Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Qupperneq 19
sambærilega menntun og ábyrgð og starfa hjá hinu opinbera.
Takmarkaðar lausnir liggja í stofnanasamningum þar sem heil-
brigðisstofnanir bera fyrir sig fjárskorti og að ekki fylgi fé þess -
um samningum frá ríkinu.
ærið verk er fyrir höndum, bæði félagsins og stjórnvalda,
að vinna að bættum kjörum þessarar stóru kvennastéttar.
reglulega birtast fréttir í fjölmiðlum af lokunum eða samdrætti
á starfsemi heilbrigðisstofnana og heilbrigðisþjónustu vegna
skorts á hjúkrunarfræðingum til starfa. Ef ekkert verður að gert
er hætt við að enn muni bætast í þann hóp sem kýs að starfa
við annað en hjúkrun og vandséð hvernig íslensk stjórnvöld
ætla að reka íslenskt heilbrigðiskerfi án hjúkrunarfræðinga sem
eru hryggjarstykkið í öllu kerfinu. Ljóst er að skortur á hjúkr-
unarfræðingum verður ekki leystur á einni nóttu en á Íslandi
eru menntaðir hjúkrunarfræðingar sem kjósa að starfa við
annað vegna óásættanlegra launakjara og starfsumhverfis sem
hægt væri að fá aftur til starfa ef allir leggjast á eitt.
Opnar spurningar
Eins og fram kom í inngangi þessarar greinar samanstóð könn-
unin af tvenns konar spurningum; annars vegar fjölvalsspurn-
ingum með nokkrum svarmöguleikum og hins vegar opnum
spurningum þar sem hjúkrunarfræðingum gafst kostur á að tjá
sig með eigin orðum. Það var ánægjulegt að sjá hversu mikil
svörun var í þeim hluta. Mikilvægt er fyrir fíh að fá svona
mikið af lýsandi svörum um starfið og mun félagið geta nýtt
sér þau í áframhaldandi vinnu.
hjúkrunarfræðingarnir voru spurðir hvað þeim þætti ann-
ars vegar jákvætt og hins vegar neikvætt við starfið. Mynd 1
setur fram þá sex þætti í hvorum flokki fyrir sig sem komu
oftast fram. upptalningin er ekki í röð eftir mikilvægi. jákvæðir
þættir eru með grönnu letri og þeir neikvæðu eru feitletraðir.
Þarna má sjá að eftir sem áður virðast hefðbundin gildi hjúkr-
unar vera það sem hjúkrunarfræðingar telja jákvæðast varðandi
starfið. Þeir neikvæðu þættir sem þeir telja upp koma heldur
ekki á óvart. Í þessari upptalningu liggja mikil tækifæri og
greinarhöfundar telja að hægt sé að vinna með alla neikvæðu
þættina og breyta þeim ef allir aðilar koma að borðinu. hjúkr-
unarfræðingar, stjórnvöld, stjórnendur heilbrigðisstofnana og
menntastofnanir þurfa að vinna sameiginlega að því markmiði
að bæta kjör, starfsánægju og starfsumhverfi hjúkrunarfræð -
inga.
Samantekt
Þegar niðurstöður þessarar könnunar eru skoðaðar er greini-
legt að rauður þráður liggur í gegnum þær allar. hjúkrun-
arfræðingur sem er ungur, með stuttan starfsaldur og vinnur
vaktavinnu, er almennt óánægðari en eldri hjúkrunarfræðingur
sem hefur háan starfsaldur og vinnur dagvinnu.
Þetta má túlka á ýmsa vegu en það er mat greinarhöfunda
að hlúa þurfi að yngri kynslóðinni, þótt ekki megi gleyma þeim
eldri. Vinna þarf markvisst innan heilbrigðisstofnana að því að
greiða laun í samræmi við ábyrgð, hafa samsetningu mann -
aflans réttan og huga að fjölda hjúkrunarfræðinga þannig að
álag sé ekki úr hófi. Starfsumhverfi og aðbúnaður þarf að vera
í lagi. Það að geta leitað til samstarfsfólks skiptir hjúkrunar -
fræðinga miklu máli. Eins þurfa stjórnendur í hjúkrun að huga
að því hvaða skilaboð þeir eru að senda hjúkrunar fræðingum
þar sem greinilegt er að stuðning frá þeim og jákvæða endur-
gjöf má stórbæta.
umbætur á starfsánægju, starfsumhverfi, álagi og launum
hjúkrunarfræðinga eru verkefni sem þurfa stöðugt að vera í
gangi. Yngri kynslóð hjúkrunarfræðinga dregur skýrari mörk
gagnvart vinnunni og telur hana launaða vinnu en ekki lífsstíl.
Í raun má segja að mikið af niðurstöðum þessarar könnunar
hafi verið þekktar fyrir. nú hafa þær verið staðfestar með óyggj-
andi hætti og óhætt að segja að niðurstöðurnar endurspegli vel
viðhorf stéttarinnar, enda 74,2% þátttaka í könnuninni. félagið
mun nýta þessar niðurstöður vel í baráttunni fyrir bættum
kjörum félagsmanna, ásamt skýrslunni um vinnumarkað
hjúkrunarfræðinga og skýrslu ríkisendurskoðunar.
frá sjónarhóli hjúkrunarfræðinga
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 19
Fjölbreytileiki
Laun
Gera gagn Vinnuálag
Láta gott af sér leiða Starfsumhverfi
Mannleg samskipti Mannekla
Starfa með fólki Neikvæð viðhorf
Gefandi starf Erfið samskipti
Mynd 1. jákvæðir og neikvæðir þættir varðandi það að starfa sem hjúkrunarfræðingur.
höfundar eru formaður fíh,
sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs og sviðsstjóri fagsviðs fíh.