Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Side 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Side 21
og meðferð verkja og hvernig þróa megi þjónustu á ólíkum sviðum heilbrigðisþjónustunnar til að fyrirbyggja og með höndla verki með sérhæfðum inngripum og þverfaglegri samvinnu. Meginviðfangsefnin eru verkir og verkjameðferð og hið flókna samspil verkja og heilsutengdra lífsgæða. fjallað er um verki frá ýmsum hliðum, grunnþekkingu á taugalífeðlisfræði sársauka, sársaukaupplifun og tjáningu sem og ýmsa utanað - kom andi þætti sem hafa áhrif, s.s. sálfélagslega og tilvistarlega ásamt því að skoða samspil verkja og geðrænna þátta. Með því að samþætta þekkingu og reynslu ýmissa heil- brigðisstétta læra nemendur hvernig þróa má þverfaglega þjón- ustu á ólíkum sviðum heilbrigðisþjónustunnar til að fyrir byggja, meta og meðhöndla verki með sérhæfðum inngripum og þver- faglegri samvinnu. Lögð er áhersla á heildræna nálgun við fangs - efnisins og gagnrýna umfjöllun um hvernig koma megi í veg fyrir verki, takast á við þá og bæta þjónustu við einstaklinga með verki, bæði í bráð og lengd. námskeiðið er til 10 eininga og er uppistaðan í námslínu á meistarastigi um verki og verkjameðferð. Einnig er hægt að taka þetta námskeið sem 5 eða 10 eininga valnámskeið á öðrum námslínum innan framhaldsnámsdeildar heilbrigðisvísinda - sviðs eða sem stakt námskeið. Öldrun, heilbrigði, heilabilun og velferðartækni Á námslínunni um öldrun verður meiri áhersla lögð á sjálfræði og sjálfstæði þeirra, einkum aldraðra með heilabilun, auk þess sem fjallað verður um velferðartækni. nemendur kynnast þekk - ingu og leiðum til að efla og viðhalda heilbrigði, færni og vel - líðan aldraðra í samspili við fjölskyldur þeirra og umhverfi. Markmiðið er að kynna fyrir nemendum öldrunarfræði með áherslu á heilbrigði og þjálfun aldraðra, heilabilun og nýja menningu persónumiðaðrar umönnunar og þjónustu. einnig að skoða möguleika velferðartækninnar til stuðnings við sjálfstæði og öryggi aldraðra. horft er til framtíðarþróunar í málefnum aldraðra og rýnt í á hvern hátt umönnun og þjónusta eflir og styrkir einstakling- inn og fjölskyldu hans til að lifa farsælu lífi í samræmi við markmið velferðarráðuneytisins og aldraðra sjálfra um að búa á eigin heimili sem lengst. nemendum gefst tækifæri til að rýna sérstaklega í eigið fræða- og áhugasvið í tengslum við efni nám- skeiðsins. nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu háskólans á akur eyri eða hjá ingibjörgu Smáradóttur skrifstofustjóra og dr. Sigrúnu Sigurðardóttur, formanni framhaldsnámsdeildar. framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við háskólann á akureyri tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 21 Activon fastus.is JUNGAR Í NÝ ÁRAVÖRUR FRÁ S HUNANGSVÖRUR SÁRAGRÆÐS ADVANCIS MEDICAL ÍSOGSUMBÚÐIR LU Eclypse fastus.isISíðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Verið velkomin í verslun okkar minna umfang, og einnig mótast þær eftir líkamanum Þægilegar umbúðir fyrir sjúklinginn, • og heldur honum þar, jafnvel undir þrýstingsumbúðum Miðjukjarninn dregur mikinn vökva í sig • bakteríu- og vírusheld en andar vel Bakhlið umbúðana er vatns-, • Fækkar umbúðaskiptum ef meðal til mikill vessi• Eclypse – helstu eiginleikar: Loðir ekki við sár• Hentar fyrir grynnri sár• Má nota undir þrýstingi og í sárasogsmeðferðum• scose net með 99% Manuka hunang og 1% Manuka olíuVi• Actilite – Sárasnertilag með Manuka hunangi hunang og engin önnur efni eldur 100% medical grade Manuka Innih• Activon – 100% Manuka hunang

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.