sumarið komið á íslenska vísu og enn sem fyrr upplifa
hjúkrunarfræðingar miklar annir í heilbrigðiskerfinu, sem
löngu er komið að þolmörkum. Margir hjúkrunarfræðingar eru
með hnút í maganum vegna skorts á sumarafleysingum, þjón-
ustulokunum o.s.frv. Við bíðum ennþá eftir útspili stjórnvalda
um lausnamiðuð úrræði í heilbrigðismálum fyrir skjólstæðinga
okkar og hjúkrunarfræðingana sjálfa, sem jafnvel gæti fengið
hjúkrunarfræðinga til að vilja vinna innan heilbrigðiskerfisins
í stað þess að leita í önnur störf. Vonandi munu þeir hjúkrunar -
fræðinemendur sem nú eru að útskrifast sem hjúkrunar -
fræðingar vinna innan heilbrigðiskerfisins en eftir samtal við
þá kemur enn og aftur í ljós að starfsumhverfi og launakjör ráða
hvað mestu um val á vinnustað eftir útskrift. Skilaboðin eru því
skýr til atvinnurekenda í heilbrigðiskerfinu um hvað þarf að
gera til að tryggja sér þessa hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar
til starfa.
Ég vil hvetja alla hjúkrunarfræðinga til að taka lögbundið
frí á sumarorlofstímanum, hugsa um ykkur sjálf og njóta lífsins
með fjölskyldu og vinum. Það að hvílast og geta staðið upp frá
daglegu amstri vinnunnar er ein aðalforsenda þess að hægt sé
að stunda hjúkrun af heilindum og fagmennsku. njótið sum-
arsins og komið endurnærð til starfa á ný að fríi loknu.
gleðilegt sumar!
breyttur tíðarandi meðal ungra hjúkrunarfræðinga
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 7
Mesta útborgun Vísindasjóðs til hjúkrunar -
fræðinga frá upphafi.