Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 30

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 30
Starfsmenn legudeilda á sjúkrastofnunum verja drjúgum hluta af vinnutíma sínum í störf og athafnir við sjúkrarúm. Líkamlegt álag, sem þessi vinna útheimtir, veltur á hönnun rúmanna, þeim hjálpartækjum sem völ er á og líkamsbeitingu. Vel hönnuð rúm og hagnýt hjálpartæki létta vinnuna og leiða þar með til sparnaðar, bæði heilsufarslega og fjárhagslega. fjórða iðnbyltingin er hafin og vélmenni eru að hefja innreið sína á sjúkrastofnanir. að hvaða marki skyldu hjúkrunarfræðingar vera virkir þátttakendur í hönnun og þróun tæknivæddra sjúkrarúma og annarra hjálpartækja framtíðarinnar? Sjúkir og aldraðir, sem þurfa á sjúkrarúmum að halda, geta þurft að dvelja í þeim stóran hluta sólarhringsins. hönn un sjúkrarúma hefur í áranna rás fyrst og fremst miðast við ástand sjúklinga, næst við þarfir starfsfólks og í þriðja lagi þykir útlit skipta máli. Þau hafa breyst og þróast um aldir en þrískipt rúm með stillanlegri hæð fyrir höfuð og fætur urðu til í Bandaríkjunum um aldamótin 1900. Í lok seinna stríðs bættust við handföng eða grip sem auðvelduðu stillingar og loks leysti rafstýring handföngin af á síðustu áratugum (hospital beds, 2017; Wikipedia, 2017). Þeir sem hafa unnið við umönnun aldraðra og sjúkra þekkja hversu vandasamt getur verið að aðstoða rúmliggjandi fólk og aðra með litla hreyfifærni. Þegar rúm- liggjandi sjúklingum er hagrætt, lyft og snúið þarf iðulega líka að skipta um, færa til og laga rúmfatnað svo að vel fari um þá. Yfirleitt þarf tvo starfsmenn til verksins, stundum jafnvel fleiri. handtökin eru mörg og það þarf að gæta þess að hvorki sjúklingur né starfsfólk skaðist við hnjaskið. Þá skiptir máli hvernig dýnan í rúminu er og hvort hún passar í rúmið, hvernig lök eru notuð, hvernig hliðargrindur eru hannaðar og hvernig stýri búnaður rúmsins, bremsa, gálgi og steypibúnaður eru útfærð. Á Landspítala hófst innleiðing á 400 nýjum sjúkrarúmum sem arion banki gaf haustið 2015 en endurnýjun á rúmakostinum var orðin brýn. nýju rúmunum er lýst sem lækningatækjum „sem eru útbúin flóknum búnaði til að mæta ýtrustu kröfum um öryggi sjúklinga og aðstöðu starfsfólks“ (Landspítalinn, 2015). Þau eru rafdrifin og hægt að stilla þau á ýmsa vegu og frá öllum hliðum með tilliti til mis- munandi sjúkdómsástands og aðstæðna. Á hjúkrunarheimilum hefur verið horft meira til útlits rúmanna við val á þeim og þar er leitast við að hafa þau heimilisleg. rúm á hjúkrunarheimilum eru gjarnan úr viði, eða líta út fyrir að vera það. Þau eru rafdrifin en til að stýra þeim er notuð stýrigræja sem hangir í áfastri rafmagnssnúru. rafstýrð rúm reynast ekki endilega gallalaus í notkun þó þau hafi marga kosti umfram gömlu rúmin. Sem dæmi má nefna að það getur kostað hlaup í kringum rúmið að komast að stýrigræju og verið erfitt að komast að bremsubúnaði undir þungri grind. Sumar rúmgrindur þarf að draga lárétt út til að færa upp og niður. Það útheimtir rými í kringum rúmið og flutning húsgagna svo hægt sé að hreyfa grindina. Eftir að ný rúm voru tekin í notkun á Landspítala uppgötvaðist að vanda- samt er að nota lyftara við þau, illmögulegt að hengja á þau útskilnaðarpoka og að sumar dyr gamalla húsakynna eru of þröngar fyrir þau. allt vekur þetta spurningar 30 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 Hönnun sjúkrarúma hefur í áranna rás fyrst og fremst miðast við ástand sjúklinga, næst við þarfir starfsfólks og í þriðja lagi þykir útlit skipta máli. Sjúkrarúm, aðhlynning og tækni Þorgerður Ragnarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.