Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 32
Inngangur: Nýtt verklag — betri þjónusta Árið 2013 var gerð könnun á hversu margir sjúklingar á Land spítalanum voru með þrýstingssár (mynd 1). Í ljós kom að rúmlega 19% allra sjúklinga á spítalanum reynd- ust með slík sár. augljóst var að eitthvað þurfti að taka til í þeim málum og því var farið af stað með gæðaverkefni veturinn 2015 sem snéri að forvörnum gegn myndun þrýstingssára. Stuðst var við hugmyndafræði LEan. Tilgangur verkefnisins var að fækka þrýst ingssárum, efla öryggi sjúklinga og bæta þjónustuna. Smit sjúkdómadeildin var valin sem prufudeild. Vinnuhópur var settur á laggirnar sem í voru tveir hjúkr- unarfræðingar ásamt tveimur sjúkraliðum af deildinni. Mikill stuðningur og aðhald fékkst af hópi verkefnastjóra, gæðastjóra, deildarstjóra og hjúkr unarfræðinga með sérþekkingu á þrýstingssáravörnum. Upphaf verkefnis Byrjað var á því að kanna hve algeng þrýstingssár voru á deildinni áður en nokkru yrði breytt. könnun var gerð á einum degi í febrúar 2015. allir legusjúklingar samþykktu að taka þátt, alls tuttugu og tveir sjúklingar. Stuðst var við Braden-kvarða til að meta einstaklinga í áhættuhópi. húðmat og áhættumat var gert á öllum legu - sjúklingum og gögn sótt úr sjúkraskrá. Skoðað var sérstaklega hve margir voru með virkt áhættumat, hvort einstaklingur var með greiningu varðandi þrýstingssár og hvort eitthvað væri skráð varðandi húð, húðmat, snúninga og sár. kannað var hverjir voru með snúningsskrá og hvernig hún var útfyllt. Einnig var gerð athugun á gæðum rúmdýna hjá öllum sjúklingunum. Niðurstöður úr fyrstu könnuninni Meðalaldur sjúklinganna var 70 ár. konur voru 8 en karlar 14 talsins. kom í ljós að 6 af 22 sjúklingum voru með þrýstingssár, eða 27%. Tveir þeirra reyndust vera með tvö sár. Eingöngu 2 af þessum 6 sjúklingum voru með hjúkrunargreiningu tengda þrýstingssárum en í staðinn voru þar notaðar ýmsar aðrar greiningar eins og veikluð húð, vefjaskaði, -sár og fyrirbygging fylgikvilla rúmlegu. Sárum, sem sáust, var skipt í flokka miðað við flokkun þrýstingssára og kom í ljós að þetta var blanda af öllum flokkum en áberandi var þó að af 8 sárum voru 3 þeirra í flokki 4 sem eru dýpstu sárin. algengasti staðurinn var hælar og spjaldhryggur. rúmlega 45% allra legusjúkl - inga reyndust í hættu á að fá þrýstingssár en eingöngu 59% höfðu virkt áhættumat daginn sem könnunin var gerð. Einnig kom í ljós að dýnurnar voru eldgamlar og sumar hverjar alveg ónýtar (mynd 2). Enginn var með snúningsskrá. niðurstöðurnar komu starfsfólki deildarinnar verulega á óvart og þá sérstaklega hve algeng sárin voru. Í raun varð þetta enn meiri hvatning fyrir starfsfólkið til að gera betur, finna lausnir og vinna að samræmdu verklagi. Nýtt verklag Verklagi deildarinnar var breytt á ýmsan máta. Þegar athugað var hvort stuðst hefði verið við snúningsskrá kom í ljós að ákveðin skrá hafði verið notuð en hún fannst ekki á deildinni þegar könnunin var gerð. grunur lék á að henni hefði verið hent þegar deildin lenti í mósafaraldri árið áður og gleymst að taka hana upp aftur. Ákveðið var 32 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 Þrýstingssáravarnir á smitsjúkdómadeild Berglind Guðrún Chu og Jóna Margrét Guðmundsdóttir Mynd 2. Ónýt dýna. Mynd 1. Þrýstingssár á hælum. (Ljósmynd Guðbjörg Pálsdóttir.)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.